26.02.1979
Efri deild: 59. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2749 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)
Umræður utan dagskrár
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykn. hreyfði hér málefni sem mjög er ofarlega í hugum almennings nú þessa dagana varðandi þær verðsveiflur sem hafa orðið á þessum innflutningsvörum, olíu og bensíni, og hafa menn náttúrlega miklar áhyggjur af slíku. En í sambandi við svo stórkostlegar verðsveiflur sem hér hafa orðið kemur óneitanlega upp í huga manns spurning um hvort við þurftum að vera svona berskjaldaðir fyrir þessum verðbreytingum. Við erum með þrjú stór olíuinnflutningsfyrirtæki og frá leikmanns sjónarmiði virðist hafa legið alveg ljóst fyrir, að það gæti komið til mjög verulegrar hækkunar á þessari vöru. Þá kemur spurningin í huga manns: Af hverju voru ekki gerðar ráðstafanir til þess að kaupa verulegar birgðir af þessari vöru til þess að við lentum ekki í svona ógöngum. Þó að við hefðum þurft að taka erlent lán til þessara kaupa, þá tel ég að það hefði ekki átt að vera neitt umhugsunarefni, og erlent lán til skamms tíma til þess að kaupa 30–40–50 þús. tonn af þessari vöru hefði áreiðanlega verið auðvelt að fá. Ég vil gjarnan fá skýringar á því, af hverju ekki var reynt að mæta svona markaðssveiflum með skynsamlegum ráðstöfunum eins og þeim sem ég hef verið að lýsa.
Ég hef verið að reyna að afla mér upplýsinga um hvernig hafi verið ástatt með geymslurými fyrir innflutning eins og ég hef verið að minnast á núna. Mér hefur verið tjáð að birgðageymslur olíufélaganna séu sæmilega settar hvað þetta snertir, við séum nokkuð birgir af þessum vörum. En mér hefur einnig verið tjáð að við hefðum getað fengið aðgang að mjög góðu og miklu geymsluplássi sem varnarliðið á uppi í Hvalfirði.
Mér finnst, þegar farið er að íhuga svona mál, rétt að benda á að þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrirsjáanlegar verðhækkanir á erlendum markaði koma ákaflega illa við okkur. Ég minnist þess, að 1973, fyrir olíukreppu þá, var yfirleitt fyrirsjáanlegt að öll hráefni og öll aðföng til iðnaðar og til atvinnurekstrar, veiðarfæri og annað mundu hækka stórkostlega. Hvernig var því mætt hér hjá okkur? Innflytjendur hefðu haft tíma og leyfi til þess að kaupa slíkar vörur með ákveðnum gjaldfresti, allt upp í 6–8 mánuði. En í staðinn fyrir að auðvelda innflytjendum að afla nauðsynlegra birgða af þessum vörum var þessi lántökuheimild eða þessi gjaldfrestsheimild skert, þannig að fresturinn var styttur niður í 4 mánuði. Þetta gerði það að verkum að menn voru miklu verr búnir til að mæta þeim verðhækkunum sem komu síðar af því að birgðirnar voru miklu minni.
Þetta vildi ég láta koma fram hér í tilefni af þeirri umr. sem hefur farið hér fram utan dagskrár.
Auðvitað er, eins og hv. 4. þm. Reykn. tók fram, einkabifreiðin að verða einn þarfasti þjónn þjóðfélagsins. Það er gífurlegt atriði fyrir einstaklinginn að geta rekið bifreið sína með viðráðanlegum kostnaði. Mér finnst að það væri þó ekki úr vegi að reyna að leysa það mál á þann veg, að einhver ákveðin upphæð væri skattfrjáls eða frádráttarhæf á skattframtali hvers og eins einstaklings í sambandi við rekstur bifreiðar. Það mætti ákveða þá tölu í árslokin því að þá væri hægt að taka tillit til allra verðsveiflna og verðbreytinga, sem hefðu orðið á árinu, og miða þetta við skynsamlega nýtingu. Slíkt fyrirkomulag ætti að gilda fyrir alla sem ættu slíkar bifreiðar, og þetta ætti að vera innan skynsamlegra takmarka. Fram yfir það sé ég ekki ástæðu til þess að það megi ekki verðleggja bensín í svokallaða snattkeyrslu og rúntkeyrslu og annað í samræmi við eðlilegt markaðsverð. Það er ekkert óeðlilegt að menn borgi full gjöld ef um slíka óhófsnotkun er að ræða. Við eigum einmitt að reyna að miða skattheimtu okkar til ríkissjóðs sem mest á þann veg að skattleggja eyðsluna, en vernda frekar og stuðla að og gera aðlaðandi sparnað í þjóðfélaginu.