31.10.1978
Sameinað þing: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (236)

323. mál, málefni áfengissjúklinga

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Það kann að vera, að ég hafi kveðið heldur sterkt að orði. Hins vegar er það sem ég sagði efnislega haft eftir lækni þeirra ágætu samtaka Freeport-manna sem hingað kom. Þetta er að sjálfsögðu sagt í þeim tilgangi að benda á hvers virði það gæti verið að almenningsálitið legðist gegn óhóflegri áfengisneyslu. En það er nú svona í útlöndum, að menn hafa ýmsar skoðanir á áfenginu. Ég var einu sinni alllengi samtíða spænskum lækni og einu sinni barst í tal hin mikla mjólkurdrykkja okkar á Íslandi. Hann sagði mér að þeir teldu heilsusamlegra að ala börn sín á rauðvíni en á mjólk. Ég er ekki að segja að það, sem læknar segja, hvort sem þeir eru amerískir eða spænskir, hljóti að vera heilagur sannleikur. En svona geta menn haft misjafnar skoðanir á þessum málum sem öðrum.

Ég vil líka láta í ljós ánægju yfir þeim umr. sem hér hafa farið fram. Ég verð að segja það, að ég hef lengt haft mikinn áhuga á gæsluvistarsjóði og hans þrifum. Ég bar einu sinni fram frv. sem var komið í gegnum aðra d. þingsins, en féll í þeirri seinni, um verulegan vöxt sjóðsins með því að taka vissa krónutölu af hverri áfengisflösku sem seld væri.

Ég held einmitt, að náðst hafi verulegur árangur í þessari baráttu á undanförnum árum og að við getum, ef við styðjum vel við bakið á þessum mönnum, eins og kom fram hjá síðasta ræðumanni, náð miklu lengra í þessum efnum en við getum núna, einkum þó ef almenningsálitið snýst verulega á sveif með þeim mönnum sem berjast gegn áfengi.