27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2796 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Það er fyrst og fremst um þingsköp sem ég vildi fá að ræða, vegna þess að eitt meginatriði þess máls, sem hér liggur fyrir, varðar þingsköp og vinnubrögð á Alþingi.

Hér er farið fram á öldungis óvenjulegan hlut og hlut sem hlýtur að draga laglegan dilk á eftir sér, ef á að taka upp þau vinnubrögð sem felast í þeirri beiðni sem hér liggur fyrir nú.

Afbrigði eru auðvitað veitt á Alþ., en þau eru allajafna veitt í sambandi við þá dagskrá sem liggur fyrir þegar um það er að ræða að farið er fram á annan hraða á afgreiðslu máls en gert er ráð fyrir í þingsköpum. Hér er hins vegar um það að ræða að till. er flutt á þinginu sem í rauninni er ekki orðin formlegt þingmál enn. Það vantar að úrskurða um það af þinginu eða forseta, hvernig umr. um þetta mál skuli fara fram. Hér er lögð fram þáltill., sem allir geta auðvitað gert hvenær sem er, og farið fram á að hún verði tafarlaust tekin á dagskrá, áður en úrskurður hefur farið fram um hvernig umr. skuli eiga sér stað í þinginu. Þetta hefur aldrei komið fyrir í minni þingsögu, ég hef aldrei heyrt á þetta minnst, enda er þetta í fullkominni andstöðu við þingsköp. Hér hefur verið lagt fram þskj., og annaðhvort yrði forseti að taka það fyrir á sérstökum fundi í dag, sem einnig væri óvenjulegt, eða hann tæki það fyrir á sérstökum fundi á morgun, sem væri í samræmi við þingsköp, þar sem yrði gengið til atkv. um það eða úrskurðar hér í þinginu af forseta eða þingheimi, með hvaða hætti þetta mál getur orðið að reglulegu þingmáli, rætt við eina umr., tvær umr. eða hvernig á að taka það hér fyrir. Þegar þetta hefur verið gert er að sjálfsögðu í þingsköpunum gert ráð fyrir að hægt sé að fara fram á að mál verði tekið á dagskrá, jafnvel þó að það sé aftar í röðinni en ýmis önnur mál. Gert er ráð fyrir því í þingsköpunum, að þm. geti farið fram á að dagskrá sé breytt og mál séu tekin fyrir í annarri röð en þau eru á dagskrá. En að leita afbrigða á þingi út af þessari till. á meðan hún er ekki orðin formlegt þingmál, það er í rauninni alveg dæmafátt. Ég skal gjarnan greiða því atkv., að þetta mál verði tekið fyrir með afbrigðum eftir eðlilega afgreiðslu málsins að þessu leyti til á morgun. Við því er vitanlega ekkert að segja, ef menn vilja veita þessu máli þann forgangsrétt, að það skuli fært fram fyrir önnur mál og tekið til umr. með venjulegum afbrigðum.

Mér skilst að það geti leikið nokkur vafi á því, hvort þessi till. eigi að lúta hér þeim reglum, að um hana skuli vera tvær umr. eða ein. Þó ætla ég að það sé líklegra að það þurfi að hafa tvær umr. um till., því að varla verður gengið til þjóðaratkvgr. samkv. henni án þess að það hafi fjárhagsleg útgjöld í för með sér, og í þingsköpun er mælt svo fyrir, að það skuli vera tvær umr. um þær till. sem svo stendur á um. Þessi úrskurður á vitanlega að fara fram. Allt annað er óvenjulegt. Ég býst við að menn fari þá að taka upp þann hátt hér á Alþ., að fyrst kveðji menn sér hljóðs utan dagskrár og segi að þeir séu að flytja till. Hún kemur svo inn á borðin á eftir og þá er farið fram á að fá afbrigði fyrir þeirri till. Hvernig færi með afbrigðin ef margir þm. bæðu um slíkt sem þetta? Ætli afbrigðin hafi nokkuð að segja þegar komnar eru 20–30 till. sem eins stendur á um?

Ég vildi sérstaklega gera þessar aths. í tilefni af því sem hér hefur komið fram. Ég mótmæli því, að það geti verið rétt og þingleg meðferð að bera það upp á þessum fundi, hvort veita skuli þessari till. hér forgangsrétt með afbrigðum, en tel eðlilegt að það verði gert á fundi á morgun, þegar búið er að úrskurða hvort hafa skuli eina eða tvær umr. um till. Verði það þá borið upp að leita afbrigða, þá skal ég greiða atkv. með því að hún fái afbrigði megi koma á dagskrá, verði tekin fyrir.

Ég vil líka segja það, að ég ætla að í rauninni sé það, sem þegar hefur gerst í þessu máli, alveg nóg fyrir þann aðila sem flytur frv. till., því að auðvitað vita allir, sem hér eru inni, og reyndar miklu fleiri, að hann er eingöngu að flytja hana til að vekja athygli á sjálfum sér. Hann þarf aðeins að láta vekja athygli á sjálfum sér, það er ekkert annað. Mér fannst hæstv. forsrh. túlka það þannig, að hv. flm. vildi fá að tala. Hann getur fengið að tala við flest tækifæri í þinginu og reyndar.um flest mál. Auðvitað er eingöngu um það að ræða, að verið er að vekja athygli á sjálfum sér með alveg sérkennilegum hætti, og það er hv. flm. till. búinn að gera.

Ég skal ekki ræða þetta frekar að sinni, en áskil mér að sjálfsögðu rétt til að taka þátt í almennum umr. um það undramál sem hér er á ferðinni, því að ég get ekki skilið þennan tillöguflutning á annan veg en þann, að viðkomandi flm. sé það einstakt áhugamál að tefja fyrir afgreiðslu þess frv. sem hann er að látast vilja koma fram, því að auðvitað vita allir að þjóðaratkvgr. verður ekki framkvæmd á minna en svona tveimur mánuðum: að útbúa kjörskrá og ganga til þjóðaratkvgr. Svo vita það líklega allir, nema þá sennilega flm. till., að það verða engin lög sett með þjóðaratkvgr. Þjóðaratkvgr. gerir ekkert annað en lýsa yfir áliti þjóðarinnar á því máli sem hún hefur verið spurð um. Síðan verður að sjálfsögðu að flytja frv. til l. og það verður að fá sína þinglegu meðferð áður en það getur fengið lagagildi. Hér er því á ferðinni mál sem helst miðar að því að skjóta öllu á frest og bíða í næstu 2–3 mánuði. Allt er þetta jafnafkáralegt. Hitt er miklu alvarlegra, ef á að taka upp þau vinnubrögð á Alþ. sem hljóta að draga dilk á eftir sér, ef menn ætla að fara að hafa þann hátt á að kasta fram þingmálum og heimta afbrigði fyrir þeim þá þegar, áður en búið er að úrskurða hvernig málm skuli ræða í þinginu, en þingsköp gera ráð fyrir því, með hvaða hætti á að standa að því að ákveða umræðuformið.