27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2788 í B-deild Alþingistíðinda. (2204)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. febr. 1979.

Formaður þingflokks Alþfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Karls Steinars Guðnasonar, 5. þm. Reykn., sem vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér samkv. 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ólafur Björnsson útgerðarmaður í Keflavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta, er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Bragi Níelsson,

forseti Ed.

Samkv. þessu tekur Ólafur Björnsson útgerðarmaður sæti Karls Steinars Guðnasonar sem 5. þm. Reykn.

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. febr. 1979.

Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Gunnlaugur Finnsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Ég vil óska þess, að kjörbréfanefnd taki kjörbréf Gunnlaugs Finnssonar til athugunar, og mun gefa 8 mínútna fundarhlé meðan kjörbréfið er afhugað. — [Fundarhlé. ]