30.10.1978
Efri deild: 9. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

48. mál, félagsheimili

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju yfir því, hve góðar undirtektir þetta mál fær, sem okkur flm dylst ekki að er mál sem þörf er á að hreyfa hér á hv. Alþingi. Ég vil taka undir það sem hér hefur raunar komið fram áður, að þótt þessi þáttur í sambandi við félagsheimilin fjalli ekki um stórar fjárhæðir, þá getur hann skipt miklu fyrir menningarlíf úti um landsbyggðina. Það er gert ráð fyrir því, að á árinu 1978 verði sem næst 12 millj. kr. í sjóðnum, þannig að hér er um þó nokkra fjárhæð að ræða.

Það eru mörg menningarsambönd og félagasambönd úti um land sem gera sér ekki grein fyrir því, að þetta fjármagn er til og það sé möguleiki að sækja þarna um styrk, vegna þess að þetta er ekki afmarkað nægjanlega í lögum svo aðgengilegt sé. Þess vegna er þörf á því að færa þetta til betri vegar, og ég sé ekki að það sé neitt við það að athuga að aðgreina þennan þátt í lögunum um félagsheimili.

Hins vegar vil ég taka undir það með hv. 5. þm. Vestf. og raunar hv. 2. þm. Austurl. einnig, að það er löngu orðið tímabært að endurskoða lög um félagsheimili almennt. Ég vil sem sagt undirstrika það, að e.t.v. væri eðlilegt að þær umr., sem hér fara fram um þau þrjú lagafrv. um félagsheimili sem þegar hafa komið fram á hv. Alþ., verði til þess, að hv. alþm. taki til athugunar að láta fara fram raunhæfa endurskoðun á félagsheimilalögunum almennt. Það lagaform, sem búið er við í dag, er að mínu mati ekki nógu gott, að þó að ég sé ekki með því að telja að þeir, sem veita Íþróttasjóði forstöðu, geri ekki það sem í þeirra valdi stendur til þess að úthluta úr þessum sjóði réttilega, þá þarf samt sem áður að gera gleggri skil um félagsheimili og Félagsheimilasjóð og eflingu hans. Ég álit að þetta sé það stórt mál, ekki síst fyrir dreifbýlið, að taka þurfi þetta mál til endurskoðunar sem allra fyrst. En ég legg áherslu á það, að hér er um lítið mál að ræða, en gott mál, sem er þörf á að nái fram að ganga á þessu þingi.