31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (233)
323. mál, málefni áfengissjúklinga
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil í tilefni af þessari athyglisverðu fsp. og svörum við henni leyfa mér að minna einu sinni enn á málefni gæsluvistarsjóðs. Þau hafa lengi verið fyrir borð borin á undanförnum árum. Ef betur hefði verið staðið að verðtryggingu þess sjóðs, þá væri vandamálið ekki eins stórkostlegt og hæstv. félmrh. var að lýsa.
Það munu vera u.þ.b. 10 ár síðan ég bar fram frv. um að auka tekjur gæsluvistarsjóðs á þann hátt, að hann fengi hluta af áfengisgróða. Taldi ég nokkuð eðlilegt, að þarna væri samband á milli, og ég hygg, að menn hafi út af fyrir sig ekki dregið það í efa. En þá var ekki talið fært að eyrnamarka þann tekjustofn, sem ég fór fram á og þeir sem fluttu frv. með mér, til þessara ákveðnu verkefna. Þá var og hafði nokkuð lengi verið tillag Áfengisverslunar ríkisins 7.5 millj. kr. til gæsluvistarsjóðs. Þetta hefur mikið verið lagað, úr því skal ekki dregið, og á yfirstandandi fjárl. er framlagið 63 millj. kr. Ég efa engu að síður að þetta framlag sé rífara til framkvæmda en það framlag var, sem í lögum var og er raunar enn, 7.5 millj. kr., þegar þessi viðleitni mín hófst. Ég vil sem sagt nota tækifærið, sem þessi umr. og þessi fsp. hefur gefið, til þess að minna enn einu sinni á málefni þessa sjóðs sem ætti að geta, ef rétt er á haldið, verið nægileg aðstoð og nægilegar ráðstafanir af Íslands hálfu til að sinna því vandamáli sem hér hefur verið vakin athygli á.