06.03.1979
Sameinað þing: 61. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2975 í B-deild Alþingistíðinda. (2359)
40. mál, bann við kjarnorkuvopnum á íslensku yfirráðasvæði
Flm. (Svava Jakobsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 43 flyt ég till. til þál., sem hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf er banni að geyma hvers konar kjarnorkuvopn hér á landi, sigla með þau eða fljúga með þau eða flytja þau með öðrum hætti um íslenskt yfirráðasvæði. Jafnframt verði kveðið á um eftirlit Íslendinga til að tryggja að þessi lög verði virt.“
Ég vek athygli hv. alþm. á því, að þarna er prentvilla, orðið „virk“ á að vera „virt“, og sams konar prentvilla er í grg., 3. línu a. n.
Það munu nú um 3 ár síðan ég flutti till. um þetta efni áður á Alþ. ásamt Magnúsi Torfa Ólafssyni, sem þá átti sæti á þingi. Till. hlaut þá ekki afgreiðslu úr utanrmn. Till., sem ég flyt nú, er efnislega eins og sú fyrri, með þeirri viðbót þó, að bætt er við banni á flutningi kjarnorkuvopna með skipum. Er það gert samkv. ábendingu frá Benedikt Gröndal, núv. utanrrh., en hann benti réttilega á það í umr., sem áttu sér stað á Alþ. um fyrri till., að hætta á slíku væri ekki veigaminnst. Í umr. þá sagði hæstv. utanrrh., Benedikt Gröndal:
„Hafnirnar eru enn nær íslensku þéttbýli, og erlend skip hafa verið hér t. d. á ytri höfninni í Reykjavík og lagst upp að bryggju, fjöldamörg skip frá ýmsum löndum sem vel gætu verið með þessi vopn innanborðs. Ég veit ekki til að það hafi nokkurn tíma verið um það spurt, þótt gengið sé út frá því að það sýni enginn þann dónaskap að sigla hingað með slík vopn innanborðs án þess að láta vita af því og spyrja um leyfi.“
Þetta var auðvitað sjálfsögð og fyllilega réttmæt ábending.
Umr. um hugsanleg kjarnorkuvopn á Íslandi hafa farið fram á Alþ. þó nokkrum sinnum að gefnu tilefni. Í þessum umr. hefur komið fram, að það er stefna allra stjórnmálaflokka að hér skuli ekki geymd kjarnorkuvopn. Með þessari till. er því verið að leggja til að festa í lögum óumdeilda stefnu allra stjórnmálaflokka og stjórnvalda sem um þetta mál hafa fjallað. Hugmyndin að baki tillöguflutningnum er sá skilningur, að það sé skylda Alþ. gagnvart þeim Íslendingum, sem nú eru uppi, og gagnvart afkomendum okkar í þessu landi að gera allt sem í okkar valdi stendur til að bægja frá þeirri ógn sem af kjarnorkuvopnum stafar. Tilgangurinn er sem sé sá að tryggja framkvæmd þessarar stefnu með lagasetningu og eftirliti.
Með till. er lagt til algjört bann við kjarnorkuvopnum á íslensku yfirráðasvæði — bann sem væri afdráttarlaust og almennt gagnvart hverjum sem er. Hitt dylst auðvitað engum, að nauðsyn á slíku banni er enn brýnni sakir þess að mesta kjarnorkuveldi heims hefur hér herstöð.
Í fyrri umr. um kjarnorkuvopn á Íslandi hafa stjórnvöld vitnað til þess, að sérstakt samkomulag sé til milli íslenskra stjórnvalda og bandarískra um að hér skuli ekki vera kjarnorkuvopn. En til þess að slíkt samkomulag hafi nokkurt gildi fyrir Íslendinga verður að vera fyrir hendi í fyrsta lagi ótvíræð viðurkenning af hálfu beggja aðila um að slíkt samkomulag sé til og í öðru lagi full trygging fyrir okkur að það samkomulag sé haldið. Því fer fjarri að nægilega vel sé frá þessu gengið.
Árið 1968 urðu umr. á Alþ. um kjarnorkuvopn á Íslandi. Tilefnið var að bandarísk flugvél hlaðin kjarnorkuvopnum fórst á Grænlandi. Ferð flugvélarinnar var skýlaust brot á samkomulagi milli Bandaríkjamanna og Dana. Í umr. þeim á Alþ., sem hér um ræðir, sagði þáv. utanrrh., Emil Jónsson, orðrétt, með leyfi forseta:
Ég hef raunar ekki annað um þetta að seg)a en það, að það er fullt samkomulag á milli ríkisstj. Íslands og varnarliðsins, þeirra sem því stjórna, um það, að hér á Íslandi séu ekki kjarnorkusprengjur af neinu tagi.“
Og síðar í sömu ræðu sagði Emil Jónsson, að hann hefði heyrt viðtal í útvarpi við þáv, yfirmann varnarliðsins þar sem hann hefði einmitt ítrekað og undirstrikað að um þetta væri fullt samkomulag einnig af þeirra hálfu. Hér skýrir þáv. utanrrh. Íslands frá því, að yfirmaður varnarliðsins hafi lýst því yfir að samkomulag væri við íslensk stjórnvöld um að hér væru ekki kjarnorkuvopn.
