07.03.1979
Sameinað þing: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3043 í B-deild Alþingistíðinda. (2384)
207. mál, þingrof og nýjar kosningar
Gunnlaugur Finnsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að blanda mér lítillega í þessar umr. og það er kannske ekki síst vegna þess að ég á ekki von á því, þegar væntanlega verður lagt fram frv. um efnahagsmál, að verða viðstaddur til að taka þátt í þeim umr. Hér er þó í raun og veru ekki efnahagsmál á dagskrá, heldur þáltill. um þingrof og nýjar kosningar, en ég vil leyfa mér að gera slíkt hið sama og margir ræðumenn hafa gert undir þessum dagskrárlið sem og í umr. um aðra dagskrárliði á liðnum dögum, að minnast nokkuð á efnahagsmál og þá stöðu, sem nú er upp komin. Er ekki síst ástæða til þess þar sem þessi þáltill. er einmitt fram komin vegna umr. um efnahagsmál.
Ég vil í því sambandi leyfa mér að hverfa ofurlítið til baka, minnast á forsendur fyrir því að sú staða er uppi sem nú er komin. Ég vil leyfa mér að rifja upp, að í kosningabaráttunni á s. l. sumri töldu ákveðnir flokkar sig vera flokka og fulltrúa launþeganna í landinu. Fyrir utan það að Sjálfstfl. hefur jafnan kynnt sig sem fulltrúa allra stétta töldu núv. samstarfsflokkar Framsfl. í ríkisstj. sig vera sérstaka málsvara launþeganna. En það er athyglisvert að leiða að því hugann, hve stór hluti þjóðarinnar launþegarnir eru. Hér er um að ræða alla þá sem eru innan vébanda ASÍ, ekki aðeins verkafólkið, heldur og ýmsa aðra, svo sem hinn svonefnda uppmælingaraðal, marga hátekjuhópa sem eftir sérstökum leiðum hafa komist undir það vísitöluþak sem ákveðið var á liðnu ári. Undir skilgreiningu launþega falla líka allir sem eru starfandi innan BSRB, allir ríkisstarfsmenn, allir starfsmenn sveitarfélaganna í landinu, allir sem eru undir hatti BHM, þ. e. a. s. nánar tilgreint allir þeir sem taka laun hjá öðrum en sjálfum sér. Og ef við lítum á málið nánar, hvað ætli þeir séu mörg prósent þjóðarinnar? Það kann að fara nokkuð eftir því, hvort bændur í landinu eru skilgreindir sem atvinnurekendur eða launþegar. En burtséð frá því hvar sú skilgreining fellur hygg ég að hér sé um yfir 90% þjóðarinnar að ræða. Og ég tel að það hafi verið býsna mikil kokhreysti, enda ekki nema í samræmi við önnur áróðursbrögð, að telja sig vera sérstaka málsvara svo stórs hluta þjóðarinnar.
Hins vegar var vitanlega vitandi vits ruglað saman í öllum umræðum launþegasamtökunum annars vegar og verkalýðsbaráttunni hins vegar, þar sem verkalýðshreyfingin er aðeins hluti af launþegasamtökunum. Ég efast ekki um að enn í dag telja þessir samstarfsflokkar Framsfl. í ríkisstj. sig vera fulltrúa launþeganna. En þá hljótum við að koma að þeirri spurningu: Hvernig stendur á því, að þessa tvo flokka greinir svo mjög á um það, hvernig þeir geti staðið við fyrri yfirlýsingar sínar og verið áfram fulltrúar launþega?
Þessir flokkar tveir höfðu tvö meginatriði á oddinum — þau atriði sem eflaust færðu þeim þann kosningasigur sem raun varð á. Það var annars vegar að berjast fyrir því að samningarnir tækju gildi og hins vegar var talið nauðsynlegt að vinna að hjöðnun verðbólgu, hvor tveggja málin vinsæl og sigurstrangleg. Þá var hins vegar ekki gerð tilraun til þess að brjóta það til mergjar, hvernig saman gæti farið að ná tökum á verðbólgunni annars vegar og að láta samningana taka fullt gildi hins vegar, enda alls ekki til þess ætlast að hinn almenni kjósandi í landinu hefði möguleika á að kafa svo djúpt í málið að hann gerði sér þetta ljóst eða bryti það til mergjar.
Atvinnuleysi var þá talið vera eins og umræður um eitthvern hitabeltissjúkdóm úti í hinum stóra heimi sem kæmi ekki par við hið íslenska þjóðfélag. Og þegar minnst var á að ýmsar aðgerðir hefðu verið gerðar og kostað verðbólgu til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi, þá var lítt á það hlustað.
