26.02.1979
Efri deild: 59. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2764 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)
194. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að fara um þetta mál nokkrum orðum.
Um heimild til dragnótaveiða í Faxaflóa hafa staðið miklar deilur á undanförnum árum. Niðurstöður þessara deilna hér á hv. Alþ. hafa um árabil legið fyrir í því ákvæði laga, að þrátt fyrir almenna heimild sjútvrh. til að veita leyfi til dragnótaveiða skuli sú heimild þó ekki ná til Faxaflóa. Ástæðuna til þess, að sérstök ákvæði voru látin gilda um Faxaflóa í þessu efni, má rekja til þess, að þeir, sem að setningu þessa ákvæðis stóðu, töldu sig hafa fulla vissu um að Faxaflói væri sérstök uppeldisstöð ungfisks, sérstaklega ýsu, kola og lúðu. Sú skoðun hafði komið mjög greinilega fram í þeim gögnum sem Íslendingar lögðu fram þegar þeir fengu samþykki fiskveiðiþjóða við Norður-Atlantshaf fyrir því að friða Faxaflóa fyrir togveiðum áður en landhelgin var færð úr 4 mílum við Ísland, áður en landhelgislínan var dregin þvert yfir flóa og firði. Þessi gögn, sem byggðust á mjög ítarlegum rannsóknum, rakti ég rækilega þegar deilur stóðu hér á hv. Alþ. um heimild til togveiða í Faxaflóa fyrir um það bil áratug, en þá tók ég mjög ákveðna afstöðu gegn heimildum til togveiða og dragnótaveiða í Faxaflóa. Ég er þess líka fullviss, að sú friðun sem átt hefur sér stað undanfarin ár í Faxaflóa hefur haft veruleg áhrif til aukningar fiskigengd í flóanum og stuðlað að uppvexti ýsu, en árangur þess hefur skilað sér í aukinni veiði annars staðar við landið.
Þegar yfir stóðu þær deilur, sem leiddu til þess friðunarákvæðis sem hér er lagt til að breyta, var möskvastærð veiðarfæra með þeim hætti að ungviði og uppvaxandi fiski stafaði veruleg hætta af. Sú stórfellda rýrnun hrygningarstofns nytjafiska, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, hefur gert ýmsar friðunarráðstafanir óhjákvæmilegar, þ. á m. verulega aukningu möskvastærðar í veiðarfærum, og enginn vafi er á því, að aukin möskvastærð er hvað raunhæfasta friðunaraðgerðin. Þegar fyrri ákvarðanir um bann við dragnótaveiði í Faxaflóa eru nú teknar til endurskoðunar er óhjákvæmilegt að líta á þá þróun sem orðið hefur varðandi möskvastærðir veiðarfæra, sem þýðir einfaldlega t.d. varðandi dragnótina að hér er ekki lengur um sama veiðarfæri að ræða.
Ef unnt á að vera að hlífa þorskstofninum verður að beita til þess öllum tiltækum ráðum, þ. á m. að sleppa engu tækifæri til þess að beina bátum að öðrum fiskstofnum sem ekki eru eins illa farnir og jafnvel vannýttir, svo sem kolastofninn er hér í Faxaflóa. En í heimildum til slíkra veiða, kolaveiða í dragnót, þyrfti að setja ákvæði um hámarkshlutfall annars afla, þ.e.a.s. þorsks og ýsu, í veiðinni.
Þó að ég hafi beitt mér mjög fyrir því ákvæði í lögum sem bannar dragnótaveiðar í Faxaflóa, er ég tilbúinn að athuga þá till., sem hér liggur fyrir, með hliðsjón af breytingum á möskvastærð og endurmeta þá skoðun, að dragnótaveiði skuli með öllu óheimil í Faxaflóa. Ákvörðunin um bannið var m.a. tekin út frá því mati á veiðarfæri sem dragnótin var þá. Það mat hlýtur að koma til endurskoðunar í ljósi þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á dragnótinni.
Þessi till. hv. flm. hefur verið á döfinni í nokkurn tíma, og ég hef ýtt á það að flutningi till. fylgdi breyting á reglugerð um dragnót á þann veg, að sama möskvastærð verði í nótinni allri og með þeim hætti útilokað að þeim brögðum verði beitt að hnýta fyrir pokann, svo að stærð þess fisks, sem veiðist, ráðist af möskvastærðinni í vængjum, sem er mun minni en í pokanum. Jafnframt hef ég látið í ljós þá skoðun, að rétt væri að heimild væri tímabundin, stæði í tvö ár og yrði að koma aftur til kasta þingsins og ákvörðun um frekari heimildir verði þá skoðuð í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefði af veiðunum. Enn fremur tel ég nauðsynlegt, eins og ég áðan sagði, að setja ákvæði um hámarkshlutfall annars afla en kola í veiðinni, því að tilgangurinn er að gera kleift að nýta hann.
Ég á sæti í þeirri n., sem fær þetta frv. til meðferðar, og þarf því ekki að hafa um það mörg orð nú. Það er vissulega full ástæða til að fara að með gát og hafa jafnvel sérstaklega í huga að þeir, sem ákafast bera nú fram rökin fyrir skaðleysi veiða með dragnót vegna aukinnar möskvastærðar, voru líka allra manna ákafastir í að mæla með dragnótaveiði þegar möskvastærðin var miklu minni, svo að dragnótaveiðin var þá að ýmissa dómi skaðræðisveiðarfæri. Á umsögn þessara aðila er ekki allt byggjandi. Jafnvíst er hitt, að í þessum efnum eiga ekki að gilda trúarbrögð í þá veru að dragnót megi aldrei beita og undir engum kringumstæðum, hvernig sem veiðarfærið er útbúið. Það er ekki um annað að ræða en að horfast í augu við staðreyndir, viðurkenna að dragnót samkv. þeirri reglugerð, sem hér er gert ráð fyrir, er ekki sama veiðarfæri og hún var þegar við ýmsir þm. beittum okkur fyrir því, að bönnuð yrði notkun dragnótar í Faxaflóa. Ég er þeirrar skoðunar, að friðun fyrir því veiðarfæri, sem dragnótin var, hafi gert mikið gagn og þannig hafi verið byggt á raunsæi. Sama raunsæi verður að ætlast til að menn beiti nú við mat á því, hvort heimila eigi veiðar með dragnót eins og reglugerð mun gera ráð fyrir að það veiðarfæri verði. Við ákvarðanir í sjútvn. mun ég a.m.k. reyna að láta slíkt raunsæi ráða afstöðu minni þegar gögn og umsagnir liggja fyrir þar.