05.03.1979
Neðri deild: 59. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2972 í B-deild Alþingistíðinda. (2357)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Það frv., sem hér er á dagskrá, um heimild til lántöku, ábyrgðarheimildir og aðrar ráðstafanir vegna fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar 1979, hefur þegar verið allmikið rætt. Ekki er að undra að um slíkt frv. verði miklar umr. og er eðlilegt að í þeim umr. sé fjallað á víð og dreif um efnahagsmálin og stefnu stjórnvalda í þeim. Ég ætla ekki að víkja mörgum orðum að~eim þætti málsins, almennum umr. um efnahagsmál. g ætla t. d. ekki að blanda mér mikið inn í þær viðræður sem hér hafa farið fram á milli ýmissa stjórnarliða og hafa farið fram, eins og hv. næstsíðasti ræðumaður komst að orði, með kristilegu hugarfari og í eggjatínsluatkvæðaveiðastíl, en láta þeim sjálfum eftir þær deilur.

Hins vegar vil ég minnast á það sem hér hefur komið fram frá hv, stjórnarliðum, t. a. m. frá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni, þar sem hann talaði um að ef ekki væri fylgt þeirri stefnu, sem boðuð er með þessu lánsfjáráætlunarplaggi, kynni að raskast grundvöllur fjárlagaafgreiðslunnar og lítið mætti út af bera svo að tekjuafgangi fjárlagaafgreiðslunnar væri ekki stefnt í voða og grundvöllur fjárl. hruninn. Ég get upplýst þennan hv. þm. um, þó að það hafi verið gert fyrr, að það er ákaflega auðvelt og fljótgert að eyða greiðsluafgangi fjárl. og er álitamál, hvort sá grundvöllur sé ekki þegar hruninn og hafi í rauninni ekki verið til þegar fjárl. voru afgreidd. Ekki þarf að benda á nema tvær tölur í fjárl. sem eyða í raun og veru þeim greiðsluafgangi sem þar er á pappírnum. Greiðsluafgangur fjárl. er, ef ég man rétt, um 2.5 milljarðar kr. samkv. því sem þar stendur á pappírnum. Ef teknar væru inn í dæmið vantaldar útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir á þessu ári, sem nema 1.2–1.3 milljörðum, og vantaldar niðurgreiðslur á þessu ári, sem nema 2.8 milljörðum, eða samtals 4.1 milljarði kr., þá er þessi greiðsluafgangur fjárl. farinn og 1.5 milljarði betur þó. Þess vegna þarf ekki nein ný þskj. eða nein ný lög til þess að grundvöllur fjárl. sé hruninn, eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson orðaði það. Þessi grundvöllur var ekki til þegar fjárl. voru afgreidd.

Í umr. í síðustu viku gerðu talsmenn Sjálfstfl. grein fyrir sjónarmiðum flokksins að því er varðaði ýmsa þætti sem snerta þetta frv. almennt séð. Mér nægir því að vitna til þess, sem þar kom fram, og þarf ekki að orðlengja um það að öðru leyti en því, að ég legg á það mikla áherslu, sem ég og gerði við afgreiðslu fjárl., að það á að vera krafa Alþ. að lánsfjáráætlun sé komin fram a. m. k. — og helst afgreidd — um leið og fjárlagaafgreiðslan fer fram. Það er óhætt að segja bæði óheppilegt og algerlega röng vinnubrögð að afgreiða lánsfjáráætlun mörgum mánuðum eftir að fjárlög eru afgreidd, — lánsfjáráætlun sem í ýmsum tilvikum stefnir í allt aðra átt en gert var með fjárlagaafgreiðslunni. Dæmi voru rakin um þetta í síðustu viku af t. d. hv. þm. Lárusi Jónssyni sem ég ætla ekki að fara að tefja tímann á að endurtaka, en hér er um vinnubrögð að ræða sem ekki er hægt að láta óátalin.

Í því lánsfjáráætlunarplaggi, sem fylgir því frv. sem hér er á dagskrá, eru raktar ýmsar fyrirætlanir ríkisins hvað snertir framkvæmdir og um lántökuheimildir til þess að standast þau framkvæmdaáform. Ég hafði ætlað mér að gera að umtalsefni einkum tvo þætti sem snerta orkumál, og ég verð að segja að mér þykir mjög svo miður að hæstv. fjmrh., sem hefur fjarvistarleyfi og er veikur, en þó sérstaklega iðnrh., skuli ekki vera viðstaddur.

Í lánsfjáráætluninni er bætt úr í ýmsum greinum að því er varðar orkumálin, þó að þar sé sumpart, eins og að því er snertir endurbyggingu dreifikerfa, allt of skammt gengið. Látum svo vera. Það er þó sýndur litur á því að mæta þeirri brýnu þörf sem þar er.

Hér hafa á Alþ. farið fram á undanförnum mánuðum iðulega allítarlegar umr. um fjármál Rafmagnsveitna ríkisins. Innan þeirrar stofnunar hafa verið settar fram till. um að fjárhagsvanda væri mætt að verulegu leyti með heinum framlögum úr ríkissjóði. Till., sem komið höfðu frá starfsmönnum stofnunarinnar til iðnrn. í haust, voru m. a. áréttaðar á fundi í stjórn Rafmagnsveitnanna hinn 19, des. s. l., þar sem gerð var svo hljóðandi bókun, með leyfi forseta:

