06.03.1979
Sameinað þing: 62. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3017 í B-deild Alþingistíðinda. (2376)
207. mál, þingrof og nýjar kosningar
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þessi till. sjálfstæðismanna um þingrof og nýjar kosningar er vægast sagt ótímabær og illa rökstudd, eins og hefur verið sýnt fram á af mörgum ræðumönnum. Það er út af fyrir sig rétt, að stjórnarsamstarfið hefur að ýmsu leyti verið misbrestasamt, en því fer fjarri að það hafi misheppnast. Þvert á móti verða leidd að því rök, að ríkisstj. hefur náð þeim markmiðum sem hún stefndi að í fyrstu lotu. En á hitt ætla ég ekki að draga dul, að óvissa ríkir um hinar síðari lotur stjórnarsamstarfsins. Þótt svo sé, þá er of snemmt að ræða um stjórnarslit, hvað þá þingrof og kosningar.
Ég held að ráðlegast sé fyrir núv. stjórnarflokka að halda áfram samstarfi sínu. Ég álít að með því væri hagsmunum þjóðarinnar best borgið. Sannleikurinn er sá, að þessi ríkisstj. á almennu fylgi að fagna meðal þjóðarinnar. Það er meirihlutafylgi í landinu fyrir stjórnarsamstarfi þeirra flokka sem nú fara með völdin. Fólk er almennt þeirrar skoðunar, að ríkisstj., sem nýtur stuðnings þessara þriggja flokka, sé hæfust til að ráða fram úr vanda efnahagsmálanna til nokkurrar frambúðar. Forustumenn stjórnarflokkanna eiga því að setjast niður og ræða í hreinskilni þá misbresti, sem komið hafa fram í stjórnarsamstarfinu, og verða ásáttir um að eyða þeim. Almenningur í landinu vill að stjórnarsamstarfið haldi áfram. Okkur ber skylda til að taka tillit til almenningsálitsins í þessu efni. Almennir kjósendur til sjávar og sveita, launafólk, bændur og sjómenn, svo ég nefni fjölmennustu starfsstéttir þjóðfélagsins, vænta mikils af þessari ríkisstj. og vilja að stjórnarsamstarfið haldi áfram undir forustu Ólafs Jóhannessonar.
En ef þetta stjórnarsamstarf á að halda áfram, þá þarf vissulega ýmsu að breyta í sambúðarháttum stjórnarflokkanna eins og þeir hafa verið til þessa. Sannleikurinn er sá, að hinn málefnalegi ágreiningur hefur ekki valdið mestum erfiðleikum í stjórnarsamstarfinu, heldur liggur beinast við að tala um „hegðunarvanda“, svo að gripið sé til orðalags sem stundum heyrist í umvöndunarræðum skólastjóra og uppeldisfræðinga.
Alþfl. hlaut mikla fylgisaukningu í síðustu kosningum með því að beita lýðskrumsaðferðum. Því miður er skrumið enn í hávegum haft hjá vissum öflum í þessum flokki, og það gerir samvinnu við Alþfl. erfiða að mínum dómi og e. t. v. ómögulega ef haldið verður áfram á sömu braut.
Það er hins vegar þakkarvert, að Alþfl. hefur fallist á stefnu Framsfl. í efnahagsmálum og er fús til að hlíta leiðsögn okkar framsóknarmanna um efnahagsúrræði til frambúðar, ekki síst hvað varðar vísitölumál og fyrirkomulag verðlagsbóta á laun svo og vaxtamál og verðtryggingu sparifjár og útlána. Við framsóknarmenn teljum það mikilvægan ávinning, að okkur skyldi heppnast að fá Alþfl., sem hélt uppi miklum áróðri gegn okkur fyrir kosningar, til þess að fallast á grundvallaratriði í efnahagsmálastefnu okkar. Þannig höfum við unnið málefnalegan sigur sem lengi mun í minnum hafður.
En svo ég snúi mér að Alþb. — hinum samstarfsflokknum — þá horfir málið að sumu leyti öðruvísi við. Því miður er enn ekki svo langt komið í samstarfinu að okkur framsóknarmönnum hafi tekist að sannfæra Alþb.-menn um ýmsa villu síns vegar í efnahagsmálum. Kommarnir eru nokkuð seigir undir tönn, en við erum alls ekki vonlausir um að okkur takist að leiða Alþb. inn á rétta braut í öllum meginatriðum. Okkur tókst vel með kratana, og við erum í miðjum klíðum við að sannfæra kommana um ágæti þeirra efnahagsúrræða sem Ólafur Jóhannesson og aðrir ráðh. Framsfl. beita sér fyrir innan ríkisstj. með fullum stuðningi þm. og miðstjórnar Framsfl.
