26.02.1979
Neðri deild: 53. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2784 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

73. mál, samvinnufélög

Flm. (Finnur Torfi Stefánsson):

Herra forseti. Ég ætla að víkja að nokkrum atriðum, sem komið hafa fram í umr.

Menn hafa gert sér nokkuð tíðrætt um félagafrelsið og hugleitt þá spurningu, hvort þetta frv. sé hugsanlega skerðing á því frelsi. Það er auðvitað rétt, að í stjskr. er félagafrelsið tryggt. Hins vegar er mönnum kunnugt um það líka, að þrátt fyrir ákvæðið um félagafrelsið í stjskr. eru til í íslenskri löggjöf mörg ákvæði og heilir lagabálkar um félög og félagastarfsemi. Menn hljóta því að sjá augljóslega að lagasetning um félög brýtur ekki gegn félagafrelsi, ekki nema efni lagasetningarinnar sé þannig.

Það er iðulega svo, að vegna hagsmuna félagsmannanna sjálfra þarf að setja löggjöf um félagið sem þeir eru í. Þannig er t.d. með hlutafélög. Hlutafélög væru alls ekki eins hagnýt til rekstrar og félagslegrar starfsemi ef það væri engin hlutafélagalöggjöf. Hlutafélagalöggjöfin er auðvitað ekki skerðing á félagafrelsi. Hún er sett vegna hagsmuna þeirra manna sem eru í hlutafélögum, og ástæðan fyrir því, að þau lög eru sett, er náttúrlega sú, að þarna er um efnahagslega starfsemi að ræða, þarna er rekstur í gangi, og það skapar þörf á því að settar séu skýrar og skilmerkilegar reglur um reksturinn til þess að koma í veg fyrir ágreining og skapa réttarreglur um fjárhagsábyrgðir innbyrðis milli félaganna.

Nákvæmlega eins er þetta með samvinnufélagalögin. Þar er verið að skapa samvinnufélögum tiltekin réttindi. Það er ekki verið að skerða félagafrelsið með löggjöfinni um samvinnufélög, ég vona að það sé öllum mönnum skýrt, og þess vegna er fráleitt, jafnvel þó maður komi með frv. til breytinga á lögum um samvinnufélög, að þá sé verið að vega sjálfkrafa að félagafrelsi. Svo er auðvitað alls ekki, nema efni till. sé þess eðlis. Ef efni þessarar till. væri að banna mönnum t.d. að halda fundi í samvinnufélagi, þá mætti segja að það væri skerðing á félagafrelsi. En þegar till. gengur út á að víkka kosningarétt, auka lýðræði og auka vald og afskipti almennra félaga af stjórn samvinnusambands, þá er aldeilis fráleitt að halda að það storki félagsfrelsinu. — Og satt að segja vissi ég ekki hvort ég átti frekar að hlæja eða gráta þegar ég heyrði menn ræða þetta í fúlustu alvöru. Ég heyrði ekki betur en hv. þm. Ellert B. Schram ræddi þessa spurningu í alvöru, þ.e.a.s. hvort þetta bryti í bága við félagafrelsið. Ég veit að ýmsir aðrir ræðumenn hér hafa notað félagafrelsið og þessa spurningu af áróðursástæðum og sem ræðutækni. Ég skil það vel og ekki neinar aths. kannske við það að gera. En ég vona að enginn hafi áhyggjur af því í alvöru að lagaákvæði um aukið lýðræði í samvinnufélögum ögri félagafrelsinu í landinu.

Menn hafa komið með aðra spurningu: Af hverju er lagt til að taka upp meira og betra lýðræði í samvinnuhreyfingunni, en ekki í ýmsum öðrum almannasamtökum og félögum sem til eru í landinu? Þetta er svo sem ágæt spurning, ef menn vita ekki svarið við henni. Ég hélt að allir vissu það svar. Auðvitað er ekki nein þörf á því að breyta lögum um félög nema landslaga njóti um félögin. Engum manni dettur í hug að koma með lagafrv. til að breyta lögum um félög sem alls ekki hafa nein landslög um starfsemi sína. Það hlýtur að vera augljóst mál, að það gilda nú samvinnulög í landinu. Það eru í landinu lög um samvinnufélög, þar sem kveðið er m.a. á um hvernig á að skipa og kjósa í stjórn sambandsins, og það er ekki hægt að breyta þeim nema með lagafrv. á Alþ. Það er ekki hægt að breyta þeim með neinum öðrum hætti. Þetta er fastbundið í landslögum. Hver sá sem vill breyta þeim verður að gera það með frv. á Alþingi.

