22.02.1979
Sameinað þing: 57. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2745 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

51. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ef það hefði verið búið að vélrita af segulbandinu og afhenda mér þessi ræðulok hefði ég getað látið þau nægja sem mín ræðulok. Ég lauk ræðu minni nákvæmlega í þessum dúr áðan. Ég tók það einmitt fram, og það var í tengslum við vissa fordóma sem höfðu áður ríkt gagnvart ónefndu fólki sem hafði barist gegn þessari spillingu á Keflavíkurflugvelli, að mig varðaði ekkert um hvort þeir menn, sem flyttu þessa till., væru með eða á móti NATO. Ég tel sjálfsagt mál að styðja þetta. M.ö.o.: sú ásökun, sem ég fékk yfir mig áðan, hefur ekki við nokkur rök að styðjast, heldur þvert á móti. Ég lauk ræðu minni með yfirlýsingu þess efnis, að sjálfsagt væri að standa saman um þessa tillögu.

Það er afskaplega gaman að heyra þegar hv. þm. Vilmundur Gylfason gerist heimspekilegur. Ég held að stundum lesi menn sér til óbóta í heimspeki. Það þykir „rómantík sprottin upp í sveit“ að vera á móti herstöðinni á Keflavikurflugvelli og aðild okkar að NATO. Ekki veit ég af hver ju þetta er endilega rómantík sprottin upp í sveit. Ef þetta á að snerta mig eitthvað persónulega, þá er það ekki rétt að ég sé alinn upp í sveit. Sú rómantík, sem ég kynni að dragnast með, væri þá sprottin upp á Hverfisgötunni og Bergstaðastræti og ekkert mjög langt frá því, hvort sem það væri rómantík, realismi eða eitthvað annað, sem hv. þm. Vilmundur Gylfason kynni að dragnast með.

Það er gaman að heyra svona lagað. Menn slengja fram frösum eins og rómantík o.s.frv. og það er ekkert nánar útskýrt. En ég vara við þess háttar hroka eins og t.d. fylgdi með áðan, þegar var verið að sálgreina hv. 4. þm. Vesturl., Jónas Árnason: Ég hef kynnt mér þær stefnur sem uppi voru á 19. öldinni. Mér væri ekki skotaskuld úr því að sálgreina Jónas Árnason í krafti þeirrar miklu þekkingar sem ég hef aflað mér á vissum heimspekistefnum á 19. öld. — Við skulum endilega varast svona menntunarbelging. Og nú er ég að vísu ekki að tala aðeins við Vilmund Gylfason, heldur æðimarga aðra sem riðlast um í þessu þjóðfélagi fram og aftur með háskólaþekkingu sína og þykjast vera yfir annað fólk hafnir. En það er önnur saga. Ef ætti að taka það mál fyrir kæmu reyndar fleiri flokkar þar við sögu en Alþfl.