21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2683 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)

148. mál, orlof

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. kom lítið eitt inn á vinnubrögð í þessu sambandi, þ.e. að hv. 5. þm. Suðurl. hefði ekki skilað sérnál., en farið þá leið að gera fyrirvara og bera svo fram brtt. við þessa umr. Ég veit að hv. 4. þm. Norðurl. e. er mjög vandur að virðingu sinni, og ég vil ekki bera á móti því, sem hann sagði í þessu efni um góða málsmeðferð. En ég held að það þurfi ekki heldur að setja sérstaklega út á þá málsmeðferð sem hefur verið viðhöfð um þetta frv. Ég held og er raunar viss um að það eru mörg fordæmi, svo að maður segi ekki: í aðra röndina venja að fara svo að sem hv. 5. þm. Suðurl. gerði í þessu máli.

Hv. 4. þm. Norðurl. e. kom inn á það, að embættismenn og verðir laganna hefðu ýmsar heimildir til þess að leita upplýsinga og kynna sér mál, þ.e. gefa úrskurði, framkvæma fógetaaðgerðir o.fl. þess háttar. Mér er kunnugt um þetta allt og auðvitað er allt rétt sem hv. 4. þm. Norðurl. e. sagði um þetta efni. En ég verð að gera þá játningu, að hann kom mér alveg í opna skjöldu þarna með hundinn á Keflavíkurflugvelli. Ég kann ekkert um það að segja, en ég renni grun í að það atriði muni þó stoða lítt til þess að renna stoðum undir þetta frv.

Hæstv. félmrh. sagði að launagreiðandi, sem ekki greiddi orlofsfé, bryti lög. Um það er enginn ágreiningur, það er augljóst. Ég kom inn á þetta atriði. Þegar búið er að samþykkja fyrri mgr. þessa frv., þá brýtur líka launagreiðandi lög með því að gefa ekki upplýsingar. Þetta er alveg augljóst og enginn ágreiningur um það, eins og ég lagði megináherslu á áðan. Ágreiningurinn er einungis um hvaða aðferðum á að beita til þess að tryggja, að þessi lög séu haldin og launagreiðendur standi við þessa lögskyldu sína.

Ég taldi mig færa rök fyrir því áðan, hvers vegna ég gæti ekki fallist á þá aðferð sem frv. gerir ráð fyrir. Hæstv. félmrh. sagði í því sambandi, að innheimtuaðilinn væri opinber aðili, vegna þess að Póstur og sími sér um þessi mál núna. Það virðist mér ekki breyta því sem ég áður sagði um þetta. Það er ekki talað um í þessu frv. að það eigi að vera t.d. Póstur og sími. Það er bara talað um innheimtuaðila, hver svo sem það verður.

5. þm. Reykn. lagði mikla áherslu á að ástandið í orlofsmálum verkafólks væri mjög slæmt, eins og hann orðaði það, og mér kemur ekki til hugar að bera brigður á það. Hann sagði einnig að atvinnurekendur gæfu ekki upplýsingar, en bætti við, að það væri ekki almennt svo um atvinnurekendur að þeir brytu lög eða vikju sér undan skyldu í þessu efni, en það væru svartir sauðir í þeirra hópi í þessum efnum, eins og hann orðaði það. Auðvitað er þetta rétt, og þetta er rétt í mörgum samböndum þegar við ræðum um hvort lög eru haldin eða ekki. Það er ekki allur almenningur sem brýtur lög. Það eru ekki heilar stéttir sem brjóta lög. Það eru einstaka svartir sauðir. Til þess að fást við þá manngerð eru einmitt dómstólarnir, og dómstólarnir eiga undir venjulegum kringumstæðum að anna þessu. Það er ekki verið að taka fyrir mál alls almennings í landinu. Það er verið að taka fyrir mál einstakra svartra sauða, ef maður notar það orðalag.

Mér sýnist af því, sem hér hefur komið fram, að ekkert hnekki því að rétt sé að fella niður síðari mgr. 1. gr. þessa frv., og ég held að vel hafi verið varið þeim tíma sem við höfum eytt í að ræða þetta mál. Hv. 5. þm. Reykn. talaði um að ekki mætti tefja fyrir málinu eða að málið yrði eyðilagt. Það er sannarlega ekki ætlun okkar, sem fylgjum brtt. sem fram hefur komið, að tefja fyrir málinu, síður en svo. Það er ekki heldur ætlun okkar að eyðileggja málið, heldur þvert á móti að leitast við að gera það svo úr garði að það verði betra mál eftir en áður.