27.02.1979
Sameinað þing: 58. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2227)

Umræður utan dagskrár

Viðskrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það er í sjálfu sér kominn upp nýr flötur á þessu máli frá því að ég bað um orðið áðan. Það liggur fyrir hver er afstaða hv. Alþ. til þessarar till., sem hér var flutt, og þess vegna ástæðulítið að eyða löngu máli í umr. um hana. Það eru þó nokkur atriði, sem komið hafa fram í umr., sem nauðsynlegt er að drepa frekar á.

Það, sem mér finnst einna athyglisverðast við þessar umr. sem farið hafa fram í dag af hálfu hv. þm. Alþfl., er sú ofurtrú — ég vil nefna það trú — sem þeir hafa á frv. hæstv. forsrh. Það er ekki einasta að þetta frv. eigi að leysa úr tiltölulega einföldum efnahagslegum vandamálum, heldur líka að þetta frv., ef að lögum yrði, á að stöðva nánast að segja náttúrulögmálin í veigamiklum atriðum.

Hv. þm. Vilmundur Gylfason notaði það sem rök fyrir nauðsyn þess að flýta afgreiðslu málsins, að olíuverðshækkanir væru að skella yfir. Þetta hlýtur að þýða það, að hann telji að samþykkt frv. hæstv. forsrh. í þeirri mynd, sem það er nú, muni koma í veg fyrir að olíuverðshækkanir skelli yfir í þessu landi. Hv. þm. Vilmundur Gylfason nefndi ástand fiskstofnanna sem alveg sérstök rök fyrir nauðsyn þess að samþykkja þetta frv. hið bráðasta. Í frv. hæstv. forsrh. er hvorki minnst á fiskstofnana né heldur olíuhækkanirnar eins og þær núna blasa við.

Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson notaði þau orð áðan: Ef frv. forsrh. verður ekki samþ., þá — sagði hann í framsöguhætti — ferst Ísland, árangurinn tapast. Ég hef ekki áður rekið mig á það, að forustumenn í stjórnmálaflokki hafi tekið jafnafdráttarlausa trú á nokkurn pappír og hv. þm. Alþfl. virðast hafa tekið á frv. hæstv. forsrh. Síðan notuðu hv. þm. Alþfl. það sem rök fyrir máli sínu, að hér á Alþ. væri pólitískur minni hluti að beita kúgun og ofbeldi til þess að koma í veg fyrir að tiltekinn meiri hluti, á Alþ. fengi sitt mál fram. Þeim Alþfl.-mönnum, sem eftir eru í salnum eftir úrslit síðustu atkvgr., vil ég hins vegar segja það, að þeim er að sjálfsögðu velkomið, ef þeir telja það rétt, og það er þeim raunar skylt, ef þeir telja það rétt, að leggja þetta frv. fram og afgreiða það hér á Alþ., ef þeir telja það þá sáluhjálp í íslenskum efnahagsmálum sem þeir vilja vera láta.

Í ræðu hv. formanns þingflokks Alþfl. var veist mjög harkalega að forustumönnum íslensku verkalýðshreyfingarinnar. Það er ekkert nýtt að af hálfu Alþfl. beri á kala í garð verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi. Við höfum reynslu frá viðreisnarárunum, þegar Alþfl. var í ríkisstj. með íhaldinu, hvernig þá var komið fram við verkalýðshreyfinguna. Hins vegar hefur tekist á síðustu árum innan alþýðusamtakanna mjög gott samstarf meðal forustumanna úr Alþfl. og Alþb. og fleiri stjórnmálaafla. Það virðist nú vera ætlun þessara forvígismanna Alþfl. að spilla fyrir þessu samstarfi í stað þess að það ætti auðvitað að vera höfuðskylda Alþfl. við þær aðstæður, sem nú er við að etja í íslensku þjóðlífi, að reyna að tryggja að þessir flokkar, sem nefndir hafa verið verkalýðsflokkar, hvað sem um þá nafngift má nú segja, standi saman. Það er algjörlega horfið frá því virðist mér á málflutningi forustumanna Alþfl. hér á hv. Alþ. Í stað þess að reyna að stuðla að slíku hafði formaður þingflokks Alþfl. uppi heiftarlegar árásir og ósmekklegar getsakir í garð forustumanna Alþýðusambands Íslands hér áðan. Og forustugreinar Alþýðublaðsins undanfarna daga í garð forustumanna verkalýðshreyfingarinnar bera því vitni, hvaða viðhorf virðast ríkja, þegar til kastanna kemur, meðal forvígismanna og helstu valdamanna Alþfl. um þessar mundir.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. Geir Hallgrímsson sagði áðan: það skylda stjórnarflokkanna að reyna að koma sér saman um texta að frv. sem þeir ætla að flytja. Auðvitað er það skylda stjórnarflokkanna að vinna þannig, en ekki að sá fræjum sundrungar í stjórnarsamstarfið eins og hv. þm. Alþfl. hafa gert hér.

Sú almanakssýki Alþfl. sem hér hefur verið gerð nokkuð að umtalsefni, er ákaflega athyglisverð málfræðileg og pólitísk veila, sem full ástæða væri til að fjalla um í löngum og ítarlegum ræðum. Hv. þm. Geir Hallgrímsson vildi líta svo á að allir stjórnarflokkarnir væru haldnir nú orðið af þessari almanaksveiki. Ég vil bera þetta alveg af Alþb. Þó að þessi sýki kunni að vera smitandi hafa stjórnarflokkarnir ekki setið saman nema í 6 mánuði og Alþb. hefur ekki tekið þessa almanakssótt enn þá. (Gripið fram í: Hún er bráðsmitandi.) Hvað verður í framtíðinni, um það skal ég ekki segja. En hitt er ljóst, að þessi veiki hefur herjað mjög illilega á hv. þm. Alþfl.

Ég tel ekki að ástæða sé til þess, úr því að svona fór um þá atkvgr. sem hér fór fram áðan, að ræða ítarlega á þessu stigi málsins um þessi málefni. Það kemur kannske að því, ef ríkisstj. kemur frá sér sameiginlegu frv., að menn fái að ræða að vild um þessi mál hér á hv. Alþ. Og ég endurtek það, sem ég sagði áðan: Það er skylda stjórnarflokkanna að reyna að stjórna landinu og reyna að koma sér saman um málin.