05.03.1979
Neðri deild: 59. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2956 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)
95. mál, leiklistarlög
Frsm. (Svava Jakobsdóttir):
Herra forseti. Tilgangurinn með þeirri lagabreyt., sem hér er lögð til, er að tryggja að frjáls atvinnuleikhús fái stuðning þann sem um getur og gert er ráð fyrir í leiklistarlögunum. Það var tilgangur löggjafans þegar lögin voru sett, að fjárveitingar næðu einnig til frjálsrar leiklistarstarfsemi, en þeir, sem með framkvæmd þessara laga fara, telja að ekki sé nógu skýrt gengið frá því í lögunum. Þessi breyting er því lögð til til þess að taka af allan vafa um það.
Þetta frv. hefur verið afgr. frá Ed. og í meðferð Ed. var sú breyting gerð, að lögin skyldu einnig ná til óperustarfsemi.
Allshn. Nd. skilar nál., sem hún stendur öll að, nema hvað tveir nm. skrifa undir með fyrirvara, þeir Ólafur G. Einarsson og Ellert B. Schram. N. leggur til eina breytingu og hún varðar 4. gr. N. leggur til að I. tölul. 4. gr. orðist svo:
„Að vera vettvangur umræðna um leiklistarmál og stuðla að því að leiklistarstarfi séu búin þroskavænleg skilyrði.“
4. gr. fjallar um hlutverk leiklistarráðs. Um I. tölul. í núgildandi lögum urðu miklar umr. hér á sínum tíma. Það er rétt að ég lesi hann eins og hann stendur nú í lögunum, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur að leiklistarráð skuli „vera vettvangur skoðanaskipta og umræðna um leiklistarmál og stuðla að stefnumótun á því sviði á hverjum tíma.“
Það var aðallega þetta orð: „stefnumótun“, sem menn töldu að ýmsu leyti varhugavert að festa í lögum. Sjálf var ég þeirrar skoðunar á sínum tíma og er enn þeirrar skoðunar. Ég held að bestu rökin í því máli séu þau, að orðið „stefnumótun“ getur verið villandi vegna þess að . „stefna“ er fagorð í listum. Við tölum um raunsæisstefnu, rómantíska stefnu. Þess vegna er fyllilega réttlætanlegt að mínum dómi að vara við því að festa í lögum að leiklistarráð skuli móta stefnu. Hugsast gæti að þetta yrði skilið á þann veg, að leiklistarráð ætti að ráða því eða hafa áhrif á hvaða tökum listamaður, hvort sem það er rithöfundur eða leikhúsfólk, taki viðfangsefni sitt.
Það kom fram í umr. þegar lögin voru sett, að þetta var alls ekki tilgangur þeirra, sem frv. höfðu samið, né var það tilgangur þeirra alþm. sem stóðu að þessari lagasetningu. En til þess að eyða tortryggni í þessum efnum töldum við rétt, að ákvæðið yrði almennara eðlis, og leggjum til þá breytingu sem er á þskj. 331.