20.02.1979
Sameinað þing: 55. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2675 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)
179. mál, ráðstafanir vegna birgðasöfnunar mjólkurafurða
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir þau svör sem hann hefur gefið. Ég vil geta þess að sá mismunur, sem fram kemur í máli hans og því sem ég rakti áðan um birgðir, kemur mér spánskt fyrir sjónir af því að þær tölur, sem ég fór með, eru fengnar frá formanni Stéttarsambands bænda sem hann gaf okkur upp á fundi í þingnefnd nú fyrir skömmu. En það skiptir ekki höfuðmáli. Hér var ekki um þann mun á þessum tölum að ræða, t.d. aðeins 7 tonn á smjörinu, að það hafi nein áhrif á þetta mál í heild.
Ég verð að segja það, að í máli hæstv. ráðh. kom í rauninni ekki fram neitt sem máli skiptir til þess að ráða fram úr þessum bráða vanda. Frv. til l. um Framleiðsluráð landhúnaðarins, sem lagt var fram hér fyrir jól, leysir ekki þennan bráða vanda. Með því er aðeins ætlað að bregðast við á nokkuð fjölbreytilegri hátt en áður hefur verið gert hvernig vandanum verði dreift á herðar bænda, og má vera að það frv., ef að lögum verður, væntanlega í breyttu formi, muni hafa einhver samdráttaráhrif í för með sér til frambúðar. En það leysir ekki þennan vanda, sem orðinn er, og þar er nauðsynlegt að greina á milli. Enn fremur er rétt að gera sér grein fyrir því, að þær ráðstafanir aðrar en breyt. á jarðræktarlögum, sem hæstv. ráðh. nefndi, þál. um stefnumörkun í landbúnaði, hafa ekki áhrif á þann vanda sem orðinn er. Þau mál geta orðið hér til umfjöllunar síðar. Ég skal ekki eyða tíma í að ræða þau frekar.
Hitt er svo aftur annað mál, að sá þáttur í ræðu hæstv. ráðh., sem fjallaði um markaðskönnun og markaðsleit, er auðvitað ákaflega þýðingarmikill í þessu efni. Þ. á m. kemur vitaskuld til álita — og hlýtur að koma til álita, hvort stjórnvöld eigi ekki að krefjast þess beint að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli kaupi af okkur vörur og þá á fullu verði. Það er auðvitað engin ástæða til þess að við séum að selja varnarliðinu vörur á undirverði. Vil ég beina því til hæstv. ráðh., að hann og félagar hans í ríkisstj. athugi það frekar.
Um aðra þætti í markaðsmálunum er það auðvitað að segja, að í rauninni liggur fyrir að smjörbirgðirnar seljast ekki nema fyrir ákaflega lítið verð. Þá er aðalmálið í þessu: Ætlar ríkisstj. að grípa til ráðstafana í sambandi við þessi birgðamál með þeim hætti að smjörbirgðunum sérstaklega — og jafnvel að hluta ostabirgðunum — verði komið í lóg með einhverjum hætti, og ætlar ríkisstj. að leggja fram eitthvert fé til að bæta þau stórkostlegu skakkaföll sem af því leiðir fyrir bændastéttina í landinu? Við þessu gaf hæstv. ráðh. engin svör. Ég vonast til að hann geti gert það, þó síðar verði.
Um seinni lið fsp. fjölyrði ég ekki. Ég tek það gott og gilt, sem hæstv. ráðh. sagði um það mál, og vænti þess, að sú könnun verði gerð sem ég hef þar farið fram á.