21.02.1979
Efri deild: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2691 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)
63. mál, tollskrá
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil þakka fjh.- og viðskn. fyrir afgreiðslu þessa máls, þó að ég sé e.t.v. ekki að öllu leyti ánægður með þá takmörkun sem n. leggur til, sérstaklega að því er varðar fjölda bifreiða, því að miðað við þær upplýsingar, sem ég hef í höndum, er eftirspurn eftir niðurfellingu bifreiðagjalda fyrir fólk, sem þarf vissulega á slíku farartæki að halda, miklum mun meiri en sá fjöldi sem hér er lagt til að verði.
Það, sem við flm. lögðum til grundvallar í sambandi við þetta frv., var í fyrsta lagi álit Öryrkjabandalagsins, sem taldi algert lágmark að þessar bifreiðar yrðu 500 að tölu. Samt sem áður tel ég að það sé svo mikilvæg breyting sem hér hefur náðst samstaða um, að aðalatriðið sé nú að afgreiðslu málsins verði hraðað í gegnum þingið þannig að það komi að fullum notum fyrir fólk við þá úthlutun sem nú stendur fyrir dyrum að framkvæma á þessum vetri. Á það vil ég leggja alveg sérstaka áherslu.
Ég vil taka undir með hv. frsm. n., að vitanlega er það svo um mörg af þeim atriðum sem hér koma fram, ekki síst í sambandi við síðustu gr. um að fella niður gjöld af gervilimum og öðrum hjálpartækjum, að við rekumst illilega á að það ætti í raun og veru að vera sjálfkrafa hlutverk Tryggingastofnunar ríkisins að sjá um þessa fyrirgreiðslu fyrir fólk sem nauðsynlega þarf á henni að halda, og þar koma inn öryggistæki eins og talstöðvar í bíla fyrir þetta fólk.
Ég vil fyrir hönd okkar flm. áskilja okkur rétt til að athuga nánar fyrir 3. umr. 4. mgr. brtt., þ.e.a.s.: „Aðilar, sem njóta tollívilnunar samkv. 41. tölul., geta eigi jafnframt fengið tollívilnun samkv. þessum tölul.“ Ég vil segja frá því hér, að við áskiljum okkur rétt til að athuga þetta atriði nánar, fyrir 3. umr. Að öðru leyti vil ég endurtaka þakkir til n. fyrir afgreiðslu málsins og þá samstöðu sem hér kemur fram, og ég undirstrika enn, að ég tel mjög brýna nauðsyn bera til að málið fái nú hraða afgreiðslu í gegnum þessa d. og í gegnum Alþ. til þess að það komi að þeim notum sem að er stefnt við úthlutun á þessu ári.