21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)

104. mál, alþjóðasamningar um varnir gegn mengun sjávar af völdum olíu

Utanrrh. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Þar sem ég var við störf í hinni d. þegar málið kom til 2. umr. vil ég nota þetta tækifæri til að þakka hv. n. skjóta og góða afgreiðslu á þessu máli svo og d. allri fyrir skjóta og góða samþykkt. Ég tel að þetta sé mjög gagnlegt mál sem gæti komið okkur mjög til góðs hvenær sem er.