22.02.1979
Sameinað þing: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2718 í B-deild Alþingistíðinda. (2143)

60. mál, innkaup opinberra aðila á íslenskum iðnaðarvörum

Flm. (Eggert Haukdal):

Herra forseti. Nokkuð er umliðið frá því að ég lagði till. þessa fram þar til nú að hún er tekin til umr. Það breytir ekki því, að það efni, sem hún fjallar um, á fyllsta erindi inn í þingsali, að eytt sé í það smátíma. Í þeim umr., sem stundum taka megintímann af fundum Alþingis, vilja mál atvinnuvega okkar gleymast, sem eru þó undirstaða undir afkomu okkar og lífi.

Enda þótt mér sé ljóst, eins og kemur fram í grg., að ýmislegt hafi verið vel gert í þessum málum, þ. á m. að fyrrv. iðnrh. hafi skipað starfshóp í þetta mál sem mun nú, þegar þetta er talað, u.þ.b. hafa lokið ágætum störfum og mun senn skila af sér, þá breytir það ekki því, að alveg er óhætt að Alþ. láti í ljós viljayfirlýsingu í málinu og ýti þannig á að þetta mál komist áfram. En það er ekki nóg. Ríkið þarf að marka sér ákveðna stefnu í þessum málum líkt og Reykjavíkurborg og einnig önnur sveitarfélög. Síðan þurfa rn. og einstakar ríkisstofnanir að fara eftir þeirri reglu undanbragðalaust.

Í boðskap iðnrh. til iðnaðarins og þjóðarinnar nú um áramótin var lofað framkvæmdum í þessu máli og ber að fagna því. Eftir því er nú beðið, að það tal verði að framkvæmd.

Ekki er þörf að hafa langt mál fyrir þessari till., svo mjög sem hv. þm. ætti að vera ljós nauðsyn á framgangi hennar. Þó tel ég rétt að benda á eftirfarandi, en vísa að öðru leyti til grg.

Ríki og sveitarfélög eru langstærsti kaupandi á rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og þjónustu hér á landi. Fullvíst má telja að með breyttri innkaupastefnu þessara aðila geti þeir stóreflt íslenskan iðnað, aukið atvinnu í landinu og sparað erlendan gjaldeyri. Með markvissari innkaupum þessara aðila í þágu íslensks iðnaðar geta þau stuðlað að framleiðslu fleiri innlendra vörutegunda og þannig aukið innlent vöruúrval um leið og aukin tækniþekking flyst inn í landið. Sem leið að þessu markmiði má nefna fimm atriði:

1) Að ríki og sveitarfélög noti útboð á markvissan hátt til að stuðla að iðn- og vöruþróun. Gera þarf ítarlega úttekt á kaupum þessara aðila á vörum og þjónustu erlendis og kanna jafnframt hvaða vöruflokkar og einstakar tegundir það eru sem mögulegt er að framleiða hér á landi. Ljóst er að hægt er að framleiða fjölmargar af þeim vörum hér á landi sem keyptar eru erlendis frá í dag. Gera á samninga við innlend fyrirtæki um framleiðslu þeirra hér á landi. Ekki er óeðlilegt að innlend fyrirtæki verði styrkt til tilraunaframleiðslu, sem fram fari í samstarfi við kaupanda og notendur. Til greina kemur að greiða tímabundið nokkru hærra verð fyrir vöruna og síðan, ef gæði og verðsamanburður stenst, að gera samning um lengri tíma viðskipti til þess að tryggja betur rekstrargrundvöll viðkomandi iðnfyrirtækis. Flm. leggur sérstaka áherslu á þessi atriði sem hann telur mikilvægan þátt iðnþróunar á Íslandi.

2) Við útboð á ýmsum meiri háttar verkum og fjárfestingarvörum hér á landi hafa innlendir aðilar ekki getað tekið þátt í slíkum útboðum vegna þess að skilafrestur hefur verið stuttur og/eða stærð útboðseininga það mikil að innlendir framleiðendur hafa ekki getað með svo skömmum fyrirvara framleitt viðkomandi hlut. Hafa íslensk fyrirtæki staðið frammi fyrir þeirri staðreynd annaðhvort að falla frá tilboði eða setja til hliðar þá framleiðslu og þjónustu sem fyrirtækið hefur haft með höndum við fasta viðskiptamenn. Með bættu skipulagi þessara mála ætti að vera auðvelt að lengja skilafrest og ákveða stærð útboðseininga þannig að innlendir framleiðendur geti fremur boðið í verkið, m.a. með því að hafa útboð í fleiri áföngum.

