06.03.1979
Sameinað þing: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3014 í B-deild Alþingistíðinda. (2375)
207. mál, þingrof og nýjar kosningar
Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Sú umr. um efnahagsmál og efnahagsstefnu, sem nú fer fram, á sér langan aðdraganda. Allt frá því fyrir kosningar hefur Alþfl. lagt áherslu á nauðsyn þess, að tekin yrði upp samræmd efnahagsstefna á öllum sviðum efnahagsmála sem miðaði að því að halda jafnvægi í ríkisbúskapnum og hefði að markmiði að draga verulega úr verðbólgunni og auka stöðugleika í efnahagslífinu. Við Alþfl.-menn höfum allar stundir bent á að slíkum árangri yrði ekki náð án verulegra fórna um stundarsakir og allir aðilar yrðu að láta af ítrustu kröfum sínum. Í samræmi við þessa stefnu var í aths. við frv. til l. um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu frá því í nóv. s. l. tekið fram að lagasetningunni væri ætlað að vera liður í þeirri viðleitni að ná fram varanlegum breytingum í efnahagsmálum sem komi til framkvæmda þegar á árinu 1979. Þar var enn fremur tekið fram að ríkisstj. væri sammála um að mótun slíkrar samræmdrar efnahagsstefnu skyldi verða forgangsverkefni ríkisstj. á n. k. mánuðum þar á eftir.
Það er ekki að ástæðulausu að Alþfl. hefur lagt svo ríka áherslu á það viðfangsefni, að mótuð yrði samræmd og varanleg stefnumörkun í efnahagsmálum. Allt s. l. stjórnartímabil, samstjórnartímabil Sjálfstfl. og Framsfl., einkenndist af lausatökum og hringli í stjórn efnahagsmála. Allt var látið reka á reiðanum, og í stað þess að taka efnahagsmálin föstum tökum ríkti stjórnleysi með þeim afleiðingum að verðbólgan geisaði hömlulaust og erlendar skuldir hlóðust upp. Fyrrv. ríkisstj. kórónaði svo getuleysi sitt í efnahagsstjórn með því að skilja við efnahagsmálin í rúst, þannig að rekstur frystihúsa hafði stöðvast algerlega í vissum landshlutum og yfirvofandi var stöðvun um landið allt. Og það var reyndar þrátt fyrir það að greiddur var um 1/2 milljarður á mánuði úr ríkissjóði með rekstri frystihúsanna. Þetta var sá arfur frá samstjórn Sjálfstfl. og Framsfl. sem núv. ríkisstj. tók við. Þetta var árangurinn af þeirri efnahagsstefnu sem Sjálfstfl. hafði forustu um í fyrri ríkisstj.
Í framhaldi af ráðstöfunum í desembermánuði samdi Alþfl. frv. um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum þar sem meginatriði hinnar samræmdu efnahagsstefnu voru dregin skýrum línum. Þetta var tímamótafrv. Við afgreiðslu fjárl. og lánsfjáráætlunar hefur Alþfl. fylgt þeirri meginlínu, sem mótuð var annars vegar af grg. með frv. til l. um tímabundnar ráðstafanir gegn verðbólgu frá því í nóv. s. l., og hins vegar þeirri stefnumörkun, sem birtist í frv. flokksins um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum frá því í des. Í afgreiðslu fjárl. og lánsfjáráætlunar hefur þannig verið lagður grunnur sem er liður í heildarstefnumótuninni. Frumkvæði Alþfl. um heildarstefnumótun í efnahagsmálum varð spori þess frv. sem hæstv. forsrh. lagði fram í ríkisstj. hinn 12. febr. s. l. um stjórn efnahagsmála og ráðstafanir til þess að draga úr verðbólgu og stuðla að framförum í ríkisbúskapnum. Ekkert í frv. um stjórn efnahagsmála og ráðstafanir til þess að draga úr verðbólgu og stuðla að framförum í ríkisbúskapnum hefði átt að koma neinum stjórnarflokkanna á óvart. Upphlaup Alþb. í þessu sambandi var því tilefnislaust og algert vindhögg, enda margt af því, sem talsmenn Alþb. mótmæltu þá, áður samþ. í ríkisstj.
