06.03.1979
Sameinað þing: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2994 í B-deild Alþingistíðinda. (2370)
207. mál, þingrof og nýjar kosningar
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Sú till., sem hér liggur fyrir frá öllum þm. Sjálfstfl. um þingrof og nýjar kosningar, leiðir hugann að hlutverki stjórnarandstöðu og því gildi sem málefnalegt andóf gegn ríkisstj. getur haft og þyrfti að hafa á hverjum tíma. Hlutverk stjórnarandstöðu er ekki aðeins mikilvægt til að ylja stjórnarsinnum undir uggum, veita ríkisstj, aðhald og skapa ferskan andblæ í þingsölum, heldur geta flokkar í stjórnarandstöðu einnig haft mikil áhrif með markvissu starfi og tillöguflutningi. Slíkt hlutskipti og það hlé, sem þannig gefst, geta flokkar í stjórnarandstöðu notað til að vinna málstað sínum fylgi, ef hann á annað borð er til þess fallinn að fá hugsandi fólk til að leggja við hlustir.
Því miður hefur stjórnarandstaða Sjálfstfl. það sem af er þessu þingi ekki verið af slíkum toga og sannast sagna hefur ótrúlega lítið farið fyrir þessum 20 manna þingflokki. Þeir, sem litið hafa hér inn á þingpallanna til að hlýða á mál manna í umr. á þessu þingi, hafa vafalítið talið sig fara húsavillt í leit að stjórnarandstöðu, nema svo hafi viljað til að þeir hittu á óróleikadaga hjá hluta af stuðningsliði ríkisstj. sem helst hefur borið upp á síðustu viku hvers mánaðar og dagana fyrir stórhátíðir.
Raunar kemur þeim, sem til þekkja eða fylgst hafa með heimilisástandi hjá forustuliði Sjálfstfl., ekki svo mjög á óvart þótt lítið fari fyrir málefnalegum tillöguflutningi af hálfu þm. flokksins. Þar á bæ hafa menn verið uppteknir af hjaðningavígum og var sundurþykkjan raunar borin á torg í höfuðmálgagni Sjálfstfl., Morgunblaðinu, skömmu eftir að þing kom saman s. l. haust. Þá, sem lásu þar veturnóttaskrif hv. 1. og hv. 5. þm. Reykv., þeirra Alberts Guðmundssonar og Ragnhildar Helgadóttur, undrar að þau skuli eira undir sama þaki hér á Alþ., og öfundar enginn hv. 11. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, af því hlutskipti að eiga að stýra þessu liði eftir þær kveðjur og einkunnir sem honum hafa verið valdar frá þessari sundurleitu sveit.
Stóryrðin, sem flutu úr penna áðurnefndra flokkssystkina skömmu eftir þingbyrjun í haust, verða ekki rifjuð upp hér af tillitssemi við sár sem kannske eru tekin að gróa. En því er á þetta minnst, að það varpar nokkru ljósi á andrúmsloftið innan veggja hjá forustuliði þessa stærsta stjórnmálaflokks landsins og þar hlýtur skýringanna að vera að leita á atburðaleysi stjórnarandstöðunnar síðustu mánuði.
Svo virðist sem þurft hafi hávaðann frá Vilmundarbúðum Alþfl. til að þessi formlega stjórnarandstaða rumskaði, og líklega hefur hin rómaða sprengidagstillaga varðandi þjóðaratkvgr. um frv.-drög forsrh, þrátt fyrir allt borið þann árangur, áður en flm. dró till. til baka, að laða hið sundurþykka lið Sjálfstfl. saman um eitt málefni, þ. e. þessa dulbúnu vantrauststill. um þingrof og nýjar kosningar sem er tilefni útvarpsumr. hér í kvöld.
En lítum á efnisrök þessarar till. Í grg. með henni og í máli hv, síðasta ræðumanns, Geirs Hallgrímssonar, gætir mikillar vandlætingar út af 6 mánaða starfsferli ríkisstj. og er henni brugðið um algert stefnu- og úrræðaleysi, því verði þjóðin nú að fá tækifæri til að kveða upp sinn dóm. Ja, öðruvísi mér áður hrá, mun margur hugsa. Hv. þm. Geir Hallgrímsson telur minni landsmanna greinilega tekið að hraka ef hann væntir uppskeru fyrir flokk sinn í kosningum á næstunni.