3) Með bættu upplýsingastreymi milli verkkaupenda og innlendra framleiðenda má koma á mun fyrr en nú tíðkast á framfæri með skipulegum hætti upplýsingum til innlendra framleiðenda um fyrirhuguð verkefni og útboð. Sem dæmi má nefna þá hugmynd, að eftir að Alþ. hefur afgreitt fjárlög geri Innkaupastofnun ríkisins í samvinnu við rn. og ríkisstofnanir yfirlit yfir einstakar framkvæmdir sem ráðgert er að hefja á komandi ári. Upplýsingum þessum sé síðan dreift meðal innlendra framleiðenda.

4) Að lögð verði áhersla á að ávallt sé miðað við íslenskar vörur og búnað við hönnun opinberra mannvirkja, enda standist hin innlenda framleiðsla gæðakröfur þær sem gerðar eru. Þetta atriði snýr fyrst og fremst að arkitektum og verkfræðingum. Þrátt fyrir að til séu hér á landi oft á tíðum fyllilega sambærilegar vörur, bæði hvað verð og gæði snertir, eru þess því miður mörg dæmi, að í verklýsingu sé miðað við erlend vöruheiti sem síðan hljóta að vera mjög leiðandi við innkaup. Það er skoðun flm., að við hönnun opinberra mannvirkja og búnað til þeirra eigi ríki og sveitarfélög að setja það skilyrði, að miðað sé við innlenda framleiðslu að uppfylltum fyrrnefndum skilyrðum.

5) A.m.k. eitt sveitarfélag í landinu, þ.e. Reykjavíkurborg, hefur markað þá stefnu í opinberum innkaupum, að heimilt sé að taka tilboði innlendra aðila fram yfir erlenda þótt verð hinnar innlendu vöru sé allt að 15% hærra ef gæði eru sambærileg. Vissulega kann þessi regla eins og margar aðrar að vera umdeilanleg. Þegar það er hins vegar metið, hversu stór hluti af virði framleiðslunnar skilar sér aftur til hins opinbera í formi skatta og annarra tekna, þá er þessi regla síður en svo óeðlileg. Hafa verður einnig í huga, að á sama tíma eykst atvinna, jafnvel ný atvinnutækifæri skapast, og innflutnings- og gjaldeyrisverð minnkar.

Flm. vill minna á þá staðreynd, að þrátt fyrir alla fríverslun virðist sem opinberum framkvæmdum í Vestur-Evrópu sé meira og minna skipt til innlendra aðila og sú skoðun ríki, að sem mest af opinberum innkaupum fari fram á heimamarkaði. Allur tölulegur samanburður milli landa er erfiður í þessu sambandi þar sem um mjög mismunandi vöruframboð er um að ræða. Iðnaður okkar er í samanburði við margar þjóðir Vestur-Evrópu einhæfur og vöruframboð hér minna. Þessi staðreynd sýnir hins vegar fram á nauðsyn þess að efla vöruþróun og fjölga innlendum vörutegundum, sem vissulega er hægt að gera með ákveðinni stýringu opinberra innkaupa.

Þá vill flm. einnig minna á finnska rannsókn á opinberum innkaupum sem leiddi til þeirrar niðurstöðu, að mjög algengt væri að innkaup hins opinbera á þarlendri framleiðslu hefðu í för með sér að 40% af virði framleiðslunnar skiluðu sér aftur í ríkissjóð í formi skatttekna. Þetta hefur haft þau áhrif á afstöðu finnskra yfirvalda, að þau stuðla sem mest þau mega að opinberum innkaupum innanlands þótt borga þurfi hærra verð fyrir innlenda framleiðslu. Það er skoðun flm., að með bættu skipulagi á opinberum innkaupum, m.a. með samantekt á hinum margvíslegu rekstrarvörum sem ríkið notar, megi ná mun hagkvæmari samningum fyrir ríkið við innlenda framleiðendur. Gæti þannig endurskoðun þessara mála haft í för með sér lækkun ýmissa útgjalda ríkisins fyrir rekstrarvörur.

Við Íslendingar verðum oft að sæta því vegna markaðsaðstæðna erlendis að flytja út stóran hluta útflutningsvöru okkar lítt unnin eða hálfunninn. Þannig glata íslenskar hendur tækifærum til arðbærrar vinnu. Þess vegna er ekki óeðlilegt, um leið og við keppum að því markmiði að flytja sem minnst út óunnið, að við á okkar litla markaði hyggjum að því sama í sambandi við innfluttar vörur, án þess að þurfa að tala um að við séum að brjóta nokkra fríverslunarsamninga. Aðrar þjóðir vinna markvisst að þessu á sínum heimamarkaði, eins og áður er sagt. Það er því knýjandi nauðsyn að frumkvæði stjórnvalda í þessum efnum komi til, en það mun stórefla íslenskan iðnað og gera hann færan um að framleiða betri vörur, sem aftur leiðir af sér aukin innkaup almennings á íslenskri framleiðslu.