27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég tel að vísu tillögugerð þessa alveg fráleita, en það kynni þó að vera að við frekari umr. um hana tækist stjórnarliðum að verða sér til enn frekari skammar, og með vísun til þess og þeirrar ríku venju að veita afbrigði yfirleitt segi ég já.