Á meðan sakir standa þannig er með öllu ótímabært að tala um stjórnarslit og þingrof. Þess vegna ætti enginn að taka þessa vantrauststillögu alvarlega. Hún er út í hött. Það má vissulega sjá snögga bletti á stjórnarsamstarfinu. En hvað er það hjá eymdarástandi stjórnarandstöðunnar? Sjálfstfl. er í litlu áliti hjá þjóðinni og stefna hans er reikul. Forusta flokksins er veik og sjálfri sér sundurþykk. Ég held að sjálfstæðismenn ættu að taka til í eigin húsi áður en þeir fara að vanda um við aðra og heimta kosningar.
Ríkisstj. hefur unnið margt vel á 6 mánaða ferli sínum. Ef horft er fram hjá tilteknum hegðunarvandamálum á stjórnarheimilinu kemur í ljós að stjórnarflokkunum hefur tekist að leysa ýmis brýnustu verkefni sín farsællega.
Hinar fyrstu aðgerðir í efnahags- og ríkisfjármálum hafa verið framkvæmdar eins og ráð var fyrir gert í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna. Ég nefni í því sambandi í fyrsta lagi septemberaðgerðir í efnahagsmálum, sem m. a. urðu til þess að hjól atvinnulífsins tóku aftur að snúast þar sem þau höfðu þegar stöðvast, t. d. í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum. Í öðru lagi nefni ég ráðstafanir gegn hækkanaholskeflu kaupgjalds og verðlags 1. des. s. l. Ég nefni í þriðja lagi afgreiðslu hallalausra fjárlaga fyrir árið 1979, og í fjórða lagi samkomulag innan ríkisstj. um lánsfjáráætlun fyrir árið 1979 sem nú er til meðferðar á Alþingi.
Allt eru þetta merkar stjórnarframkvæmdir og nauðsynlegur undanfari framtíðaraðgerða í efnahags- og ríkisfjármálum. Tímanum síðan 1. sept. hefur því síður en svo verið eytt til ónýtis. Við skulum ekki gleyma því, að ríkisstj. hefur með þessu lagt grundvöll undir frambúðarlausn efnahagsvandans, þó að jafnframt sé viðurkennt að enn stendur upp á stjórnarflokkana að segja sjálft lausnarorðið í þeim efnum. Það hafa þeir ekki gert nákvæmlega á þessari stundu. Og er það nokkuð óeðlilegt? Er eitthvað undarlegt eða óeðlilegt við það, þó að stjórnarflokkarnir hafi ekki að öllu leyti lokið samtölum sín á milli um frambúðarlausn efnahagsmálanna? Það hefur fyrr staðið í stjórnmálamönnum og öðrum valdamönnum í þjóðfélaginu að verða ásáttir um skynsamlegar efnahagsaðgerðir. Hitt er annað mál, að þetta stjórnarsamstarf má aldrei komast á það stig að því sé haldið uppi fyrir siðasakir. Ríkisstj. má ekki druslast áfram aðgerðalaus í aðalvandamálum efnahagslífsins.
Að því verður að koma — og það sem fyrst — að þessi mál verði leyst til frambúðar. Framsóknarmenn eru ekki í þessari stjórn til þess að leggja stund á bráðabirgðareddingar frá degi til dags. Það er komið nóg af slíku undanfarin ár og áratugi.
Framsóknarmenn eru í þessari stjórn til þess að hafa forustu um óhjákvæmilegar efnahagsaðgerðir. Við gengum til stjórnarsamstarfsins í þeirri von, að vilji væri fyrir hendi hjá samstarfsflokkum okkar og forustu stéttarsamtaka í landinu til að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Á henni þarf að sigrast. Það er misskilningur sem Alþb.-menn, eins og viðskrh. áðan, halda gjarnan fram, að við höfum náð tökum á verðbólguþróuninni þótt úr verðbólgu hafi dregið um sinn á meðan hinna fyrstu aðgerða ríkisstj. í efnahagsmálum nýtur við. Verðbólgan er því miður enn á flugstigi og í engu samræmi við kröfur heilbrigðs efnahagslífs. Það mun ekki takast að hefta verðbólguna til frambúðar nema m. a. að ný kauplags- og verðlagsstefna verði tekin upp. Í því sambandi er grundvallaratriði að breyta vísitölufyrirkomulagi því sem nú gildir og greiðslu verðbóta á laun. Að halda öðru fram er að berja höfðinu við steininn. Verði engu breytt er líklegast að verðbólguvöxtur haldi áfram að vera 40–50% á ári áður en langt um líður.
Það er reginmisskilningur að halda því fram, að launamenn hagnist á núverandi vísitölukerfi og greiðslu verðlagsbóta. Vísitölukerfið er einn aðalorsakavaldur verðbólgunnar og af þeim sökum skaðræði fyrir efnahagslífið. Vísitölukerfið í núverandi mynd tryggir ekki heldur kaupmátt launa. Það hefur skeð á síðustu árum að kaup hefur hækkað um 50–60% á ári í krónutölu, en kaupmáttaraukning hefur verið innan við 10%. Launþegar hafa engan raunverulegan ávinning af þessu verðbólguaukandi vísitölukerfi þegar til lengdar lætur. Það verður því að finna nýja leið í sambandi við greiðslu verðbóta á laun. Við verðum að forðast það að festast í úreltum kreddum í sambandi við kjaramál og hanga á kreddunum eins og hundur á roði.