Sá þungi áfellisdómur, sem hægri stjórnin undir forsæti Geirs Hallgrímssonar fékk í alþingiskosningunum s. l. sumar, var ekki neitt bráðræðisuppgjör reiðra kjósenda, heldur andsvar við stjórnarstefnu sem einkenndist af látlausu stríði við launþega í landinu og samfelldari óðaverðbólgu en dæmi eru um áður í sögu lýðveldisins. Um það leyti sem Geir Hallgrímsson kvaddi Stjórnarráðið með liði sínu að morgni 1. sept. s. l. blasti við allsherjarstöðvun atvinnulífs í stærstu verstöðvum landsins og hlaupið var frá tómum sjóðum. Jafnframt hafði stjórn hans efnað saman í enn eina gengislækkun og við blasti stórlega aukinn skriður á óðaverðbólgunni frá þeim degi sem ný ríkisstj. settist á stóla ef haldið hefði verið óbreyttri stefnu. Þar skall hurð nærri hælum. Rekstur helstu atvinnuvega landsmanna var kominn í þrot og stórfellt atvinnuleysi fram undan vegna yfirvofandi stöðvunar atvinnulífs. Þessar staðreyndir eru mönnum enn í fersku minni, þótt þinglið Sjálfstfl. vildi gjarnan að yfir þær hefði fennt á þessum snjósæla vetri hér í höfuðstaðnum. Hitt er mikil kokhreysti og ofætlun að búa nú til grýlu úr verkum þeirrar ríkisstj. sem Alþb. átti drýgstan þátt í að mynda og leyst hefur á stuttum tíma úr bráðum vanda. Þar mun stjórnarandstöðunni ekki takast að mála skrattann á vegginn, þótt íhaldinu bjóðist nú öðru hvoru hávær aðstoð nokkurra angurgapa sem virðast miða hlutverk sín hér á Alþ. við ærsl og upphlaup og kunna illa hverjum þeim degi sem skilar þeim ekki inn á útsíður síðdegisblaðanna.
Ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar var mynduð á elleftu stundu, eins og forsrh. komst réttilega að orði í stefnuræðu sinni s. l. haust, og hún getur horft feimnislaust til baka yfir skamman feril. Samstarfsyfirlýsing flokkanna, sem tryggðu myndun hennar, hefst með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstj. telur það höfuðverkefni sitt á næstunni að ráða fram úr þeim mikla vanda sem við blasir í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar. Hún mun því einbeita sér að því að koma efnahagsmálum á traustan grundvöll og tryggja efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, rekstrargrundvöll atvinnuveganna, fulla atvinnu og treysta kaupmátt launa.
Ríkisstj. mun leggja áherslu á að draga markvisst úr verðbólgunni með því að lækka verðlag og tilkostnað og draga úr víxlhækkunum verðlags og launa og halda heildarumsvifum í þjóðarbúskapnum innan hæfilegra marka. Hún mun leitast við að koma í veg fyrir auðsöfnun í skjóli verðbólgu.
Ríkisstj. mun jafnframt vinna að hagræðingu í ríkisrekstri og á sviði atvinnuvega, sparnaði og hagkvæmri ráðstöfun fjármagns.
Ríkisstj. mun vinna að félagslegum umbótum. Hún mun leitast við að jafna lífskjör, auka félagslegt réttlæti og uppræta spillingu, misrétti og forréttindi.“
Þetta var tilvitnun í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna. Hér verður því ekki haldið fram, að ríkisstj. hafi náð þeim markmiðum að fullu sem fram voru sett í upphafi sáttmála stjórnarflokkanna, enda munu fáir stuðningsmenn hennar hafa gert sér vonir um kraftaverk. Hitt leyfi ég mér að staðhæfa, að verulegur árangur hefur náðst á þeim sviðum þar sem dekkst var í álinn við upphaf ferðar.
