22.02.1979
Sameinað þing: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2740 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)
51. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll
Jónas Árnason:
Herra forseti. Það er hverju orði sannara að nauðsynlegt er að skyggnast í þau mál sem fjallað er um í till. þessari. Það er líka hverju orði sannara, sem segir í grg. með till., að það er ekki í fyrsta sinn sem á þetta er minnst opinberlega. Af hálfu okkar Alþb.manna og okkar, sem vorum þm. Sósíalistaflokksins áður en Alþb. var stofnað, hefur um meira en aldarfjórðungsskeið alltaf öðru hvoru verið haldið uppi kröfum um að skyggnst væri í það sukk, sem á sér stað í samskiptum við herinn þar suður frá — sukk, óráðsíu og svínarí. Ég vek athygli á því, að í grg. og jafnvel í ræðu hv.
1. flm. örlaði ekki á neinu orðbragði af þessu tagi. Hann var miklu kurteisari í umr. um þetta en ég leyfi mér að vera hér og við andstæðingar bandarísku herstöðvarinnar höfum leyft okkur að vera allan þennan tíma.
Ég leyfi mér að vekja afhygli á þeirri röksemdafærslu sem felst á bak við kafla í grg. sem fylgir þessari till., með leyfi hæstv. forseta:
„Umr. um Íslenska aðalverkataka hafa á undanförnum árum og áratugum mjög blandast saman við almennar umr. um utanríkismál. Gagnrýnendur þessa reksturs hafa jafnað verið — mjög gjarnan a.m.k. — andstæðingar markaðrar stefnu Íslendinga í varnar- og öryggismálum. Af þessum sökum hefur umr. um þessi viðskipti jafnan koðnað niður. Flm. telja að þessu þurfi að breyta“ o.s.frv.
Hér er ekki verið að gagnrýna þá staðreynd, að öllum kröfum okkar sósíalista og Alþb.-manna um að rannsókn af þessu tagi fari fram hefur verið synjað aftur og aftur og aftur. Það er í raun og veru verið að segja að slíkt hafi verið ósköp eðlilegt. Það er verið að segja að við skulum ekki njóta sömu lýðréttinda og aðrir, sama hvort er um að ræða þm. eða aðra. Og það er í samræmi við þessa niðurstöðu sem áframhaldið verður svona:
„Flm. telja að þessu þurfi að breyta, úttekt á þessum rekstri þurfi að fara fram óháð almennum skoðunum á utanríkismálum.“
Síðan er tekið fram, að flm. þessarar till. eða þeir, sem standa á bak við kröfuna núna, séu ekki neinir þeir menn sem nefna mætti því illræmda nafni kommúnista, heldur heiðarlegir og sannir stuðningsmenn NATO. Og síðan kemur gamalkunna romsan um samstarf, samstöðu og samvinnu með öðrum lýðræðisþjóðum. Þetta er náttúrlega tekið saman í vissum tilgangi.
Þeir, sem áður hafa borið fram þessa kröfu, hafa verið andstæðingar aðildar að NATO, en eftir þessu orðalagi að dæma er niðurstaðan sú, það sem verið er að læða inn hjá fólki, að þeir hafi verið andstæðingar samvinnu Íslendinga við aðrar lýðræðisþjóðir. Allt er þetta heldur ómerkilegt og einum of ómerkilegt til þess að ég taki þegjandi og hljóðalaust því sem kemur úr þessari átt — frá þeim manni sem næst hetur talað undanfarið um heiðarlegan málflutning o.s.frv. Ég er reyndar alveg sannfærður um að hv. 1. flm. þessarar till. veit að við, sem höfum haft uppi þessar kröfur, höfum gert það æðilengi. Ég er a.m.k. sannfærður um að þess háttar skilningur ríkir á milli okkar persónulega að hann veit að það er æði langt síðan ég fór að byrja á því. Ætli hann hafi ekki verið rétt um það bil að komast úr vöggu þegar ég byrjaði á þessu. Það er ekki í rauninni sprottið af neinum annarlegum ástæðum. Það er sprottið af þeirri sömu réttlætiskennd og ég trúi að sé þrátt fyrir allt á bak við þessa tillögu.
