02.03.1979
Sameinað þing: 60. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2922 í B-deild Alþingistíðinda. (2324)
77. mál, leit að djúpsjávarrækju
Flm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj 85 ásamt þeim hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, Pálma Jónssyni og Sverri Hermannssyni till. til þál. um aukna leit að djúpsjávarrækju fyrir Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi. Till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að auka skipulega leit að djúpsjávarrækju, einkum úti fyrir Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi, og hafa í því sambandi samráð við þá útgerðarmenn og sjómenn sem reynslu hafa af veiðum á rækju á djúpmiðum.“
Árið 1969 fundust rækjumið við Grímsey og Kolbeinsey, þau fyrstu sem nefna má djúprækjumið. Fram til 1976 var oft leitað rækju á djúpslóð, en sú leit var með öllu ónóg og ekki nægjanlega samfelld. Á árinu 1976 var gert verulegt átak í þessu efni fyrir forgöngu Matthíasar Bjarnasonar fyrrv. sjútvrh. Farnir voru nokkrir leiðangrar og keyptar voru m. a. frá Færeyjum sérstakar rækjuvörpur, hliðstæðar þeim sem Færeyingar hafa notað við Vestur-Grænland með góðum árangri, en þeir hafa veitt þar þúsundir tonna undanfarin ár af stórri úthafsrækju sem selst á ótrúlega háu verði. Láta mun nærri, ef tekið er mið af nýlegri reynslu hér á landi, að stór úthafsrækja, 70–90 stykki í kg, seljist á nálægt 75% hærra verði en ef stykkjatalan er 120–150 og 50% hærra verði ef stykkjatalan er 90–120 í kg.
Árangurinn af aukinni rækjuleit árin 1976 og 1977 varð umtalsverður. Einkum fundust mið á Dohrnbanka og flákanum norðan hans, en þar veiðist nú stærsta rækja sem veiðst hefur við Ísland, allt niður í 50 stk. í kg. Djúprækjumið, sem nú eru nýtt, eru orðin 5: Dohrnbanki, Norðurkantur, Kolbeinseyjar- og Grímseyjarsvæði og Eyjafjarðaráll.
Ástæða er til að ætla að mati fróðra manna, að víða umhverfis land, einkum úti fyrir Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi, sé að finna djúprækjumið. Sú litla reynsla, sem við Íslendingar höfum á sviði djúprækjuveiða, hendir ótvírætt til að þar sé um að ræða ónýtta auðlind sem getur gefið ótrúlega mikinn afrakstur, auk þess sem aukin áhersla á djúprækjuveiðar gæti dregið úr sókn í ofnýtta fiskstofna, en á því er ekki vanþörf eins og nú standa sakir og hv. þm. er kunnugt um. Flm. þessarar till. vilja vekja athygli á þessu og hvetja til þess, að skipuleg leit að djúpsjávarrækju verði verulega aukin, eins og till. ber með sér.
Sú tilhögun rækjuleitar, sem vænlegust er til árangurs og jafnframt er fjárhagslega hagkvæmust, er að leigja fiskibáta eða togara til leitarinnar. Það er áreiðanlega miklu farsælla að fara þá leið heldur en láta Hafrannsóknastofnunina annast þessa leit að mestu eða öllu leyti. Bæði er útgerðarkostnaður slíkra hafrannsóknaskipa mikill og vinnutími á sólarhring styttri en tíðkast á fiskiskipum. Þessu til viðbótar er áreiðanlega farsælt að skip með reyndum skipstjórnarmönnum séu leigð og Hafrannsóknastofnunin, sem að sjálfsögðu stjórnar leitinni og hefur fiskifræðing um borð, sé með í ráðum. Þannig nýtist starfsreynsla skipstjórnarmanna og fiskifræðinga best og árangur tryggður til frambúðar þegar hagnýta á nýfundin mið.
Í þessu sambandi er rétt að minna á langa reynslu og frumkvæði Snorra Snorrasonar skipstjóra á Dalborgu, eina djúpsjávarrækjutogara Íslendinga á þessu sviði. Að öðrum íslenskum skipstjórnarmönnum ólöstuðum er það staðreynd, að Snorri hefur langmesta reynslu í veiðum á djúpsjávarrækju. Samvinna milli Hafrannsóknastofnunarinnar og útgerðar Dalborgar er því sjálfsögð að mínu mati, ef standa á að leit að djúpsjávarrækju umhverfis landið á hagkvæman og hagnýtan hátt. Í þessu sambandi vil ég minna á að þetta útgerðarfyrirtæki hefur sóst eftir að kaupa nýtt skip til djúpsjávarrækjuveiða og mun það mál nú vera fyrir ríkisstj. Vil ég nota tækifærið til þess að mæla með því, að þetta sjálfsagða mál verði afgreitt sem fyrst. Það hlýtur að vera nauðsynlegt og styrkja þetta útgerðarfyrirtæki mjög að hafa tvö skip til þessara veiða og það mundi áreiðanlega að mínu mati verða til þess, að Íslendingar yfirleitt fengju aukinn áhuga á útgerð á þessu sviði.
Ég þarf ekki, herra forseti, að hafa um þetta mál frekari orð. Till. þessi er mjög einföld og auðskilin og ég vænti þess, að þetta mál fái góðar undirtektir, en ég geri till. um að þessu máli verði, þegar umr. er frestað, vísað til atvmn.