22.02.1979
Sameinað þing: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2742 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)
51. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll
Flm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Mér skilst að að loknum þessum þingfundi fari málið til atkvgr. og fái skjótari afgreiðslu en það mál sem hér var síðast á dagskrá.
Ég vil segja það um mál síðasta ræðumanns, sem ég hef ástæðu til að meta mikils persónulega, að ég virði til hlítar skoðanir hans á utanríkis- og öryggismálum þjóðarinnar, en ég krefst þess líka að hann virði skoðanir mínar á þeim málum með sama hætti. Það eru nákvæmlega þau niðurlagsorð, sem hann lét falla síðast, sem staðið hafa fyrir þrifum úttekt á málum eins og viðskiptaháttunum í kringum Keflavíkurflugvöll, sem eru einangrað mál, — tilraunin til að blanda þessu saman á trúarbragðalegan máta við aðstöðuna til almennra öryggismála íslensku þjóðarinnar. Ég endurtek það, að ég virði skoðanir hans. Ég veit að þær eru af tilfinningalegum og rómatískum ástæðum fyrst og fremst og eiga ekkert skylt við sögu þessara mála, ekkert skylt við Brynjólf Bjarnason eða það fólk sem í kringum hann var á sínum tíma. Hugmyndir hv. þm. Jónasar Arnasonar eru runnar upp úr íslenskri sveit, íslenskri þjóðerniskennd og íslenskri rómantík. Allt þetta ber að meta, þó að draga megi aðra þætti — þ.e.a.s. skynsemisþætti þess — í efa. En ég endurtek það, að á sama hátt og ég virði skoðanir hans krefst ég þess af honum að hann virði skoðanir mínar.
Kjarni málsins er samt sá, að þetta er ekkert höfuðatriði í þessu máli. Við eigum að draga skýr mörk þar á milli. Við flm., sem báðir höfum aðrar skoðanir en Jónas Árnason, skoðanir sem meiri hluti þjóðarinnar hefur reynst hafa á þessum efnum, viljum skilja í hvívetna þarna á milli, þrátt fyrir tilraunir þeirra, sem hafa hagnast á þessum viðskiptum, og eins hinna, sem hafa verið á móti markaðri stefnu í öryggis- og utanríkismálum, að blanda málum saman í tíma og ótíma með þeim afleiðingum að þau hafa staðið í stað árum og áratugum saman. Það eru ný sjónarmið að skilja þarna alfarið á milli, og það bið ég Jónas Árnason að reyna að skilja óski hann eftir árangri í þessum málum.
Hv. þm. Jónas Árnason sagði að hann og hans líkar hefðu verið flokkaðir sem annars og þriðja flokks Íslendingar. Fyrir mitt leyti — og ég veit að ég tala þar fyrir hv. 2. flm. þessarar till. líka — vil ég mótmæla þessu. Það hefur ekkert komið fram sem flokkar hann eða hans líka sem annars, að ég ekki tali um sem þriðja flokks Íslendinga. Kjarni málsins er óvart sá, að með þingræðislegum hætti, — það má deila um með hverjum hætti þingræðið vinnur, — en með þingræðislegum hætti hefur þetta verið meirihlutaskoðun íslensku þjóðarinnar. Og þó að Jónas Árnason vegi þungt, þá getur hann ekki ætlast — (Gripið fram í: Hvað hefur verið meirihlutaskoðun íslensku þjóðarinnar?) Sú stefna sem mörkuð hefur verið í varnar- og öryggismálum. Hún hefur verið tekin af meirihluta í þessari stofnun.
Ég skal vera fyrstur manna til að taka undir það, að um margt er þingræðið þungt í vöfum og lýðræðið mætti vera virkara, og við erum að reyna að gera breytingar á samfélaginu með margháttuðum tillöguflutningi í okkar flokki a.m.k. En kjarni málsins er sá, að þó að Jónas Árnason vegi þungt getur hann ekki ætlast til þess, að minnihlutaskoðun hans verði ráðandi meðal þjóðarinnar. Skoðanir hans eru virðingarverðar og eiga allt gott skilið. En það er satt að segja fullmikil tilætlunarsemi, að skoðanir minni hluta verði ráðandi skoðun meðal íslensku þjóðarinnar. Ég skil mætavel að Jónasi Árnasyni sé mikil alvara, og ég met alvöru hans mikils. En eins og ég segi: Þetta er rómantík sprottin upp úr sveit og af ást og umhyggju fyrir íslenskri náttúru og íslensku umhverfi. Þetta hét íhaldsstefna á 19. öld. Ég met þessa íhaldsstefnu mjög mikils, þekki tilfinningalega sögu hennar, en tel að hún eigi ekki við í þessu tiltekna máli.
En í guðs bænum bið ég hv. þm. um að gera sér ljóst að þetta eru tvö aðskilin mál. Við skulum fjalla um þau sem slík. Hann hefur rétt til að hafa sínar skoðanir, ég hef rétt til að hafa mínar skoðanir. Við skulum virða hvor annan og vinna saman að því sem við þó erum sammála um.