Framlag Sjálfstfl. til efnahagsmálaumr. hefur á hinn bóginn verið beinlínis aumkunarvert. Árangurinn af stjórn hans á efnahagsmálum á síðasta kjörtímabili gaf að vísu ekki ástæðu til þess að ætlast til mikils, en sú grautargerð, sem felst í nýbirtri efnahagsstefnu flokksins, bendir ekki til þess, að Sjálfstfl. hafi áttað sig á þeim meginviðfangsefnum, sem við er að fást, eða sé á nokkurn hátt reiðubúinn til að takast á við vandamálin. Svonefnd efnahagsstefna Sjálfstfl. er með því marki brennd, að hægt sé að gera allt fyrir alla, eitt rekur sig á annars horn, og að hafa megi alla enda lausa. Viðbrögð Sjálfstfl. við frv. um stjórn efnahagsmála hafa svo að öðru leyti einkennst af útúrsnúningi og yfirboðum.
Í frv. um stjórn efnahagsmála felst í veigamiklum atriðum sú kerfisbreyting sem Alþfl. hefur boðað, svo sem uppskurður á sjóðakerfi, sjálfstætt mat á nytsemi ríkisframlaga og ríkisframkvæmda, afnám sjálfvirkni í lánaúthlutun sjóðakerfisins án tillits til arðsemi, eins og hefur verið tíðkað, skorður við heildarfjárfestingu og ríkisumsvifum, raunvöxtun sparifjár og útlána og samræmd launastefna. Talsmenn Sjálfstfl. eru ýmist með eða móti raunvöxtum og hafa flúið í það skjól að það sé best að bankarnir móti stefnuna fyrir flokkinn. Til fjötra sjálfvirkninnar í ríkisfjárlögum þora þeir ekki að taka afstöðu, en stunda þess í stað hártoganir sem lýsa engri málefnastöðu. Um afstöðu Sjálfstfl. til annarra þátta í frv. er enn þá minna vitað.
Þetta stefnuleysi, þetta ósamræmi, þessi tregða minnir óneitanlega óþyrmilega á það skilningsleysi og þau losaralegu tök sem komið hafa fram hjá ýmsum fulltrúum sem þeir hafa gagnrýnt mest að því er varðar stjórn efnahagsmála. Ég spyr: Er það svo, að þarna sé samræmi á milli stefnu Alþb. og Sjálfstfl.? Er það svo, að það sé samnefnari og sameiginlegt álit þessara flokka, að stefnuleysið og lausatökin séu best? Seinustu vikurnar hafa leitt í ljós ýmis merki um þess konar bandalag milli þessara tveggja flokka. Miðað við þá stefnu, sem þeir hafa boðað í þjóðmálum og fólki hefur a. m. k. verið talin trú um að þeir ætluðu sér, verður ýmislegt a. m. k. andkannalegt. Annars vegar blasir við taglhnýting Sjálfstfl. aftan í ýmsa Alþb.-þm., eins og t. d. varðandi frv. um tímabundið olíugjald. Á hinn bóginn er einkennileg sú árátta Alþb. sem lýsir sér í því að fylgja lausaleiksstefnu Sjálfstfl. í efnahagsmálum.
Að því er Sjálfstfl. varðar er sannleikurinn vitaskuld sá, að Sjálfstfl., sem hefur verið í pólitísku orlofi, horfir á það með skelfingu að þurfa að taka afstöðu til efnahagsmálanna. Hann vill vera í fríi áfram.
Sú till., sem hér liggur fyrir um þingrof, er eins konar neyðaróp stefnuleysisins. Sjálfstfl. flytur ekki þessa till. til þess að fá fram kosningar, heldur til þess að fá afsökun fyrir stefnuleysi sínu. Sannleikurinn er vitaskuld sá, að áður en gengið er til kosninga á að þrautreyna á Alþ. hvort meiri hl. sé fyrir samræmdri efnahagsstefnu sem skili þeim meginmarkmiðum í efnahagsmálum sem boðuð hafa verið og fram koma í grg. með frv. til l. um viðnám gegn verðbólgu frá því í nóv. s. l. og í frv. forsrh. Sjálfstfl. óttast það umfram aðra hluti að þurfa að taka afstöðu til frv. Hann hefur ekki áhuga á kosningum. Hann vill ekki axla ábyrgð, heldur hugsar um það eitt að sleppa „billega“ frá öllu saman. Honum liður kannske vel við það að þvælast svolítið fyrir í leiðinni.
Engum. sem lítur fram á veginn, dylst að við mikinn vanda er að etja í efnahagsmálum. Verðbólgan og neikvæðir vextir leika þjóðfélagið grátt, draga úr framþróun, flytja til stórkostlega fjármuni og leika þá verst sem minnst mega sin í þjóðfélaginu. Óréttlæti og spilling grefur um sig. Þjóðfélagið er sjúkt. Ábyrgðartilfinning, sparnaðarviðleitni, hagkvæmni og nýtni, sem eru undirstaða réttláts þjóðfélags og heilbrigðs efnahagslífs og skynsamlegrar þjóðfélagsuppbyggingar, allt þetta dvínar og fjarar út í verðbólgunni og verðbólgukapphlaupinu.
