20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2672 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

344. mál, loðnuveiðar

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Það kom fram í svari mínu, að magnið fyrir Suðausturlandi mundi verða rannsakað, og það kom líka fram í svari mínu, að loðnufrysting og loðnuhrognafrysting mundi látin sitja fyrir, þannig að tekið yrði tillit til þess að upp í þá samninga verði aflað.

Um útúrsnúninga hv. 1. þm. Vestf. vil ég hafa sem fæst orð. Vitanlega hefur veðrið áhrif á afla og hefur alltaf haft á Íslandi, og ef þarf að grípa til takmarkana — ég segi: ef, þá verður auðvitað að taka tillit til þess, hve mikið hefur veiðst, hæði vegna tíðar og að loðna sé til. Ég endurtek það, að loðnu- og hrognafrysting verður látin hafa forgang ef nauðsynlegt reynist að takmarka veiðar, sem alls ekki er víst, því að hingað til hefur ekki verið reiknað með að stöðvast við milljón tonnin. Enn þá er að vísu ekki búið að gefa grænt ljós á að veiða meira en 350 þús, tonn úr Suðausturlandsloðnunni. Aftur á móti er reiknað með að það megi veiða þar nokkuð til viðbótar, og vonast er eftir að talsvert magn megi veiða af Vestfjarðaloðnunni, þó að ekki sé hægt að fullyrða endanlega um það enn.