01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2918 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)
203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Ég tel rétt að lýsa yfir, að eins og hver annar traustur stjórnarsinni styð ég auðvitað þau tvö frv. sem hér hafa verið rædd í dag og nú í kvöld. Ég vil fara eins að og hv. þm. Matthías Bjarnason gerði hér í dag. Mig langar til að ræða þau nokkuð saman, og mig langar til að leitast við að skýra það sem hér hefur verið að gerast í dag með hið fyrra frv.
Þó að ég sé ekki reyndur hér í þinginu, þá þarf enginn að segja mér að það sé venjulegt mál þegar formaður svokallaðs stjórnarflokks flytur brtt. við stjfrv. Hann lýsir yfir í leiðinni engu að síður að hér sé um smámál að ræða. Ég held að skýringin á þessu sé að hluta sú, að það var sagt já já í þingflokknum um daginn og nei nei í dag. Eftir að Alþb. gekk í Möðruvallahreyfinguna fyrir nokkrum árum tók það upp eitt helsta stefnuskráratriði sem þá var kennt Framsfl. og hreyfingar í tengslum við hann og kallað var já-já- og nei-nei-stefna, og það er einmitt það sem við höfum séð í dag. En ég held að skýringarnar á þessu séu fleiri. Eins og þingheimi hefur verið ljóst í vetur, virðist það vera svo og hefur bitnað svolítið á okkur í Alþfl., að hv. 1. þm. Austurl. virðist ekki þola þá sem eru í stjórnmálunum og eru undir fimmtugu. Þannig mun vera að a. m. k. tveir af þremur ráðh. Alþb. eru undir fimmtugu og hann þolir ekki „strákana“ og hann er að hirta „strákana“ alveg með sama hætti og hann hefur verið að hirta okkur í Alþfl. í blaðagreinum og fundið okkur það helst til foráttu, að við höfum aldrei rekið svo mikið sem hænsnabú! Ég er þeirrar skoðunar, að hér sé um að ræða innanflokksmál sem komi efnisatriðum þessa máls nákvæmlega ekkert við, þó að hv. 1. þm. Austurl. gefi annað í skyn, heldur hitt, að hér er verið að hirta þá sem hv. þm. finnst vera „strákarnir“ í ríkisstj., sem eru þó að minni hyggju um margt frambærilegir menn og meira að segja allágætir.
Hv. þm. Sverrir Hermannsson sagði í dag, að hann væri sammála hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, og sagði: „svo skrýtið sem það nú er.“ — Það er ekkert skrýtið. Það er þvert á móti afar eðlilegt. Þeir eru sammála um þetta mál, alveg eins og þeir eru sammála um vaxtasukkið og hvað annað sukk sem hér hefur, að mér hefur fundist, komið til umræðu í vetur. Það, sem er að gerast, er ekkert annað en að bláa íhaldið og rauða íhaldið eru að ná höndum saman. Þeir eru að ganga saman í eina sæng og ef þeir geta eitthvað — sem ég raunar efast um-þá yrði það þokkalegur krógi — eða hitt þó heldur. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni, að það bandalag, sem hér er í uppsiglingu á milli rauða íhaldsins og bláa íhaldsins, sé forboði um aðrar og stærri breytingar sem hér eiga eftir að gerast.
Ég vil segja það, að í þessu máli þá stend ég með hæstv. ráðh. Kjartani Jóhannssyni og Svavari Gestssyni, og ég held að þeir hafi haft svo mikil samráð sem mögulegt hefur verið, eins og hæstv. ráðh. Svavar Gestsson lýsti hér á ábyrgan hátt í dag. Það má segja að það er munurinn á órólegu deildinni í Alþfl. og í Alþb., að það er rétt að við í órólegu deildinni í Alþfl. höfum talað út og við höfum sagt meiningu okkar, en við höfum staðið með þessari ríkisstj. og lyft upp höndum hversu erfitt sem okkur hefur fundist sú ákvörðun vera.
Það er rangt hjá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni að bera þetta saman við umr. um verðjöfnunargjald af raforku, vegna þess að þegar það var kynnt í þingflokkum höfðu allir þingflokkar fyrirvara á því. Mér er fullkunnugt um það, vegna þess að ég hafði það, talaði svo og greiddi svo atkv., svo að það er um allt annars konar mál að ræða heldur en hér hefur verið á döfinni. Órólega deildin í Alþb. fer öðruvísi að. Ég geri ráð fyrir að hún sé í minni hl. í sínum flokki. Allt um það, það hefur stundum verið þungbært að rétta upp hendur, en við höfum gert það. Auðvitað er það svo, að það er fallið til vinsælda að vera maður fólksins og vilja ekki skerða kjör fólksins. En samt er það svo, að stundum þarf ríkisstj. á traustum bakvarðasveitum að halda, og þá sjálfsagt að hún fái þær.