20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2667 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)

340. mál, hvar í dómskerfinu eru stödd nokkur mál sem teljast til efnahagslegra afbrota

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég stend raunar aðeins upp til að taka undir ýmislegt af því sem hér hefur komið fram. Ég get tekið undir það sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv. Vitanlega verður að gæta þess, þegar máli er hraðað, að sakborningur fái öll tækifæri til að verja sig sökum. Við byggjum að sjálfsögðu á því, að enginn er sekur fyrr en sekt er sönnuð. Hitt er svo annað mál, að langur tími slíkrar málsmeðferðar hitnar einmitt oft mjög illa á sakborningi og fjölskyldu hans, og um það eru mörg dæmi. Ég hygg að einnig frá því sjónarmiði verði að tryggja þann hraða slíkrar málsmeðferðar sem frekast er unnt og hæfilegt getur talist.

En ég vil jafnframt taka undir það, sem fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda, að álagið er gífurlega mikið á rannsóknar- og dómskerfinu í heild — gífurlega mikið.

Þótt vafalaust hafi orðið veruleg endurbót með Rannsóknarlögreglu ríkisins er hún ofhlaðin störfum. Svo er einnig með saksóknara. Því er í gangi nú á vegum dómsmrn, athugun á því, hvort tæknilega megi auðvelda þessum aðilum, ekki síst saksóknara ríkisins, meðferð hinna fjölmörgu mála sem þar liggja. Vel má vera að það verði unnt með breyttum starfsháttum. En menn verða einnig að gæta þess, að til þess eru margar löglegar leiðir fyrir verjanda að fá frestað sínu máli, og ekki nema hluta af þeim langa tíma, sem fer í slíka málsmeðferð, má rekja til dómstólanna sjálfra.

Ég vil taka undir það sem kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda. Í þessu tilfelli eins og flestum er rétt, að á skal að ósi stemma og taka þar sérstaklega fyrir það að menn geti hagnast á fjársvikamálum. Það er mjög stórt atriði. Ég er því með í athugun hvort fara eigi þá leið, sem hefur verið lögð til í frv., að stórhækka dómvexti, eða jafnvel hef ég óskað eftir athugun á því, hvort til greina gæti komið beinlínis að reikna verðtryggingu á slíkar dómniðurstöður, eftir á að sjálfsögðu. Úr þessu þarf að bæta og hef ég fullan hug á því.