20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2668 í B-deild Alþingistíðinda. (2076)
344. mál, loðnuveiðar
Fyrirspyrjandi (Guðmundur Karlsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 342 að bera fram eftirfarandi fsp. til hæstv. sjútvrh.:
„1. Verður veiði á loðnu takmörkuð við ákveðið magn á þessari vertíð?
2. Hyggst sjútvrh., ef svo verður, gera ráðstafanir til að unnt verði að framleiða í gerða sölusamninga á frystri loðnu og loðnuhrognum? Samningar þessir eru mjög verðmætir og mikilvægir fyrir framtíðarstöðu okkar á markaðnum og fiskvinnslu á Suðvesturlandi.“
Það er að sjálfsögðu ekki að ástæðulausu að þessar fsp. eru bornar fram. Við lesum nú í blöðum um till. Hafrannsóknastofnunar eða fiskifræðinga um takmörkun loðnuveiða við 350 þús. tonn til þess að tryggja nægilega mikla hrygningu og verði veiðum í bræðslu haldið í lágmarki á hrygningarsvæðum á Suður- og Suðvesturlandi. Má segja, að það séu vandræði að við þm. skulum ekki hafa fengið skýrslu fiskifræðinganna. Við höfum ekki haft aðgang að upplýsingum þeirra annars staðar en úr fjölmiðlum.
Nú er það svo, að á þessu svæði sem og Vesturlandinu hafa verksmiðjur fjárfest mikið, lagt í dýran og mikinn undirbúning í auknu þróarrými, tækjum og búnaði í trausti þess að hafa eðlilega vinnslu í vetur, og á þessu svæði eru nokkrar af stærstu og öflugustu verksmiðjum landsmanna. Þá hafa margar verksmiðjur selt töluvert magn af mjöli fyrir fram og þær þyrftu nauðsynlega að hafa aðstöðu til þess að gera viðskiptamönnum sínum grein fyrir því, ef um vanefndir á samningum verður að ræða, og þyrftu því að vita þetta sem fyrst.
Vinnsla loðnunnar hefur skapað starfsfólki verksmiðjanna mikla vinnu og góðar tekjur og hefur það treyst á loðnuvinnslu varðandi afkomu sína á árinu. Sama má að mestu leyti segja um frystihúsin. Þau hafa þegar lagt í dýran og mikinn undirbúningskostnað fyrir vertíðina, keypt flokkunarvélar, þvottavélar, hrognaskiljur og annan búnað til vinnslunnar. Starfsfólk þeirra treystir mjög á mikla vinnu og auknar tekjur við loðnuvinnsluna. Eins er það að afköst frystingar eru mest á suðvestursvæðinu, þar sem erfiðleikar frystiiðnaðarins hafa verið hvað mestir. Yrði loðnufrystingin því mikill búhnykkur, bæði fólkinu og frystihúsunum.
Þá megum við ekki heldur gleyma stöðu okkar og samkeppni á japanska markaðnum. Við vorum þar brautryðjendur, en höfum á síðustu árum átt í harðri samkeppni við Norðmenn, Rússa og Kanadamenn og á ýmsu gengið. Nú eru skilyrði á markaðnum mjög hagstæð og ef vel tækist til gætum við styrkt þar mjög stöðu okkar að nýju. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur þegar gert samninga um sölu á 6000 tonnum af frystri loðnu og 3400 tonnum af frystum loðnuhrognum og er verðmæti samningsins um 4.5 milljarðar. Samband ísl. samvinnufélaga mun hafa gert samning nú við Japani einnig, en ég hef ekki fengið upplýsingar um hve stór sá samningur er eða hvert verðmæti hans er. Munu jafnvel fleiri söluaðilar vera í samningagerð við Japani og er vandalaust að auka við þá samninga sem þegar hafa verið gerðir. Við verðum því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styrkja stöðu okkar á markaðnum í Japan.
Svo hefur til tekist að loðnufrysting er nú um 1100 tonn, en fram undan er að frysta loðnuhrognin og til þess að sú frysting geti farið fram þarf rúmlega 100 þús. tonn af hráefni. Virðist vera að fiskifræðingar bindi sig við töluna eða veiðimagnið 1 millj. tonna. En mér finnst einhvern veginn að þessi milljón tonna hljómi ekki reglulega sannfærandi, því að ég verð að líta svo á að fiskifræði sé ekki þau „exact“ vísindi að slík ákvörðun verði byggð á þeim rannsóknum, sem þegar hafa farið fram.
Við vitum að loðnugangan, sem fer hér með landinu, hefur skipt sér. Hluti hennar hefur farið vestan við landið og er nú kominn upp að Vestfjörðum. Sýnist þar vera mikið magn á ferðinni. Skoðanir virðast vera skiptar um það magn sem kemur austan með landinu. Virðist vera álit skipstjórnarmanna að þarna sé mun meira magn á ferðinni en fiskifræðingar hafa viljað vera láta, og við höfum óskað eftir að rannsóknarskip verði sent til að skoða þessa göngu frekar en til þessa hefur verið gert. Að vísu voru fiskifræðingar búnir að kanna þetta áður en gangan kom að suðurströndinni og töldu þetta mun minna magn en verið hefði, en það mun vera álit skipstjórnarmanna, að þarna sé mjög mikið magn á ferðinni, svipað og var 1977, og því ekki ástæða til eins mikillar varfærni og fiskifræðingar vilja nú hafa. Það er búið að veiða um 256 þús. tonn, svo að það er ekki mikið eftir ef á að halda sig við þessa milljón tonna sem gerðar eru till. um.
Þannig er nú ástatt, að rannsóknarskipið Árni Friðriksson mun vera að koma úr dráttarbraut og eiga að fara í rækjuleit nú þegar hann kemur úr slipp. Bjarni Sæmundsson er fyrir vestan land og á að fara í einhvers konar rannsóknir við Norður- og Vesturland. Æskilegt er að annað hvort þessara skipa verði nú þegar sent til þess að kanna gönguna sem fer hér vestur með suðurströndinni. Við vitum að vandasamar ákvarðanir eru fram undan við fiskvernd og veiðitakmarkanir þegar sókn okkar í fiskstofnana minnkar og stefna verður að hámarksverðmætasköpun úr hverjum stofni. En ákvarðanir verður að taka og verður ekki við það unað lengur, að fiskvinnslufólk og stjórnendur fyrirtækjanna hér á Suðvesturlandi fái ekki að vita hvað fram undan er á þessari komandi og yfirstandandi vertíð.