20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2671 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)

344. mál, loðnuveiðar

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil taka undir með fyrirspyrjanda, þegar hann sagði frá því, hvað það væri bagalegt fyrir þá, sem ættu að standa við að framleiða í gerða sölusamninga á frystri loðnu og loðnuhrognum, að fá ekki um það vissu að veiðum verði haldið áfram til þess að vinna í þessa samninga. Jafnframt tek ég undir það sem hann sagði varðandi mikilvægi þess að uppfylla þá samninga vegna framtíðarinnar. Hins vegar er ég mjög undrandi á því svari sem hæstv. settur sjútvrh. gaf hér. Það voru vangaveltur um að veðráttan kæmi til hjálpar og eiginlega von til þess að bræla héldi áfram svo að ekkert þyrfti að gera í þessa áttina. Ég hef varla heyrt jafnaumkunarvert svar frá rn. eins og þetta svar: að hyggja á því að veðurguðirnir verði helst óviðráðanlegir þannig að engin loðna fáist og þá sé von um að hægt verði að fiska og vinna upp í gerða sölusamninga. Ætlar rn. að láta fiskifræðinga stjórna sér algerlega eða ekki? Ætlar rn. að hafa sjálfstæða skoðun í sambandi við þessar veiðar eða ætlar það enga sjálfstæða skoðun að hafa?

Ég tel ekki að fiskifræðingar séu svo langt komnir að það eigi alveg að hætta veiðum þegar komin eru milljón tonn úr hafinu og ef farið yrði yfir það sé stofninn í stórhættu. Ég hef ekki orðið var við að haft sé neitt frekar vísindalegt eftirlit núna með hverjum degi, eins og settur sútvrh. sagði áðan, en verið hefur á undanförnum árum. Ég held að íslensk útgerð, bæði sjómenn, fiskvinnslufólk, útvegsmenn og fiskvinnslueigendur, eigi kröfu til þess, að rn. hafi einhverja skoðun og segi frá því hvað það ætli að gera.