02.03.1979
Efri deild: 65. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2930 í B-deild Alþingistíðinda. (2340)

203. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Hér kemur aftur til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á l. um útflutningsgjald af sjávarafurðum, þar sem í meðförum Nd. hefur orðið sú breyting á 3. gr. frv., sbr. brtt. á þskj. 412, að aftan við 3. gr. bætist ný mgr. þess efnis, að ákvæði þessara laga gildi til ársloka 1979 og frá 1. jan. 1980 gildi eldri ákvæði laga nr. 5/1976. Rökin fyrir þessari breytingu eru þau, að sú breyting, sem gerð er að því er varðar olíugjaldið, nær einungis til ársloka 1979, þess vegna sé eðlilegt að þessi breyting sé gerð á lögum um útflutningsgjald og gildistími breytinganna sé hinn sami, þ. e. til ársloka 1979.

Ég mæli með því, að frv. með þessari breytingu verði samþ. í deildinni. — (Fundarhlé.]