21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2688 í B-deild Alþingistíðinda. (2104)

117. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Ágúst Einarsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um aflatryggingasjóð sjávarútvegsins. Frv. var afgreitt frá Nd. fyrir jól og sjútvn. Ed. sendi málið til umsagnar fleiri aðila en Nd. hafði gert. Hvað varðar umsagnir, þá bárust þó nokkur svör. Sjútvrn. mælti með málinu. Stjórn aflatryggingasjóðs mælti með samþykkt frv. með breytingu sem n. hefur tekið upp í brtt. sína. Neikvæðar umsagnir bárust frá Farmanna- og fiskimannasambandinu, Sjómannasambandinu og Landssambandi ísl. útvegsmanna, en í brtt við frv. er tekið nokkurt tillit til þeirra sjónarmiða.

Aðalbreytingin, sem n. gerir tillögu um, að síðasti málsliður sé orðaður þannig: „Greiðslur bóta skulu í meginatriðum við það miðaðar að útgerðarmaður sleppi skaðlaust frá greiðslu kauptryggingar.“ Það er skoðun n. svo og stjórnar Aflatryggingasjóðs, að þessar bætur nái vitaskuld til útgerðarmanna, sem sjálfir eru á bátunum.

Aðrar breytingar, sem n. leggur til að verði gerðar á frv., eru orðalagsbreytingar, óverulegar, en þó var meginatriðið að reyna að hafa orðalagið svipað núgildandi lögum.

Sérstök ástæða er til að leggja áherslu á að þetta frv. leiði ekki af sér fordæmi hvað varðar aðrar veiðar, enda bendir ákvæðið til bráðabirgða á tilgang frv., en þar er fjallað um rækjuveiðar.

N. var sammála um afgreiðslu þessa máls í því formi sem hún gerir ráð fyrir á brtt. á þskj. 362. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Karl Steinar Guðnason.