Stefna Framsfl. í kjaramálum er í stuttu máli sú, að haldið sé uppi fullri atvinnu í landinu og að launamunur sé ekki óeðlilega mikill. Við viljum létta vinnuoki af fólki. Við viljum láta stytta vinnudaginn án kaupskerðingar, m. a. með því að taka upp nýtt verkstjórnarskipulag og vinnutilhögun, ekki síst í frystihúsum og í verksmiðjum. Við viljum láta gerbreyta lífeyrissjóðakerfinu þannig að allir séu í verðtryggðum lífeyrissjóði og þar ríki jöfnuður og réttlæti. Við viljum að Alþ. sé vettvangur félagslegra umbóta og ríkisstj. hafi forgöngu um kjara- og mannréttindamál. Við viljum að sjálfsögðu opið og lífrænt samband ríkisvaldsins við samtök stéttanna og aðra hagsmunaaðila í landinu. En við hljótum að gera þá kröfu til þeirra að þeir virði úrskurðavald Alþingis í öllu sem varðar efnahagsstjórn og hvers kyns löggjafarmálefni.
Viðhorf Framsfl. í kjaramálum eru í samræmi við nútímaaðstæður í þjóðfélaginu m. a. að því leyti, að stéttaandstæður eru litlar á Íslandi. Stéttaandstæður hér eru ekki meiri en við er að búast í mannlegu samfélagi þar sem verkaskipting á sér stað, hlýtur að verða og er nauðsynleg.
Höfuðatriðið er að móta launa- og verðlagsstefnu sem tryggir launþegum rétta hlutdeild í þjóðartekjum og þjóðarframleiðslu sem og kaupmátt launa, en veldur ekki sífelldum víxlverkunum milli verðlags og kaupgjalds, þ. e. a. s. niðurdrepandi verðbólgu, eins og við höfum orðið að þola í marga áratugi og þó hvað mest á þeim áratug sem nú er að líða. Verðbólgan er efnahagslegt vandamál, en hún er líka siðrænt vandamál sem liggur á þjóðinni eins og mara. Við þurfum að létta af okkur martröð verðbólgunnar og koma efnahagskerfi okkar í eðlilegt horf. Slíkt er vandalaust ef samstarfsvilji stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka er fyrir hendi. Íslendingar eru ekki fjölmennari en það og hagsmunaárekstrar ekki meiri en svo, að menn ættu að geta unnið saman að rekstri þessa litla samfélags í sæmilegum friði og án stórátaka milli stjórnmálaflokka, stétta og hagsmunahópa.
Ég held að það sé kominn tími til þess að Íslendingar fari að létta af sér fargi ófrjórra deilna um efnahags- og atvinnumál. Sannleikurinn er sá, að þjóðfélagsumr. hér á landi er í vítahring. Má svo heita að öll stjórnmálaumr. snúist um efnahags- og kjaramál í allra þrengstu merkingu.
En stjórnmál spanna miklu víðara svið en svo, að þau eigi að snúast um þetta eitt. Hvers vegna er ekki meira gert að því að ræða almenn félagsmál, samskipti kynslóðanna og mannréttindamál í ýmsum myndum? Hvers vegna eru menningarmálin hornreka í þjóðmálaumr.? Hvers vegna taka skóla- og fræðslumál jafnlítið rúm í daglegri pólitík og raun ber vitni? Hvers vegna er svo lítið talað um grundvallarþætti stjórnskipunar landsins og sjálft „valdið“ í þjóðfélaginu? Hvar er „valdið“ í þjóðfélaginu? Hvers vegna er ekki vakinn upp áhugi hjá fólki að ræða alþjóðamál sem svo mjög snerta líf okkar og afkomu? Og þannig mætti lengi telja.
Herra forseti. Góðir útvarpshlustendur. Ég vil endurtaka upphafsorð mín um það, að þessi till. sjálfstæðismanna um þingrof og nýjar kosningar er ótímabær og illa rökstudd. Þótt ýmsu sé áfátt í þessu stjórnarsamstarfi getur ekki talist fullreynt enn um samkomulag stjórnarflokkanna að því er varðar varanlegar efnahagsaðgerðir. Nýjar kosningar leysa ekki þann vanda sem við er að glíma. Þrátt fyrir þessi orð mín útiloka ég ekki þann möguleika að stjórnarsamstarfið geti rofnað vegna skoðanaágreinings, en mér finnst að það verði þá að bera að með öðrum hætti en með þeim samþ. till. af þessu tagi.
Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu. Góða nótt.