Menn hafa minnst á Alþfl. í þessu máli. Sá, sem vill breyta lögum Alþfl., þarf ekki að gera það með frv. á Alþ. Það eru engin landslög gildandi um Alþfl. Við, sem höfum starfað í Alþfl., höfum einmitt á undanförnum árum, eins og hv. þm. Vilmundur Gylfason skýrði frá áðan, staðið í mjög viðamiklu og merkilegu lagabreytingastarfi á undanförnum árum. Það hefur ekki verið nokkur þörf á því að koma með það inn á Alþ., því að landslög gilda ekki um Alþfl. og það er engin sérstök almenn löggjöf um Alþfl. Við breytum bara félagslögum okkar í Alþfl.-félögunum.

Sú er ástæðan fyrir því, að nauðsynlegt er að koma með frv. hér á þinginu um samvinnufélög, að það gilda um það lög og ekki er hægt að koma á auknu lýðræði í SÍS né beinum kosningum nema með lagabreytingu. Ég hélt að þetta væri einfalt mál, en umr. hefur gengið þannig að mér hefur reynst nauðsynlegt að útskýra það.

Ég ætla líka að ítreka það, að hér er ekki um nein ný ákvæði að ræða um samvinnufélögin, þ.e.a.s. það er verið að breyta gömlum ákvæðum. Það eru fyrir í löggjöfinni ákvæði um það efni, hvernig á að kjósa stjórnina. Það er ekki svo, að ákvæðislaust hafi verið um þetta hingað til. Það eru nú þegar í lögum ákvæði um hvernig á að kjósa stjórn Sambandsins. Nú er verið að breyta þeim með þessu lagafrv. (Forseti: Mér heyrist aths. hv. þm. vera að verða að ræðu.) Ég skal stytta mál mitt mjög. Ég skal víkja þá að því að svara beinum spurningum sem komu fram í umr.

Í fyrsta lagi var spurt að því, hvort ég hefði gert könnun á áhuga almennra félagsmanna í samvinnufélögunum á þessu efni. Ég get ekki svarað því á annan hátt en hv. þm. Vilmundur Gylfason gerði fyrr í umr. Þetta mál hefur verið til umr. á mörgum fundum sem við jafnaðarmenn höfum verið með um allt land um eins til tveggja ára skeið, og alls staðar hefur málið fengið mjög miklar og góðar undirtektir hjá almennum félögum, sem ég veit að eru samvinnumenn og áhugamenn um þessi mál, og ég er ekki í nokkrum minnsta vafa um að hljómgrunnur hjá almennum félögum fyrir málinu er mjög mikill.

Í annan stað var spurt að því, af hverju sé ekki gerð till. um hliðstæða breytingu í kaupfélaginu sjálfu. Ástæðan fyrir því, að það er ekki gert, er sú, að það er skemmra félagslega milli hins almenna félagsmanns og stjórnar kaupfélagsins en er milli hins almenna félagsmanns og stjórnar Sambands ísl. samvinnufélaga. Þörfin er því alls ekki eins rík á þeim vettvangi fyrir breytingu af þessu tagi. Hins vegar fyndist mér þetta þó koma til álita og má kanna hvort það eru málefnalegar ástæður til þess að gera hliðstæðar breytingar á hverju kaupfélagi um sig. En það er ekki lagt til hér, enda er engin þörf á því. Það er hægt að hafa mismunandi fyrirkomulag. Það er hægt að hafa eitt fyrirkomulag í kaupfélögum og annað fyrir samvinnusambandið.

Hv. þm. Halldór E. Sigurðsson benti á það, að í 31. gr. laga um samvinnufélög segir að æðsta vald í samvinnusambandi skuli vera á félagsfundi þess. Ég er nú ekki með lögin eða lagasafnið hjá mér, en ég veit að þetta er alveg rétt með farið hjá hv. þm. Það er alls ekki ætlun mín að breyta þessu, enda engin till. um það gerð. Ætlun mín er að æðsta valdið verði eftir sem áður hjá félagsfundi, ákvarðanir hans gangi framar ákvörðunum stjórnarinnar. Það er alls ekki vilji minn né tilgangur með frv. að breyta þessu, og ekkert mælir gegn því að þetta samræmist fullkomlega. Mér heyrðist þm. hafa nokkrar áhyggjur af því. Það er ekki ástæða til þess. Þetta samræmist alveg fullkomlega. Það mælir ekkert gegn því að stjórnin sé kosin beinum kosningum og aðalfundur sambandsins sé kosinn með öðrum hætti. Það þarf bara að vera skýrt tekið fram, hvert er hlutverk og valdsvið hvors um sig.

Ég get líka tekið undir það, að það er ýmislegt fleira sem kemur til álita að breyta í þessum samvinnulögum. Ég væri meðmæltur því, eins og kom fram hjá hv. þm. Halldóri E. Sigurðssyni, að fram færi nokkur endurskoðun á lögunum í heild. En það, sem ég er að gera með þessu frv. og við flm., er einungis að taka fyrir það sem okkur virðist brýnast núna, og það þarf alls ekki að þýða að við séum neitt andvígir því að málefnin séu skoðuð nánar síðar meir í heild.