Hjól atvinnulífsins hafa snúist og atvinnuleysi verið bægt frá til þessa að heita má. Kaupmáttur hjá láglaunamönnum og fólki með miðlungstekjur hefur verið tryggður að fullu í samræmi við kjarasamningana frá sumrinu 1977, og hafa kjör alls þorra almennings ekki í annan tíma verið betri, og merkar réttarbætur náð fram að ganga eða eru í burðarliðnum með lagasetningu hér á Alþ. Og það sem ekki er minnst um vert er sú staðreynd, að jafnframt þessu hefur tekist að draga stórlega úr verðbólgu og hamla gegn verðhækkunum. Því meiri ástæða er til að undirstrika þessa ávinninga sem sumir úr þingliði stjórnarflokkanna telja sér ekki henta að rifja þá upp, ekki einu sinni í hálfum hljóðum, og er þá hinni formlegu stjórnarandstöðu vissulega nokkur vorkunn þótt hún hafi ekki hátt um það sem vel hefur til tekist á síðasta missiri.
En er þetta ekki glansmynd sem hér er dregin upp munt þú e. t. v. spyrja, hlustandi góður. Ég veit að vísu, að þorri launþega mun geta tekið undir mál mitt, en við skulum samt líta á nokkrar kaldar tölur í þessu samhengi og þá staldra fyrst við hina umtöluðu og lífseigu verðbólgu.
Þar er lærdómsríkt að bera saman verðbólguvöxt eins og hann birtist okkur í vísitölu framfærslukostnaðar síðasta hálfa árið sem fyrrv. ríkisstj. sat að völdum og það hálfa ár sem núv. stjórn hefur að baki. Á tímabilinu 1. febr. til 1. ágúst 1978 hækkaði framfærsluvísitalan samkv. útreikningi Hagstofunnar um 24.14 stig eða sem svarar 54.1 stigi á ársgrundvelli. Á tímabilinu frá 1. ágúst 1978 til 1. febr. 1979, þ. e. á öðru sex mánaða tímabili, sem fellur nær allt á starfstíma núv. ríkisstj. hækkaði sama vísitala um aðeins 11.18 stig, sem þýðir 23.6% hækkun framfærsluvísitölu ef miðað er við heilt ár.
Þessar tölur, rösk 54% og 23.6%, segja okkur ótvírætt að verðbólguvöxturinn hefur rénað um meira en helming á tólf mánuðum, og skilin eru einkar skörp frá og með stjórnarskiptunum. Þetta eru opinberar tölur sem hver og einn getur sannreynt. Stjórnarandstæðingar halda því að vísu fram, að beitt hafi verið brögðum, eins og þeir vilja kalla það, til að ná þessum árangri og segja ríkisstj. hafa fryst verðbólguna inni í ríkissjóði og eiga þá við niðurgreiðslur vöruverðs. Á það drögum við enga dul, að einmitt niðurgreiðslurnar á lífsnauðsynjum hafa slegið mikið á verðbólguna og reynst áhrifamikið tæki í glímunni við þann vágest. Með niðurfærslu- og millifærsluleiðinni, sem valin var s. l. haust með aðgerðunum 1. sept. og 1. des., tókst að bæta launþegum nær 8 stiga hækkun, sem ella hefði orðið á kaupi, með niðurgreiðslum og koma þær aðgerðir láglaunafólki sérstaklega til góða.
Verðlækkun á fjölmörgum lífsnauðsynjum almennings er nýbreytni sem fólk kann vel að meta, og með skattlagningu, sem nauðsynleg var til að jafna metin, hafa umtalsverðir fjármunir verið færðir til í þjóðfélaginu frá hinum betur megandi til hinna sem minna höfðu til skiptanna. Það er þessi skattlagning, m. a. á eignir, atvinnurekstur og hátekjufólk, sem stjórnarandstaðan hefur helst reynt að gera sér mat úr þá sjaldan hún rumskaði í skammdeginu og ætlaði sér að villa og trylla þá sem gengið hafa í björg með Glistrup-álfum íslenskum. Það varðar miklu að alþýða manna sjái í gegnum þá gjörningaþoku þar sem reynt er að gera alla skattheimtu tortryggilega og svipta þannig stjórnvöld þeim tækjum sem helst eru fallin til að ná jöfnuði og bæta félagslega aðstöðu þegnanna. Grátt er sannarlega það gaman sem haft er uppi í þessu samhengi.
Fjölmargar fleiri tölur má draga fram sem gefa vísbendingu um skörp skil til hins betra frá og með stjórnarskiptum s. l. haust. Þannig batnaði gjaldeyrisstaða bankanna um 24 milljarða kr. á síðustu 4 mánuðum ársins 1978, en hliðstæð hreyfing á 4 síðustu mánuðum ársins 1977 nam aðeins 2 milljörðum. Hjöðnun erlendra skulda nam á sama tímabili 1978 13 milljörðum kr. á móti hins vegar 3 milljarða kr. skuldaaukningu síðustu 4 mánuði ársins 1977. Samanburður af þessu tagi gefur vísbendingar, en myndin mun skýrast frekar ef lengri tími fæst til samanburðar.
