01.03.1979
Neðri deild: 56. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (2313)
203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Eins og kunnugt er af umr. hér undanfarna daga og mánuði, þá er dagurinn 1. mars í dag og fyrir þann dag átti að vera búið að leysa öll efnahagsmál Íslendinga með ákveðnu frv: eða löggjöf sem þeir hv. Alþfl.-menn hafa hampað hér eins og Biblíunni eða Kóraninum, rétt eins og texta sem innihéldi hinn endanlega sannleik. Ísland ferst, sagði formaður þingflokks Alþfl. hátíðlega hér í fyrradag, ef svo illa fer að þetta frv. nær ekki að verða afgreitt.
Nú er þessi stund upprunnin og enn lifir þetta land og þessi þjóð sem betur fer: Og þau tíðindi hafa gerst, þó að þetta frv. hafi enn ekki séð dagsins ljós á Alþ., að hæstv. núv. ríkisstj., sem hefur stundum átt pínulítið erfitt með samkomulagið á eigin heimili, hefur eignast ötula stuðningsmenn hér á hv. Alþ. Órólega deildin í Alþfl., sem skv. yfirlýsingu 7. þm. Reykv. er meiri hl. þingflokksins, styður ríkisstj. heils hugar hér eftir. Þó að það hafi gengið illa fram að 1. mars mun ekki standa á stuðningi þeirra hér eftir. Þrautpíndir munu þeir lyfta upp hendinni með hverju einu sem hæstv. ríkisstj. lætur frá sér fara og verða henni bakhjarlar í hvívetna. Þennan fyrirvaralausa stuðning órólegu deildarinnar, meiri hl. í þingflokki Alþfl., ber ráðh. að sjálfsögðu alveg sérstaklega að þakka.
Í þeim umr., sem hér hafa farið fram í dag, kom þó fram eitt atriði sem ég vil alveg sérstaklega frábiðja mér og ég vona að ég eigi ekki skilið, og það er hól frá meiri hl. í þingflokki Alþfl., sem kallaði okkur ráðh. Alþb. frambærilega og ágæta menn. Ef svo er komið fyrir okkur að flytja verður hólræður um okkur hér af hv. Alþfl. mönnum, þá er illa komið og ég vona að það standi ekki öllu lengur. Ég kom hingað upp til að undirstrika sérstakar þakkir mínar fyrir það, að eftir að 1. mars er kominn og þeir Alþfl.-menn hafa dottið upp fyrir með þjóðaratkvgr. sína, þá skuli þeir fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust ætla að styðja ríkisstj. Fyrir þetta er mér er skylt að þakka, en hitt afþakka ég.