Ég vek á þessu athygli vegna þess að annað var upp á teningnum nokkrum árum síðar, á árunum 1975–1976. Þá urðu mikil hlaðaskrif erlendra manna, m. a. í fréttabréfi kjarnorkuvísindamanna og sérfræðiritum, og þar var fullyrt að flugvélar Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli væru búnar djúpsprengjum með kjarnaoddi. Viðbrögð yfirmanna hersins og sendiherra Bandaríkjamanna á Íslandi við fyrirspurnum um þetta voru þá á annan veg en áður og hafði orðið nánast furðuleg breyting. Svör þeirra þá voru ekki önnur en þau, að Bandaríkjamenn segðu aldrei neitt um kjarnorkuvopn sín né hvar þeim væri búinn staður. Það væri stefna þeirra að játa hvorki né neita ef þeir væru spurðir slíks.
Nú er full ástæða til að spyrja með hliðsjón af því sem á undan hafði gerst: Hvenær breytti Bandaríkjastjórn um stefnu gagnvart Íslendingum varðandi þetta mál? Áður höfðu þeir fullyrt að samkomulag væri í gildi. Af hverju mátti nú ekki kannast við slíkt samkomulag? Fullyrðingar Bandaríkjamanna um að þeir gæfu aldrei neitt upp varðandi kjarnorkuvopn sín stóðust ekki heldur, því einmitt um þessar sömu mundir var skýrt í fréttum frá samkomulagi milli Bandaríkjamanna og Spánverja um framtíð bandarísku herstöðvanna á Spáni og einn liður í því samkomulagi fjallaði einmitt um kjarnorkuknúna kafbáta sem skyldu fjarlægðir úr tiltekinni flotastöð þar í landi. Um þennan samning var fjallað í bandaríska þinginu og síður en svo að yfir honum hvíldi nokkur sú leynd sem var við brugðið þegar umr. urðu um kjarnorkuvopn hér á landi.
Áður en ég flutti fyrri till. mína hér á Alþ. 1975 reyndi ég að grafast fyrir um hvenær þetta margumrædda samkomulag Bandaríkjamanna og Íslendinga varð til og hvar það væri að finna. Þær eftirgrennslanir mínar báru engan árangur. En þáv. utanrrh. Einar Ágústsson upplýsti að það hefði ætíð verið skoðun íslenskra ríkisstj. að túlka bæri 3. gr. varnarsamningsins á þann hátt, að ekki bæri að geyma kjarnorkuvopn á Íslandi án heimildar íslenskra stjórnvalda. 3. gr. hins svonefnda varnarsamnings hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Það skal háð samþykki Íslands, hverrar þjóðar menn eru í varnarliðinu, svo og með hverjum hætti það tekur við og hagnýtir þá aðstöðu á Íslandi, sem veitt er með samningi þessum.“
Ef þetta er rétt túlkun varðandi 3. gr. varnarsamningsins og kjarnorkuvopnin, þá þýðir það einfaldlega að íslensk stjórnvöld geta eða hafa heimild til að opna landið fyrir kjarnorkuvopnum Bandaríkjamanna, án þess að Alþ. sé spurt og án þess að Alþ. hafi hugmynd um. Einmitt þetta gerðist raunar í Noregi. Árin 1959–1960 voru reistar lóranstöðvar á Norður-Noregi og á Jan Mayen að tilmælum bandarískra stjórnvalda. Látið var í veðri vaka að þær þjónuðu borgaralegum samgöngum, en í reynd eru þær til aðstoðar kafbátum húnum atómvopnum. Um þetta voru harðar deilur í Noregi á síðustu árum, svo sem hv. alþm. er sjálfsagt kunnugt um, og því haldið fram að þessar stöðvar væru algert brot á stjórnarskrá Noregs og yfirlýstri stefnu Noregs í herstöðva- og kjarnorkumálum.
Í öðru lagi vil ég benda á það, að 3. gr. varnarsamningsins gildir ekki um aðrar þjóðir sem ráða yfir kjarnorkuvopnum. Þær gætu hugsanlega siglt hér að landi með kjarnorkuvopn innanborðs eða flugvélar þeirra flogið yfir án þess að til væri stafkrókur á Íslandi sem bannaði slíkt, eins og núv. utanrrh. hefur raunar réttilega bent á. Íslensk stjórnvöld hafa ekki einu sinni gefið út opinbera yfirlýsingu um þá stefnu sína, að hér skuli ekki geymd kjarnorkuvopn. Sýnist það þó vera algert lágmark í þessum efnum.
Till. þessi kveður einnig á um eftirlit Íslendinga sjálfra til að tryggja að þessi lög yrðu virt. Til þess að annast eftirlit það, sem gert er ráð fyrir í þessari till., þarf ekki neitt íslenskt herlið, heldur hóp sérmenntaðra manna sem hefðu í þessu skyni allan nauðsynlegan aðgang að herstöðinni. Mér er tjáð af sérfræðingi, sem ég hef haft samband við, að slíkir eftirlitsmenn yrðu að hafa séð og lært að þekkja kjarnorkuvopn. Slíkan lærdóm yrði að sækja til annarra landa þar sem þá þekkingu er að finna. Enn fremur væri höfuðnauðsyn að þeir hefðu algeran aðgang að herstöðinni í þessu skyni, þar sem mjög auðvelt væri að skerma af plútonium, sem væri líklega notað í hinum smærri sprengjum.
Að lokum vil ég aðeins ítreka það sem ég hef sagt áður í þessum ræðustól, að það er skoðun mín að sjálfstæðri þjóð beri að tryggja öryggishagsmuni sína sjálf með þeim ráðum sem henni eru tiltæk. Hún á að hafa yfirsýn yfir það sem gerist í landi sínu. Hún tekur sjálf ákvarðanir og krefst þess að aðrir virði þær kröfur. Það væri að mínu viti spor í rétta átt, ef Alþ. samþykkti þá till. sem hér liggur fyrir.