21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2687 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

148. mál, orlof

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég satt að segja bjóst ekki við að það yrðu miklar umr, um þetta mál, því að ég held að öllum sé ljóst að þetta er réttlætismál. Þetta er fyrst og fremst gert til þess að tryggja rétt launþega á hluta af sínum launum sem þeir eiga að nota til orlofs.

Ég get viðurkennt það, að ég var einn af þeim sem í upphafi voru mjög tortryggnir á þetta form, að láta ríkisstofnun í Reykjavík sjá um innheimtu og greiðslu orlofsfjár á sínum tíma, Póstgíróstofuna. Ég taldi að þau rök væru miklu gildari, að það ætti að ávaxta þessa fjármuni eða geyma þessa fjármuni heima í byggðarlögunum þar sem fólkið á heima, bæði atvinnurekendur og launþegar. Hins vegar sá ég strax að þetta mundi gera meira los á þessi mál og það væru miklu meiri líkur til að skapa öryggi í málinu með því að láta opinbera stofnun sjá um þetta í einu lagi. Ég get upplýst það hér, — ég hef fylgst með því nú síðustu tvö árin, — að þessi aðferð hefur batnað mjög nú á síðustu tímum og ég hef ekki orðið var við annað en launþegar telji að sínu öryggi sé vel borgið með því kerfi sem Póstgíróstofan beitir núna. Þetta var ekki nógu gott, en hefur stórkostlega batnað og launþegar fá þarna vissar upplýsingar sem þeir geta svo staðreynt, hvort viðkomandi atvinnurekandi hefur skilað fénu eða skilað ekki.

Ég er þess vegna mjög fylgjandi þessu frv., ekki síst þegar það kemur greinilega fram, að nú mun Póstgíróstofan greiða orlofið beint til launþega þó að viðkomandi atvinnurekandi hafi ekki skilað því. Og þá verður auðvitað þessi aðili að fá aðgang að launabókhaldi viðkomandi atvinnurekanda sem hefur ekki skilað skýrslum um orlof.

Ég hef skilið það þannig, að það hlyti að liggja í augum uppi að rn. mundi þurfa að setja sérstaka reglugerð um meðferð þessa máls. Það má e.t.v. segja að það hefði átt að fylgja í frvgr., en það breytir ekki því, að í svona máli hlýtur að verða að koma reglugerð um meðferð málsins. En ég tel að hér sé um svo viðamikið réttlætismál fyrir verkalýðshreyfinguna eða launþega í landinu að ræða, að það megi ekki henda að við hér á hv. Alþ. sjáum ekki um, að þetta frv. fari eins fljótt í gegn og málsmeðferð frekast leyfir.