01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2907 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)
202. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa
Gunnlaugur Stefánsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða þau frv., sem hér eru til umr., efnislega að öðru leyti en því að lýsa stuðningi mínum við þetta frv. eins og ráðh. lagði það fram í þinginu fyrir hönd ríkisstj. Aftur á móti ætla ég að gera að umræðuefni brtt. frá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni og Garðari Sigurðssyni.
Ég veit ekki hvort það er tilviljun, að hæstv. ráðh. Alþb. sitja ekki í stólum sínum í þessum sal eða eru ekki viðstaddir. Hér eru á ferðinni óábyrg vinnubrögð af hálfu þingflokksformanns Alþb., hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar, að leggja fram brtt, við frv. sem okkur Alþfl.-mönnum hefur skilist að væri samkomulag um í ríkisstj. og stuðningsflokkum hennar. A. m. k. höfum við ekki vitað betur en að hæstv. þrír ráðh. Alþb. í ríkisstj. hafi samþ. þetta frv. í ríkisstj. og samþykkt að sjútvrh. flytti málið í þinginu fyrir hönd ríkisstj. (Gripið frsm í: Nú gengur ráðh. í salinn.) Nú gengur einn hæstv. ráðh. Alþb. í salinn, rétt er það, og þá getur hann e. t. v. svarað því, hvort hér sé um að ræða brtt. frá þingflokki Alþb. eða hvort hér sé eingöngu um að ræða dúett hv. nm. í sjútvn. Nd. Alþ. Um þetta vil ég fá skýr svör, vegna þess að ef svo heldur fram sem horfir, að um slík áframhaldandi óábyrg vinnubrögð verði að ræða og okkur verði boðið að starfa með svo óábyrgum samstarfsflokki sem Alþb. virðist vera og speglast í brtt. hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar, formanns þingflokks Alþb., þá verður að endurskoða ýmsa þætti í ríkisstjórnarsamstarfinu. Þetta eru vinnubrögð sem ég sætti mig ekki við og vil fá skýringar á, hvort það eru ráðh. Alþb. sem standa að þessu, hvort það er þingflokkurinn allur eða hvort það er eingöngu dúett.