31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
323. mál, málefni áfengissjúklinga
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. 1. liður fsp. er: „Hve mikil brögð eru að því að áfengissjúklingar séu vistaðir erlendis til meðhöndlunar á sjúkdómi sínum?“
Gert er ráð fyrir að fsp. beinist eingöngu að vistun áfengissjúklinga í Bandaríkjunum nú síðustu árin og á því byggist svarið.
Á árunum 1973–1978, til septemberloka, vistaðist fólk í Bandaríkjunum vegna áfengissýki þannig: Árin 1973–1975 samtals 8 karlar, árið 1976 43 karlar og 12 konur, árið 1977 145 karlar og 16 konur, árið 1978 til septemberloka 168 karlar og 43 konur. Samtals eru þetta öll árin, frá 1973 til 1978, 364 karlar og 71 kona eða 435 manns. Þær tölur, sem hér eru taldar, tákna fjölda ferða, en einstakir sjúklingar hafa verið oftar en einu sinni og eru þeir einstaklingar, sem vistunarinnar hafa notið, nokkru færri en tölurnar greina.
Eins og þessi upptalning ber með sér, hefur ferðum sjúklinga farið fjölgandi. Sérstaklega verður að benda á þá fjölgun sem orðið hefur á ferðum kvenna á þessu ári.
2. spurning hljóðar þannig: „Fer vistun slíkra sjúklinga eftir þeim reglum sem greinir í 42. gr. laga um almannatryggingar, nr. 67/1971?“
Vistun þessara sjúklinga fer ekki eftir þessari grein, heldur eftir 1. mgr. 47. gr. almannatryggingalaga, en þar segir svo, með leyfi forseta:
„Nú er samlagsmanni nauðsyn að leita sér lækninga utan samlagssvæðis, og skal þá samlag hans greiða kostnað af því eftir því sem nánar er ákveðið í samþykktum þessum.“ Einmitt vegna þess, að farið er eftir þessari mgr., en ekki hinni, er ferðakostnaður þeirra sjúklinga, sem hér um ræðir, ekki greiddur af almannatryggingum.
3. spurning: „Hve mikill er kostnaður almannatrygginga af sendingu þessara sjúklinga á erlendar sjúkrastofnanir?“
Á því tímabili, sem hér hefur verið greint, hefur kostnaður verið breytilegur og aðallega hækkað vegna gengisbreytinga samfara hækkun á daggjöldum íslenskra sjúkrahúsa. Einnig hefur hann lækkað nokkuð vegna þess að tekið hefur verið upp sem aðalregla, að meðferð skuli hafin á hæli SÁÁ, Sambands áhugamanna um áfengisvandamál, í Mosfellssveit, en það styttir vistunina í Freeport Hospital þar sem þessi vistun fer aðallega fram. Af athugun kemur í ljós, að algengasta tímalengd meðferðar er nú 37 dagar og kostnaður um 600 þús. kr. miðað við núverandi gengi.
4. liður spurningarinnar: „Hversu mikið skortir á að íslenskar sjúkrastofnanir anni vistunarþörf þessara sjúklinga?“
Erfitt er á þessu stigi að svara því, hve mikið skorti á að íslenskar sjúkrastofnanir anni þeirri vistunarþörf, sem hér um ræðir. Af þeim upplýsingum, sem gefnar hafa verið, kemur í ljós, að til þess þyrfti 20–25 sjúkrarúm. Um hitt verður síður sagt, hvort þessi vistun mundi leggjast niður, þótt sjúkrarúmin væru fyrir hendi hérlendis, þar sem í ljós hefur komið að fjöldi sjúklinga leitar frekar lækninga við sjúkdómi sínum með því að fara í annað umhverfi og aðrar stofnanir en þær íslensku sem til eru.
Það er mitt mat, að þegar geðdeild sú, sem nú er í byggingu, er komin í fulla notkun og þegar sú viðbótarbygging, sem fyrirhuguð hefur verið við meðferðardeild á Vífilsstaðaspítala, hefur verið byggð, þá verði nægilegt rými til að sinna þessum þætti heilbrigðisþjónustunnar fyllilega hér á landi, komi ekkert annað til. Ástæðan fyrir því, að ekki hefur verið hafist handa um byggingu fyrir Vífilsstaðadeildina, er að sjálfsögðu sú, að fjárveitingar til gæsluvistarsjóðs hafa farið hlutfallslega mjög lækkandi síðustu ár og þess vegna hefur ekki verið fé fyrir hendi til þeirra framkvæmda. Þá má minna á það, að geðdeild Landspítalans hefur verið mun lengur í byggingu en fyrirhugað var og er enn ekki séð fyrir endann á því hvenær sú stofnun kemst að fullu í notkun.
Ég vil að lokum taka það fram, að þegar kostnaður trygginganna við þessar utanferðir er orðinn slíkur sem raun ber vitni og gæti á þessu ári farið yfir 150 millj. kr., þá hlýtur sú spurning að gerast áleitin, hvort þessu fé væri ekki betur varið til uppbyggingar og eflingar á innlendum sjúkrastofnunum fyrir þessa sjúklinga, þó að ekki megi vanmeta þátt breytts umhverfis í þessum málum. Á þessum vettvangi er vissulega mikið starf óunnið. Má geta þess, að auk meðferðardeildarinnar á Vífilsstöðum, sem áður var vikið að, hafa farið fram lauslegar viðræður á milli heilbrrn. og heimamanna um hugsanleg kaup á húsnæði Kvennaskólans að Laugalandi í Eyjafirði m.a. með vistunarþörf áfengissjúklinga fyrir augum. Er þó allt óráðið enn um áframhald þess máls.