22.02.1979
Sameinað þing: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2735 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)
60. mál, innkaup opinberra aðila á íslenskum iðnaðarvörum
Flm. (Eggert Haukdal):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. alþm. undirtektir við þessa till. Umr. hafa farið nokkuð á dreif, en þær hafa verið mjög jákvæðar um till., og ég held að ekki hafi verið illa varið tímanum til að ræða hér aðeins vandamál eins okkar atvinnuvegar, iðnaðarins, þessa stund. Í þessu sambandi vil ég leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir að taka þetta mál á dagskrá. Það var aftarlega á dagskránni, en búið að bíða eins og reyndar margir þm. hafa orðið við að búa í vetur, að bíða eftir að mál þeirra kæmust á dagskrá. Ég vil leyfa mér að þakka fyrir það.
Hv. þm. Stefán Jónsson varpaði hér fram hver væri munur á starfshóp og nefnd, því að ég nefndi starfshóp í mínu máli, og hv. þm. Jónas Árnason svaraði því raunar. Ég vil aðeins bæta því við, að um áramótin var greint frá því, að hæstv. iðnrh., — hann er því miður ekki viðstaddur hér í dag, — skýrði frá að hann hefði lagt niður 10 nefndir, en skipað hins vegar í staðinn 6 starfshópa.
Aðalatriðið í sambandi við þetta mál að það nái fram að ganga og komist í raunverulega framkvæmd og að þessir aðilar, sem hér er farið fram á, ríki og sveitarfélög, marki sér ákveðna stefnu, eins og Reykjavíkurborg hefur gert myndarlega, og þetta verði sem allra fyrst að veruleika. Þessari till. var varpað fram til að hreyfa hér merku máli, og ég vona að hún nái þeim tilgangi sem til var ætlast.