01.03.1979
Efri deild: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2888 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

137. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég lýsti afstöðu minni til þessa máls við 1. umr. um málið hér í hv. d. og hef raunar litlu þar við að bæta. Ég vil þó taka sérstaklega undir ræðu hv. 5. þm. Vestf. í dag og undirstrika hið alvarlega misrétti sem íbúar landsins verða við að búa í þessu máli, sem að mínu mati er að verða eitt stærsta vandamál landsbyggðarinnar: 100% hærra raforkuverð og nú bætist við olíuvandamálið. Ég hef dæmi um húseiganda úti á landi, sem greiddi 1978 713 300 fyrir ljós og hita fyrir íbúð sína. Samkv. núverandi upplýsingum mun sami aðili þurfa að greiða í ár um 1.4–1.5 millj. kr. fyrir rafmagn og olíu til íbúðar sinnar.

Ég vil einnig taka undir með hv. 5. þm. Vestf., að nýtt skipulag í orkumálum er mjög aðkallandi. Vil ég leggja áherslu á eitt landsfyrirtæki, er sjái um orkuöflun og aðaldreifingu, og heildsöluverð á orkuverði sem næst svipað hvar sem er á landinu.

Ég get ekki stillt mig um að vekja athygli á ummælum hv. 5. þm. Reykv., þar sem hann lagði sérstaka áherslu á sérréttindi þeirra er búa nú við ódýra orku, þar sem sýnd hafi verið sérstök ráðdeild, dugnaður o. s. frv. við öflun orkunnar á sínum tíma. Heldur hv. þm. að allt það fólk og ráðamenn í landinu, sem búa á orkusvæðum RARIK og Orkubús Vestfjarða, sé annars eða þriðja flokks fólk sem sé gersneytt dugnaði og ráðdeild til framkvæmda og framfara? Ég trúi ekki að hv. þm. hafi þá skoðun. RARIK og Orkubúíð hafa það meginhlutverk að sjá dreifbýli landsins fyrir orku. Aðrir möguleikar voru ekki fyrir hendi, það er ljóst. Verðjöfnun á þessu sviði er því réttlætismál. Það má deila um hvort það verðjöfnunargjald, sem hér er til umr., sé réttasta aðferðin. En ég tel að það ákvæði að hækka um 6% til að jafna húshitun, þ. e. að ná fram verðjöfnun á töxtum til heimilisnota og iðnaðar á svæðum RARIK, sé vissulega spor í rétta átt.

Hér þarf miklu stærri og meiri aðgerðir. Ég vil taka undir það álit, sem hefur áður komið fram við umr. um þetta mál, að athuga eigi nú þegar á hvern hátt væri hægt og hvernig væri hægt að láta stóriðju hér á landi taka verulegan þátt í aukinni verðjöfnun.

Það mætti ræða langt mál í sambandi við þær umr. sem hér hafa farið fram. Ég vil t, d. benda á það eftir ræðu hv. þm. Hannesar Baldvinssonar, að í raun og veru sannaði hann með ræðu sinni um erfiðleika Rafveitu Siglufjarðar að þörfin fyrir nýtt skipulag þessara mála, eitt orkuöflunarfyrirtæki, er orðin mjög brýn. Margar rafveitur sveitarfélaga þurfa nú verulegrar endurnýjunar við og margar þeirra hafa ekkert eða a. m. k. mjög lítið fjármagn til þess að standa undir slíkri endurnýjun.

Herra forseti. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að ég treysti því, að hæstv. ríkisstj. vinni ötullega að því að byggja upp nýtt skipulag orkumála í landinu og hefji aðgerðir til að vinna að því að innlend orka verði sem fyrst allsráðandi til þess að leysa þörf landsmanna á þessu sviði. Ég mun greiða atkv. með þessu frv.