01.03.1979
Efri deild: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (2276)
137. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Frsm. meiri hl. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Iðnn. klofnaði í þessu máli. Meiri hl., Vilhjálmur Hjálmarsson, Jón Helgason, Ágúst Einarsson, Þorv. Garðar Kristjánsson og Stefán Jónsson, ritar undir meirihlutaálitið, Þorv. Garðar Kristjánsson þó með fyrirvara, en framannefndir fulltrúar mæla með samþykkt frv. án breytinga. Minni hl., hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir, skilar séráliti.
Svo sem fram kom í ræðum okkar allra, ætla ég, sem meiri hl. myndum, við 1. umr. er enginn okkar út af fyrir sig þeirrar skoðunar að taka verðjöfnunargjalds af raforku með þeim hætti, sem ráðgerður er í þessu frv., sé æskileg lausn á vandanum. Öllu fremur má segja að við samþykkjum þessa lausn til bráðabirgða vegna þess að önnur sé ekki tiltæk og í trausti á yfirlýsingar hæstv. iðnrh. um að stefnt sé að varanlegri og skynsamlegri lausn og unnið kappsamlega að undirbúningi hennar. Andmæli, sem fram hafa komið í umsögnum, svo sem frá Sambandi ísl. rafveitna, prýðilega rökstudd og borin fram af frómum huga, eru þess háttar að til þeirra verður aðeins tekið tillit á síðara stigi málsins, er ígrundaðar verða leiðir til þess að jafna aðstöðu rafmagnskaupenda um land allt til frambúðar.
Geta má um bréf frá Rafveitu Siglufjarðar, þar sem andmæli eru raunar eingöngu við það miðuð að undanþiggja Siglfirðinga greiðslu jöfnunargjaldsins. N. gerði sér grein fyrir sérstökum vanda þessarar rafveitu vegna slæmrar fjárhagsstöðu, en telur að þar sem útsöluverð á raforku í Siglufirði er neðan meðalmarkanna sé ekki unnt að greiða þangað verðjöfnunargjald. Fjárhagsvanda þeirrar stofnunar verður að leysa, en eftir öðrum leiðum.
Við okkur blasa nú geigvænleg vandamál sem lúta að verðlagi á orku og þá fyrst og fremst á olíu, — verðhækkun sem skellur nú á okkur eins og öðrum þjóðum. Þessi verðhækkun er raunar vísbending um það sem koma hlýtur. Við eigum það nokkurn veginn víst, að verð á olíu mun halda áfram að hækka og sennilega með vaxandi hraða samtímis því sem framboð á olíunni minnkar af þeirri einföldu ástæðu að hún er á þrotum.
Ég geri ráð fyrir því, að erfitt verði fyrir velflesta að hugsa um vandamál, sem skapast af mjög svo mismunandi verðlagi á raforku á landi hér, án þess að hugsa um þann mismun sem landsmenn búa við í orkuverði yfirleitt. Ég var einmitt þessa dagana að fá hitaveitureikninginn minn heim til mín hér í Reykjavik, þar sem kemur í ljós að meðalhitunarkostnaður á íbúð minni er rétt röskar 4 þús. kr. á mánuði, en við okkur blasir núna að húshitunarhækkunin, sem fólki utan hitaveitusvæðanna er búin af olíuverðshækkuninni, fyrir samsvarandi íbúð nemur rösklega 20 þús. kr. á mánuði.
Ég vil ekki andmæla þeim sjónarmiðum að rétt sé að láta það fólk njóta fyrirhyggju og dugnaðar sem slíkt hefur sýnt af sér á liðnum árum í sambandi við öflun raforku og jarðvarma til þess að hita upp hús. Ég vil að það fólk verði sannarlega látið njóta fyrirhyggju sinnar í nokkru. En svo er komið að ég tel alveg óhjákvæmilegt að við gerum ráðstafanir til þess að jafna aðstöðumuninn að þessu leyti sem viðast um landið. Sjálfur sé ég ekki nokkra leið til þess að gera það í raun og veru með öðrum hætti en þeim að koma á nokkurs konar jöfnunargjaldi og jafna þessum kostnaði niður með einhverjum hætti. En ég ítreka að ég geri mér grein fyrir því, að verðjöfnunargjald af raforku, sem framlengt hefur verið ár eftir ár nú um sinn, er bráðabirgðaráðstöfun. Þessi aðferð við verðjöfnun er ekki til frambúðar, getur ekki orðið það, en eins og stendur eigum við ekki annarra kosta völ að mínum dómi.