01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2915 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
202. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa
Frsm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég ítreka þær spurningar, sem ég bar fram. Það er knýjandi nauðsyn fyrir samstarfsflokka þá, sem standa að núv. ríkisstj., að fá að vita hvort ekki tíðkist lengur þau vinnubrögð sem ríkisstj. hafa viðhaft þegar um er að ræða jafnmikilvæg stjórnarmál og mál þau sem hér eru rædd, að áður en ráðh. standa að framlagningu stjfrv. á Alþ. séu þau kynnt í þingflokkum viðkomandi stjórnarliða og síðan tekin afstaða til þess, hvort þingflokkarnir ætla að standa að frv. eða ekki. Ég óskaði eftir því við hv. 1. þm. Austurl., að hann gæfi okkur svör við eftirfarandi: Kynntu ráðh. Alþb., sem standa að þessu frv. eins og aðrir ráðh. ríkisstj., þetta frv. ekki í þingflokki Alþb. með sama hætti og ráðh. Alþfl. gerðu í þingflokki Alþfl. og ráðh. Framsfl. gerðu í þingflokki Framsfl. og með sama hætti og ríkisstj. gerði í þingflokki stjórnarandstöðunnar, vegna þess að þingflokki stjórnarandstöðunnar var sýnt þetta frv. áður en það var lagt fram? Var þingflokkur Alþb., einn flokka í þinginu, settur hjá? Fékk hv. þm. Lúðvík Jósepsson, formaður þingflokks Alþb., ekki að sjá þetta frv. fyrr en því var útbýtt til hans þar sem hann sat í sæti sínu? Ég vil endilega fá úr því skorið vegna framtíðarsamstarfs þessara stjórnmálaflokka, hvort ekki megi treysta því að standi ráðh. Alþb. að frv. hafi þeir gengið úr skugga um það áður, hvort frv. nyti stuðnings þm. Alþb. eða ekki.
Ég efa ekki að ráðh. Alþb. hafi kynnt þetta frv. fyrir þingflokki Alþb. Hafi svo verið leikur mér forvitni á að vita hvort það hafi komið fram hjá hv. 1. þm. Austurl., formanni þingflokks Alþb., að hann hygðist flytja þá brtt. sem hann hefur gert. Hafi hv. þm. ekki gert það er hann að sjálfsögðu að taka upp vinnubrögð sem hann sem formaður þingflokks ætti umfram allt ekki að temja sér. Hafi hann hins vegar látið þess getið, að hann mundi hafa þessa afstöðu hér í d., þá eru það vítaverð vinnubrögð ráðh. Alþb. að skýra ekki samstarfsmönnum sínum frá því.
Ég óskaði eftir því, að hv. þm. Lúðvík Jósepsson svaraði þessari spurningu sem formaður þingflokks Alþb. (Gripið fram í: Það er búið að svara henni.) Hann hefur ekki svarað henni enn. Hann getur talað þrisvar við þessar umr., getur væntanlega fengið að gera aths., þannig að hann hefur möguleika á því. Hann getur líka talað þrisvar við næstu umr. Ég ætla að halda áfram að spyrja hv. þm. að þessu þangað til hann annaðhvort svarar eða heykist á því að svara.
Að lokum vil ég geta þess, að fram kom hjá hv. þm. í umr. um lánsfjáráætlun að slíkt mál væri á ýmsum skjölum, plöggum og till. sem ríkisstj. legði fram á Alþ. að hann gæti ekki skilið það, það þyrfti að þýða það. Á hvaða mál vill hv. 1. þm. Austurl. að till. ríkisstj. séu þýddar, svo að hann skilji? Rússnesku? Hvaða þýðingu óskar hv. i. þm. Austurl. að fá á þeim plöggum, sem hann skilur ekki vegna þýðingarörðugleika, frá þeirri ríkisstj. sem hann sjálfur styður? Sé það nauðsynlegt til þess að fá atfylgi hv. þm. við mál, sem ríkisstj. leggur fram á Alþ., að þau séu þýdd á rússnesku, þá er ekki um annað að ræða en Alþ. verði að ráða sér rússneskan túlk.