01.03.1979
Efri deild: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2887 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)
137. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að geta þess, að 1965, þegar fyrst var lagt á verðjöfnunargjald af raforku, var þeirri framkvæmd eða þeirri tilætlun mjög kröftuglega mótmælt af stjórn Rafveitu Akureyrar. Þessi lagasetning fór því fram gegn eindregnum mótmælum okkar Akureyringa, og ég hygg að fleiri aðilar hafi andæft þessum ráðstöfunum, því að ég held að það hafi verið álit manna að þarna væri ekki valin besta leiðin til þess að ráða fram úr þeim mikla vanda sem Rafmagnsveitur ríkisins voru komnar í og, eins og ég hef áður tekið fram þegar ég hef verið að ræða þessi mál hér, m. a. stafar af félagslegum ástæðum. — Þetta fyrirtæki þarf að þjóna dreifbýlismarkaði, sem engan veginn getur staðið undir þeim mikla kostnaði sem fjárfesting við raforkuframkvæmdir leiðir af sér, og verður því að leita annarra ráða í því sambandi.
Eins og ég hef tekið fram fyrr þegar ég hef verið að ræða þessi mál, er ég alveg öruggur um að aðalorsökin fyrir þessum miklu fjárhagsvandræðum, sérstaklega Rafmagnsveitna ríkisins, er hinn gífurlegi aðstöðumunur í fjármögnun fyrirtækisins. Um það leyti sem þetta frv. var til fyrri umr. í þessari hv. d. lagði ég fram fsp. í Sþ., þar sem ég bað um upplýsingar um hvernig væri háttað fjármögnun hinna ýmsu raforkuvera í landinu. Ég hafði búist við því, að svör við þeirri fsp. mundu liggja fyrir áður en þetta mál yrði afgreitt við 2. umr., en því miður hefur ekki orðið sú raunin á. En til staðfestingar þessum skoðunum mínum vil ég aðeins geta þess, að mér er kunnugt um að af skuldum Rafmagnsveitna ríkisins munu um 6 milljarðar hafa verið um s. l. áramót í svokölluðum vísítölutryggðum skuldabréfum. Með slíkar staðreyndir fyrir augum, að eitt fyrirtæki er með skuldbindingar sem geta borið allt að 50% ársvexti, held ég að það geti ekki vafist fyrir neinum manni lengi að slík fjármögnun nær ekki neinni átt. Það að fara að halda áfram þessari fjáröflun með því að leggja á svokallað verðjöfnunargjald og auka það nærri því um 50%, sem hefur þær afleiðingar að þeir, sem nú gjalda hæst raforkuverð, koma til með að verða enn þá meiri órétti beittir, held ég að hljóti að skýra fyrir mönnum að slíkt geti ekki gengið til áfram.
Þetta er ekki rétt viðleitni til að bæta úr aðsteðjandi vanda. Og það kemur upp í huga manns, þegar verið er að ræða þessi mál, hvort beinlínis álagning á verðjöfnunargjald er ekki orðin í vissum tilfellum hemill á að hlutaðeigandi rafveitur og raforkuver geri nauðsynlegar ráðstafanir til þess með taxtabreytingum og öðru að bæta útkomu sína. Ummæli hv. þm. Hannesar Baldvinssonar í ræðu hans áðan gáfu fyllilega í skyn að svo gæti verið.
Þess vegna, herra forseti, mun ég halda fast við þá ákvörðun mína, sem ég lýsti við 1. umr. þessa frv., að ég mun greiða atkv. gegn samþykkt þessa frv. Ég held einmitt að fall þessa máls hér í hv. Ed. gæti orðið til þess að við tækjumst á við þau vandamál, sem við er að etja og allir eru sammála um að eru mikil vandamál og nauðsynlegt að leysa. Ég held einmitt að ef sú staðreynd blasir við, að þetta frv. verði fellt, verði menn fáanlegri til þess að takast á við vandamálið og leysa það af þeirri skynsemi og þeirri hagsýni sem mundi duga til að þetta mál leystist til frambúðar öllum aðilum til hagsbóta.