28.02.1979
Efri deild: 61. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (2263)
203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. minni hl. (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þessi orð og vil tilkynna það, að við sættum okkur við þessa ótvíræðu yfirlýsingu um þetta efni. Enda þótt það sé augljóst að Fiskveiðasjóður verði ekki skaðlaus, þar sem 416 millj. standa, þá er samt að okkar áliti mikil hót að hafa fengið þessa yfirlýsingu og við munum sitja hjá við atkvgr., eins og áður er um talað, en álítum þetta mikils virði.