Ég vil vekja afhygli á því, — og sakna þess reyndar að ekki skuli vera fleiri viðstaddir til þess að ræða það stóra mál, — að tiltekinn hluti þessarar þjóðar hefur aldrei fengið sömu viðurkenningu í augum ráðandi afla í þjóðfélaginu og annað fólk, einfaldlega vegna þess að þessi hluti, sem ég nú nefndi, hefur verið á móti hinni opinberu pólitík ráðandi afla, hinni opinberu stefnu að eiga aðild að hernaðarbandalagi og leyfa herstöð á Keflavíkurflugvelli. Við, sem höfum staðið gegn aðild að NATO og gegn herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, höfum alla tíð orðið að sæta því, að af hálfu þeirra, sem mestu hafa ráðið, höfum við verið flokkaðir sem annars og þriðja flokks Íslendingar. Og það er til skammar að mínum dómi og veldur mér sérstaklega miklum vonbrigðum, að þegar heyrast nýjar raddir á þingi sem boða ný viðhorf, nýjan skilning og meiri sanngirni, þá skuli ekki verða breyting á þessu, heldur þvert á móti, það er japlað á þessu sama og ýtt undir það hið sama.
Þessu höfum við orðið að sæta og þessu höfum við sætt þrátt fyrir allt, að sjálfsögðu vegna þess að í hjarta okkar vissum við alltaf miklu betur en hinir þóttust vita, að ef á að flokka heiðarleika og sannar tilfinningar varðandi stöðu þessarar þjóðar í heiminum, þá komum við ekki út sem annar eða þriðji flokkur. Við áttum þetta m.ö.o. við okkar eigin samvisku og munum að sjálfsögðu halda áfram þessu nuddi þangað til yfir lýkur á einhvern hátt.
Flm. þessarar till. þurfa ekki að óttast að við, vegna þess að þeir eru stuðningsmenn NATO, förum að gera einhverjar athugasemdir við málflutning þeirra eða hvað á bak við kann að felast. Við styðjum að sjálfsögðu þessa till. — svo mikið get ég a.m.k. sagt um sjálfan mig. Hins vegar kunna að vera einhverjir tæknilegir erfiðleikar á því að utanrmn. taki þetta að sér. (Gripið fram í.) Ég veit ekki hvað hv. þm. á við með þessu. Erum við að ræða um afstöðu einhvers tiltekins þm. utan af landi? Það á að staðfesta það, sem ég lýsti hér áðan að hefði valdið mér vonbrigðum.
Við skulum endilega fara að venja okkur af þessu og standa saman tortryggnilaust um þau mál sem horfa til framfara fyrir þessa þjóð, ekki hvað síst þau sem horfa til betra siðferðis fyrir þessa þjóð. Ég átti von á því að með vissum breytingum, sem urðu á þingmannaliði hér, mundi það gerast. Ég á von á því enn þá. En því miður er ekki að sjá á röksemdafærslunni sem fylgir þessari till., að þær vonir ætli að rætast að fullu. Ég tek um leið fram, að ég tel að sá maður, sem er 1. flm., og líka sá sem er númer tvö, báðir tveir stuðningsmenn NATO, báðir tveir farandi villur vegar í utanríkismálum, báðir tveir þeir glópar í utanríkismálum að þeir hafa trú á að svokallað varnarlið hafi einhverja þýðingu fyrir okkur Íslendinga, — þrátt fyrir að báðir tveir eru þessir glópar og báðir tveir fara svona villir vegar, þá get ég litið á þá sem samherja mína í þessu máli og fleiri góðum málum.