21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2690 í B-deild Alþingistíðinda. (2109)

63. mál, tollskrá

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. nr. 120 1976, um tollskrá o.fl. N. leitaði umsagnar um frv. og á fund n. kom Björn Hafsteinsson, formaður úthlutunarnefndar bifreiða til öryrkja.

Samkv. 27. tölul. 3. gr. laga um tollskrá er heimilt að lækka eða fella niður gjöld af bifreiðum öryrkja sem eiga erfitt með að fara ferða sinna án farartækis. Með þessu frv. er lagt til að heimilaður árlegur fjöldi þessara bifreiða verði aukinn og afslátturinn margfaldaður.

Samkv. þeim upplýsingum, sem n. fékk, segir að nokkrar sveiflur hafi verið á fjölda umsókna um slíka lækkun, en 300–400 öryrkjaleyfi verið talin nægjanleg árlega. Í samræmi við það leggur n. til að leyfin verði 400, eins og þau voru áður, en þau voru færð niður í 350 samkv. núgildandi lögum, en jafnframt verði lækkun gjalda auk innflutningsgjalds 500 þús. kr. í stað þess að gert er ráð fyrir 450 þús. í frv. og 150 þús. í núgildandi lögum. En þar sem þessar upphæðir eru miðaðar við fasta krónutölu er nauðsynlegt að endurskoða þær öðru hverju meðan verðbólga geisar.

Þá er enn fremur gert ráð fyrir að innflutningsgjald, sem er 50% af tollverði bifreiðarinnar, falli niður allt að því marki að þessi afsláttur verði 1 millj. kr. af hverri bifreið.

Þá hefur enn fremur fólki með hjartasjúkdóma verið bætt í upptalninguna í þann hóp sem sérstaklega er tilnefndur í upphafi greinarinnar í sambandi við úthlutunina og er það í samræmi við þá venju sem verið hefur hjá n. undanfarin ár.

N. getur ekki mælt með ótakmarkaðri eftirgjöf á þeim 25 bifreiðum sem njóta eiga sérstakra kjara, þar sem slíkt mundi mismuna mönnum eftir því hvað þeir hefðu efni á að kaupa dýrar bifreiðar, þannig að sá, sem hefði efni á að kaupa dýrasta bílinn, fengi jafnframt hæsta afsláttinn. Þess vegna leggur n. til að hámarkslækkunin verði tvöföld frá því sem hún er nú á sama hátt og með hina bílana og gæti þá orðið allt að 2 millj. kr. af innkaupsverði, ef innkaupsverð bifreiðar er svo hátt að gjöldin nemi samtals þeirri upphæð.

Að úthlutun þessara leyfa undanfarin ár hefur unnið n. sem í hafa verið 4 læknar auk formanns sem skipaður er af ráðh. Samkv. núgildandi lögum er talað um 2 lækna auk formanns, en n. leggur til að sú skipan, sem verið hefur síðustu árin, verði lögfest.

Þá hefur í verklagsreglum n. verið kveðið á um að ekki skuli að öðru jöfnu veita þeim aðilum eftirgjöf samkv. 27. tölul. 3. gr. sem tollívilnunar njóta samkv. 41. tölul. 3. r. og er sú verklagsregla sett inn í brtt. nefndarinnar.

Í síðustu mgr. 1, gr. hafa verið felld niður orðin „öll“ og „þ. m. t. söluskatt“, þar sem í 3. gr. tollskrárinnar er alls staðar talað um gjöld án nánari skilgreiningar og það orðalag notað af ráðh. til að fella niður söluskatt af ýmsum þeim hlutum sem þar er fjallað um, en slíkt væri ekki hægt að gera ef í einhverjum tölul. í greininni væri talað um söluskatt sérstaklega. Í því sambandi má sérstaklega benda á að frá síðustu áramótum er ekki greiddur söluskattur af aðflutningsgjöldum þeim sem felld eru niður af bifreiðum öryrkja.

Um síðustu mgr. má einnig segja það, að hún hefur reynst erfið í framkvæmd, enda eru þeir hlutir, sem þar eru taldir upp, greiddir af almannatryggingum, þannig að viðkomandi aðilar, sem þá kaupa, fá þá endurgreidda. Af þeim ástæðum taldi n. ekki fært að taka talstöðvar með á þann hátt sem frv. gerir ráð fyrir. En þetta minnir á það sem margir hafa haldið fram, að æskilegt væri að aðstoð til öryrkja komi öll í gegnum almannatryggingakerfið þar sem mat á aðstæðum og þörf fer hvort sem er fram.

N. varð sammála um að leggja til að frv. verði samþykkt með þeirri brtt. sem hún flytur á þskj. 358.