„Stjórn Rafmagnsveitna ríkisins ítrekar tillögur stofnunarinnar um bein framlög úr ríkissjóði til þess að mæta fjármagnskostnaði vegna félagslegra framkvæmda síðustu ára og fjárfestingarkostnaði vegna félagslegra og óarðbærra framkvæmda í framtíðinni. Stjórnin samþykkir þær till., sem mótaðar hafa verið fyrir næsta ár og kynntar hafa verið stjórnvöldum, þ. e. að á fjárl. 1979 verði gert ráð fyrir óendurkræfum framlögum úr ríkissjóði að upphæð 800 millj. kr. til að mæta hluta af núverandi fjármagnskostnaði og 680 millj. kr. vegna félagslegra framkvæmda næsta ár. Jafnframt leggur stjórnin áherslu á að þegar verði hafinn undirbúningur að gerð tillagna um þetta efni fyrir árið 1980, þannig að þær geti legið tímanlega fyrir.“

Við þessum till. stjórnarinnar og till., sem mótaðar höfðu verið að undirlagi stjórnar af starfsmönnum stofnunarinnar, lét hæstv. iðnrh. m. a. orð falla í umr. á Alþ. hinn 15. des. s. l., með leyfi hæstv. forseta, eftir að hann hafði lýst fjármagnsvanda Rafmagnsveitna ríkisins og þeim kröfum sem uppi væru frá þeirri stofnun til þess að ráða bót á honum:

„Við þessum aðstæðum, sem eru tilefni þessarar orðsendingar, hefur verið rætt í ríkisstj. að bregðast með tvennum hætti: annars vegar með beinu fjárframlagi ríkisins til Rafmagnsveitnanna, sem a. m. k. nemi 600 millj. kr. og iðnrn. hefur gert till. um í tengslum við lánsfjáráætlun, og hins vegar með framlengingu og þeirri hækkun verðjöfnunargjaldsins, sem lögð er til með þessu frv.“

Með þessum orðum og raunar ýmsum fleiri yfirlýsingum gaf hæstv. iðnrh. ótvírætt til kynna að stefnt væri að því, að Rafmagnsveitum ríkisins væri aflað eigi minna en 600 millj. kr. framlags við afgreiðslu lánsfjáráætlunar. Í því plaggi, sem hér liggur fyrir um þetta efni, segir hins vegar, með leyfi hæstv. forseta:

„Til þess að leysa úr þeim fjárhagsörðugleikum, sem nú steðja að RARIK, er ákveðið að taka 600 millj. kr. lán. Lánsfjáröflunin er til þess ætluð að fyrirtækið geti m. a. endurgreitt Landshanka Íslands 200 millj. kr. lán frá árinu 1977. Ríkissjóður mun á næstu fimm árum leggja RARIK til árlega 120 millj. kr. til endurgreiðslu lánsins, en að öðru leyti annast fyrirtækið greiðslur vaxta og afborgana.“

Ég verð að játa, að þegar ég sá þessar niðurstöður varð ég bæði undrandi og fyrir miklum vonbrigðum. Í þessari yfirlýsingu í lánsfjáráætlunarplagginu er falin alger brigð á ummælum iðnrh. frá því fyrir jólin, og ég harma að hæstv. ráðh. skuli ekki vera viðstaddur til að hlusta á þessa umr. Hæstv. ráðh. mun vita að það leysir ekki fjárhagsvanda Rafmagnsveitna ríkisins að þar séu tekin ný lán, og þó að nú séu gefin fyrirheit um að ríkið útvegi 600 millj. kr. lán til þessarar stofnunar til þess að geta greitt önnur lán er ekki í því lausn fólgin og alls ekki á þann hátt sem hæstv. iðnrh. gaf yfirlýsingu um fyrir jól.

Enn eru í þessu fólgnar yfirlýsingar um það, að á næstu 5 árum muni ríkissjóður leggja til 120 millj. kr. á ári til þess að mæta fjárhagsvanda þessarar stofnunar. Ég get ekki annað sagt en hér sé löðurmannlega að verki staðið.

Í sambandi við þetta mál gerði stjórn Rafmagnsveitna ríkisins samþykkt á fundi sínum hinn 27. 2. s. l., svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn Rafmagnsveitna ríkisins leyfir sér hér með að vitna til samþykktar sinnar, dags. 19. des. s. l., þar sem farið er fram á óendurkræf framlög úr ríkissjóði, samtals að upphæð 1480 millj. kr., til þess að mæta að hluta núverandi fjármagnskostnaði fyrirtækisins og einnig vegna félagslegra framkvæmda á þessu ári. Enn fremur leyfir stjórnin sér að vitna til ummæla iðnrh. á Alþ. 15. des. 1978 um að bregðast við fjárhagsvanda Rafmagnsveitnanna með beinu fjárframlagi ríkisins til Rafmagnsveitnanna sem a. m. k. nemi 600 millj. kr. Með tilliti til þess, er að framan greinir, lýsir stjórn Rafmagnsveitnanna því yfir, að hún telur óviðunandi, sem fram kemur í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj. fyrir árið 1979, 600 millj. kr. auknar lántökur til Rafmagnsveitna ríkisins sem á engan hátt kemur til móts við tillögur stjórnarinnar varðandi lausn á fjárhagsvanda stofnunarinnar á þessu ári. Því ítrekar stjórnin fyrri samþykktir sínar um þessi efni og beinir þeim eindregnu tilmælum til iðnrh. og ríkisstj., að 600 millj. kr. lán samkv. fjárhagsáætlun verði breytt í óendurkræft framlag úr ríkissjóði.“ (Forseti: Nú slær klukkan 4. Þar sem ég þykist vita að hv. þm. eigi margt eftir ósagt enn mælist ég til þess við hann að hann fresti ræðu sinni og komi tvíefldur til baka á miðvikudaginn kemur.) Sjálfsagt.