Árum saman hefur verið talað um verðbólguvandann, en minna hefur farið fyrir samstilltum aðgerðum og árangri. Á þessu bera þeir flokkar ábyrgð sem hafa farið með stjórn landsins á undanförnum árum. Þrátt fyrir ýmsa möguleika, sem þeim buðust, hafa þeir ekki nýtt þá. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa og hafa dunið yfir þessa þjóð. Hin eilífa og árangurslitla umfjöllun um verðbólguna á undanförnum árum hefur staðið í vegi fyrir margvíslegum þjóðfélagsumbótum sem nauðsyn ber til að hrinda í framkvæmd. Verðbólgan er í raun og sannleika þjóðarvoði sem þjóðin öll verður að takast á við. Hún er þjóðarvoði sem enginn ábyrgur stjórnmálamaður getur leitt hjá sér, hvort sem hann telst í stjórn eða stjórnarandstöðu. Það er hlutverk allra stjórnmálamanna að horfast í augu við þennan vanda og leggja sig fram um málefnalega stefnumörkun í þessum efnum.
Sjálfstfl. hefur átt sinn ríka þátt í að við höfum búið við þá óðaverðbólgu, sem hér hefur geisað, og þótt verðbólgan sé mikil núna hefur hún þó verið enn meiri á stjórnartímabili Sjálfstfl. Hann er því síst af öllu saklaus af því ástandi sem ríkir, og á honum hvílir ábyrgð sem hann og talsmenn hans ættu að hafa í huga.
Ég er ekki í vafa um það, að þjóðin öll og kjósendur Sjálfstfl. ekki síst ætla honum ekki að vera „stikkfrí“ í efnahagsmálum. Þjóðin og kjósendur Sjálfstfl. ekki síður ætlast auðvitað til þess af honum, að hann taki afstöðu til meginþátta efnahagsmála. En heimilisástandið hjá Sjálfstfl. mun hafa hindrað hann í því hlutverki sínu. Þess vegna flýr hann nú í það skjól að flytja þá till. sem hér er til umr.
Ég gat þess áðan, að fram undan væri mikill vandi í efnahagsmálum með tilliti til hinnar öru verðbólguþróunar. Þar við bætist að fyrirsjáanleg er mikil verðhækkun á olíuvörum sem verður mikill búskellur og skerðir mjög verulega viðskiptakjör þjóðarinnar og þar með afkomu þjóðarbúsins. Verðbólguviðbót af þessum sökum hæfist nú við þann vanda sem fyrir var, og hvernig svo sem við verður brugðist er augljóst að fyrr eða síðar og með einum eða öðrum hætti mun þessi olíuhækkun bitna á kjörum fólksins í landinu. Þess skyldi enginn ganga dulinn.
Allt þetta gerist jafnframt því að svigrúm til þess að auka tekjur þjóðarbúsins með auknum fiskveiðum er ekki fyrir hendi. Vegna aðhaldsleysis á fyrri árum er augljóst að draga verður úr sókn í mikilvægustu fiskstofna til þess að treysta lífskjör þjóðarinnar í lengd og koma í veg fyrir hættu á því að þessar undirstöður þjóðfélagsins og lífsins sjálfs í landinu bresti. Öllum er kunnugt um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til af hálfu sjútvrn. varðandi loðnuveiðar. Jafnframt er nú unnið að stefnumörkun af hálfu rn. varðandi bolfiskveiðarnar á árinu, og vænti ég þess, að hún geti legið fyrir innan tíðar. Hinu et ekki að leyna, að þetta viðfangsefni er mun torleystara þar sem andvaraleysi hefur löngum ríkt á undanförnum árum í þessum málum.
Herra forseti. Skynsamleg efnahagsstjórn er forsenda raunverulegs sjálfstæðis þjóðarinnar. Þess vegna verða allir landsmenn að leggjast á eitt og leggja sitt af mörkum til þess að hér komist á heilbrigt og traust efnahagslíf. Ef við höfum ekki tök á efnahagsmálunum er stutt í að þjóðin glati raunverulegu sjálfræði sínu. Þess vegna er brýnt að samræmt átak í efnahagsmálum takist. Þetta skyldu allir stjórnmálamenn hafa í huga, hvar í flokki sem þeir standa. Þetta skyldi þjóðin öll hafa í huga. Það er m. a. á þessum grunni sem Alþfl. hefur barist og mun halda áfram að berjast gegn verðbólgunni og fyrir traustara efnahagslífi. — Góðar stundir.