Nú blasir að vísu við nýr og óvæntur vandi, þar sem er gífurleg hækkun á olíuverði, þótt enn sé ekki séð fyrir hversu varanleg sú þróun verður. Ríkisstj. undirbýr nú aðgerðir til að mæta þeim mikla vanda, sem óhjákvæmilega kemur illa ofan í árangursríkt viðnám hennar gegn verðbólgu. En nái menn saman um stefnumörkun í efnahagsmálum, sem að hefur verið unnið af stjórnarflokkunum að undanförnu, munu einnig finnast leiðir til að standa af sér þær skúrir sem fylgja hækkuðu olíuverði.
Hér sem á öðrum sviðum skiptir það öllu máli að ríkisstj. rjúfi ekki griðin við launþegasamtökin og annað alþýðufólk til sjávar og sveita. Þar er sá aflvaki sem þeir, er til forustu hafa valist, verða að treysta á og kunna að taka mið af. Slíkt á ekkert skylt við alþýðudekur eða þjónkun við örfáa forustumenn samtaka launamanna, eins og reynt er að læða inn hjá almenningi af þeim sem sundra vilja og leita sér halds á öðrum vettvangi.
Í þeirri samningalotu, sem nú stendur yfir milli ríkisstjórnarflokkanna um stefnumörkun í efnahagsmálum og fleiri þætti þjóðarbúskaparins til tveggja ára, hefur Alþb. kosið að rækta það samráð við stéttarsamtök alþýðu sem það telur hornstein þessa stjórnarsamstarfs og skýrt er skráð í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna. Full atvinna og varðveisla kjara og kaupmáttar sem flestra launþega eru forgangsatriði í till. Alþb. ásamt sókn gegn verðbólgu svo sem frekast er kostur. Árangur í glímunni við verðbólguna er afar mikils virði til að renna hér stoðum undir traust atvinnulíf. Þar þarf launafólk að leggja sitt af mörkum um leið og það stendur vörð um kjör sín. Endurskoðun á fyrirkomulagi kauptryggingar hefur ekki verið neitt bannorð hjá launþegasamtökunum að undanförnu og enn er boðið til viðræðna við vinsamlegt ríkisvald um tiltekin atriði varðandi vísitölumál. Launþegasamtökin í landinu hafa á undanförnum mánuðum sýnt í verki að þau kunna að meta samráð af hálfu ríkisstj. og krónuhækkanir hafa ekki forgang á þeim vettvangi ef réttarbætur og önnur hagsmunamál fá byr.
Alþb. stendur ótrautt á þeim grunni sem lagður var með myndun ríkisstj. eftir erfiða fæðingu hennar s. l. sumar. Alþb. stóð þá gegn því, að aðsteðjandi efnahagsvandi væri leystur á kostnað láglaunafólks, og það hefur síðan varist með árangri sókn þeirra afla sem halda því fram, að allir verða að fórna, láglaunafólkið í landinu ekki síður en aðrir.
Í stefnuræðu sinni úr þessum stól hér á Alþ. mælti Ólafur Jóhannesson forsrh. m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Ég held ég geti sagt án þess að það séu innantóm orð, að við viljum stjórna fyrir fólkið og með fólkinu.“ Og hann bætti við: „Gengi þessarar stjórnar er því ekki hvað síst undir því komið, að henni takist að fylgja þeirri leiðarstjörnu. Og menn geta spurt sjálfa sig: Ef þessari stjórn tekst það ekki — hvað þá?“
Undir þessi orð oddvita ríkisstj. vil ég taka og jafnframt fullyrða að hann hefur í reynd fylgt þessum vegvísi hingað til með því að stuðla að skynsamlegum samráðum við launþega. Svo lengi sem það er gert og engir hlaupa frá borði eða yfir í sveit andskotaliðsins getur þessi ríkisstj. staðið og eflst til góðra verka. Menn skulu hafa það vel í huga, að ríkisstj. hefur ekki ætlað sér einvörðungu að hugsa um efnahagsmál, heldur er tekist á við þýðingarmikil verkefni á öllum sviðum þjóðmála. Efnahagsmálin hefur eðlilega borið hæst til þessa og þau eru nú til sérstakrar meðferðar á vettvangi ríkisstj. og þingflokka er hana styðja. En einnig er fastmælum bundið í samstarfsyfirlýsingu aðildarflokka ríkisstj. að málefnasamningur hennar verði tekinn til endurskoðunar í heild á þessu ári. Þar er og verður ekkert undan skilið og stöðugt er raunar unnið að því að marka stefnu til lengri tíma í einstökum málaflokkum.
