27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)

Umræður utan dagskrár

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þessi annars fáránlega till. lýsir ljósar en flest annað því stjórnleysi og þeirri upplausn, sem ríkir í stjórnarherbúðunum, og reyndar uppgjöf ríkisstj. og ríkisstjórnarflokkanna á því að leysa hin stærstu mál sem alla þjóðina varða. Ég tel sjálfsagt að þjóðin fái enn gleggri mynd af þessu ástandi með því að þessi till. fái frekari umr. hér á þingi, og þess vegna segi ég já.