21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2680 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)
148. mál, orlof
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég stend upp til að andmæla brtt. sem hér er fram komin. Aftur á móti undrar mig ekki svo mjög að hv. þm. Guðmundur Karlsson skyldi bera hana fram. Það er alveg rétt, að í n. var samkomulag um afgreiðslu þessa máls, en ég minnist þess, að því að vikið er að störfum n., að hv. þm. hafði orð á því í n., að hann væri mjög efins út af þessu atriði sem að bókhaldsskoðuninni lyti. Raunar hafði ég búist við því, að hann mundi skila séráliti eða skrifa undir með fyrirvara og frómt frá sagt var í mér beygur um að honum hefði þarna yfirsést. Og feginn er ég því nú eftir fjögurra ára setu hér á þingi, hve oft hv. dm. í þessari d. hafa séð í gegnum fingur við mig í sambandi við þess háttar mistök. En brtt. hans er ég gersamlega andvígur.
Ég get tekið undir með hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni, að kjarni hins eiginlega máls er sá, að launagreiðanda sé skylt að standa skil á orlofsfé og gera grein fyrir því. Það er kjarni málsins. En atriðið, sem skiptir öllu í þessu sambandi, er að hér erum við að slá við því varnagla, sem allt of oft hefur til borið, að þetta hefur launagreiðandi ekki gert. Við erum í þessu sérstaka máli að slá varnagla sem dugi til þess að fólk eigi ekki undir ákaflega stopula — því miður — skilvísi launagreiðenda að sækja í þessu máli, að launþegar þurfi ekki í þessu tilfelli að eiga sitt, svo sem verið hefur, algerlega undir svo stórfelldri skilvísi.
Í n. var að því vikið sérstaklega, einmitt af hv. þm. Guðmundi Karlssyni, að hér væri mikið í húfi að reglugerð, sem sett yrði um framkvæmd þessa atriðis sem lýtur að bókhaldsskoðuninni, væri sett af mikilli varúð og reynt að tryggja sem áfalla- og árekstralausasta framkvæmd á þessu atriði. Undir þetta var tekið í n. og á það reiðum við okkur, enda hygg ég að við hv. alþm. höfum fullan rétt til þess að reikna með því, að embættismenn ríkisins framkvæmi lög af sem fyllstri kurteisi. Hér er alls ekki til þess ætlast, að hvaða innheimtumaður sem er geti ráðist inn í læstar hirslur fyrirtækis og farið að grúska þar í bókhaldi fyrirtækisins. Því fer víðs fjarri. Til þess starfa verða náttúrlega settir hæfir menn, sem munu framkvæma verkið á fyllilega lögmætan og eðlilegan hátt. Ríkið hefur svo sannarlega — ég andmæli því hjá hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni, — ríkið hefur í störfum innheimtumenn sem hafa við sérstakar aðstæður rétt til þess að skoða bókhald fyrirtækja. Einstökum þjónum ríkisins er veitt heimild til þess að framkvæma húsrannsóknir, sem ganga þó miklu nær hinum borgaralega rétti, fá fógetavald til þess að leita á fólki, til þess að leita á þegnunum. Það þarf ekki til þess stór próf að hljóta slíkt fógetavald. Ég veit ekki betur en hundur á Keflavíkurflugvelli hafi fógetavald, vald til þess að leita á fólki. Hér er ekki um þess háttar stórmál að ræða. Hér er um það að ræða, að þannig verði nú um hnútana búið, að starfsmenn, réttir opinberir aðilar, geti loksins tryggt framkvæmd þessara laga. Annaðhvort er okkur það alhugað, að þetta mál verði nú þann veg afgreitt á hv. Alþingi, að hægt sé að framfylgja þessum lögum.
Herra forseti. Ég legg til að frv. verði afgreitt óbreytt og þessi till. verði felld.