Stjórnarandstaðan og málgögn hennar láta mjög að því liggja að hér hafi ríkt eins konar stjórnarkreppa allt frá síðustu kosningum og heldur lítið hafi farið fyrir aðgerðum hjá okkur ráðh. í ríkisstj. hverjum á sínu verksviði. Nú ætla ég ekki að gerast dómari í eigin sök, en þó hefur það farið svo, að ég hef ekki fundið fyrir verkefnaskorti í iðnrn. þótt svo vaskur maður sem Gunnar Thoroddsen hafi setið þar undanfarin 4 ár. Bæði í iðnaðar- og orkumálum hefur ríkisstj. sett sér myndarleg markmið og flest af því er komið á einhvern rekspöl, þótt hraðar mætti ganga og æskilegt væri að betra tóm fengist til að sinna slíkum verkum.
Af stórum verkefnum á mínum vettvangi nefni ég t. d. áætlun um iðnþróun, almenn aðbúnaðarmál íslensks iðnaðar og aðgerðaáætlun fyrir einstakar iðngreinar. Í orkumálum er unnið að því að koma á fót einu landsfyrirtæki og leitað leiða til að jafna raforkuverð. Dreifing raforkunnar með nýjum línum og styrkingu þess kerfis, sem fyrir er, ekki síst í strjálbýli, er afar aðkallandi. Mikil verðhækkun á innfluttu eldsneyti kallar á skjót viðbrögð og aukna áherslu á hitaveitur og annað það sem flýtt getur fyrir að innlendir orkugjafar taki við af innfluttum eftir því sem hagkvæmt er talið. Þá má ekki dragast lengi úr þessu að tryggð verði aukin aðstoð við þá sem kynda verða hús sín með olíu enn um sinn. Þannig mætti lengi telja á sviði þessa eina ráðuneytis orku- og iðnaðarmála. En ég verð ekki síður var við athafnasemi hjá samráðh. mínum, hverjum á sínum vettvangi, og þrátt fyrir háreysti í kringum þjóðarskútuna og olnbogaskot við og við af stöku þóftu er ástæðulaust að halda að ekki sé lagst á árar.
Stjórnarandstaðan, sem loks er nú skriðin úr híði sínu eftir dásvefn skammdegisins, gerist nú allveiðibráð, eins og þessi þáltill. um þingrof og nýjar kosningar ber glöggan vott um, og hyggst henda á lofti einstakar hnútur er hér hafa borist um sali frá óstýrilátum þm. Flest bendir þó til að væringar haustsins og innbyrðis átök eftir dúndrandi ósigur í kosningum á síðasta sumri hái enn stjórnarandstöðuliðinu til muna, svo vart sé það vígfært hvað þá til stórorrustu fallið. Því virðist ætla að dragast að Sjálfstfl. nái fullri heilsu aftur, eins og hv. 1. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, sá raunar fyrir um síðustu veturnætur.
Vinstri menn á Íslandi þurfa nú að nota það lag sem því fylgir að hafa náð saman um meiri hl. í höfuðstað landsins og standa saman að ríkisstj. Geysilegt verk er að vinna að treysta undirstöður íslensks efnahagslífs, ná upp akri fiskimiðanna og snúa vörn í sókn í verndun og nýtingu landgæða. Þar og í fjölþættum iðnaði í okkar eigin höndum er sú undirstaða fólgin sem góð lífskjör og gæfa þessarar þjóðar hvílir á. Um leið og við fyrirgefum stjórnarandstöðunni frumhlaup hennar hér á Alþ. með flutningi þessarar þáltill. skulum við treysta samstöðu vinstri manna til heilla fyrir land og lýð.
Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu. Hlustendum þakka ég áheyrnina.