Ef við athugum svo söguna í framhaldi af þessu þá virðist Alþfl. hafa gleymt fyrra atriðinu, þ. e. a. s. um samningana í gildi, og hann hefur raunar ekki minnst á þennan þátt baráttunnar frá liðnu sumri. Það hefur jafnvel verið viðurkennt opinberlega, að í raun og veru hafi það ekki legið ljóst fyrir í flokksherbergi Alþfl., hver þróun væri fram undan í efnahagsmálum. Hins vegar hefur Alþfl. nú lagt höfuðáherslu á hjöðnun verðbólgunnar. Og ég verð að segja að mér þykir á margan hátt virðingarvert að hann skuli nú vera reiðubúinn til þess að taka á sig óvinsældir. Þar sem hann hefur horfið frá hinum fyrri stefnumiðum í kosningabaráttunni að því er varðar samningana í gildi, og staðið við hitt atriðið: að leggja áherslu á hjöðnun verðbólgu. Mér hefur að vísu oft fundist í þeim umr., að hann nálgaðist aðgerðir eða sjónarmið sem uppi voru höfð þegar atvinnuleysið heimsótti okkur á árunum 1967–1968, og við verðum vissulega að gjalda fullan varhug við að við lendum aftur í þeirri gryfju sem íslenska þjóðfélagið lenti í þá.
Afstaða Alþb. hefur hins vegar verið sú, að Alþb. hefur haldið fast við þá túlkun að fá samningana í gildi þar sem mögulegt hefur verið, en hins vegar hefur ekki, a. m. k. að mínu mati, að svo miklu leyti sem ég hef kynnst málum, verið nein fótfesta varðandi það markmið að ná verðbólgunni niður fyrir 30%. Alþb. hefur gjarnan túlkað hugmyndir sínar um samráð við launþegasamtökin á þann veg, að hlíta bæri þeirri forskrift sem launþegasamtökin hafa sett fram. Við verðum að athuga það, að þegar við erum að takast á við verðbólgumálin dugar í raun og veru ekki nein óskhyggja. Við vitum að enginn læknir sker burt magann að öllu leyti úr magasjúklingi. Hann reynir að nema burt þær meinsemdir, sem hann telur sér fært að taka, en lækna hitt. Og alveg á sama hátt fer með þennan sjúkdóm. Ég held að það sé óskhyggja að gera ráð fyrir öðru en að hjöðnun verðbólgu verði að eiga sér stað í áföngum, þannig að það sé keppt að vissu marki, en það taki ekki 1–2 ár, það gæti jafnvel verið 3–4 ára markmið að ná því takmarki að við séum á svipuðu stigi og nálægar þjóðir.
En svo að ég viki aftur að afstöðunni til launþegasamtakanna, þá hljóta þar að vera býsna sundurleit sjónarmið. Eins og ég gat um áðan, þegar ég taldi upp hver væru launþegasamtökin í landinu í raun og veru, eru innan þeirra vébanda bæði hátekjuhópar og lágtekjumenn, og við höfum heyrt, ekki síst í umr. um svokallað vísitöluþak, að þar eru skiptar skoðanir. Þess vegna hlýtur að vera erfitt verk að miðla málum og kom raunar fram, þegar átti að leita til launþegasamtakanna í heild, að þau gátu ekki komið sér saman og það þurfti helst að ræða við hvern hóp út af fyrir sig.
Ég held að það sé líka rétt að minnast á að hin „vonda hægri stjórn“ setti lög um láglaunabætur. Ég efast um að það hafi nokkur reiknað með því, að við meðferð áframhaldandi samninga við launþegasamtökin mundu láglaunabæturnar verka alla leið upp í gegnum launaflokkana og verða til þess m. a. að laun þm. lækkuðu.
Aftur voru sett lög, lög sem voru sprengd upp nú fyrir tveimur dögum eða svo með kjaradómi, og við stöndum nú aftur frammi fyrir því, að hlutur láglaunastéttanna í landinu, miðað við óbreytt vísitöluform og miðað við þá verðbólgu sem nú er, hlýtur enn að versna í þessari samkeppni og því herða á því, að tökum verði náð á verðbólgunni. Miðað við hin sundurleitu sjónarmið, sem hljóta að koma frá launþegasamtökunum, hlýtur ríkisvaldið að verða að meta til hvers það tekur tillit og hverju er hafnað.
Ég vil leyfa mér í þessu sambandi að minna á það, og kem aðeins þá aftur að því sem sagt var þegar talað var um samningana í gildi, að eitt af þeim árásaratriðum, sem voru mjög uppi gagnvart fyrrv. ríkisstjórnarflokkum, var sú hugmynd að taka óbeinu skattana út úr vísitölunni. Ég verð líka að vekja athygli á því, að það var vegna samráðs við launþegasamtökin að þetta ákvæði var fellt út. En það var ekki metið að neinu. Ég vil líka varpa fram þeirri spurningu til þeirra, sem að ríkisstj. standa, hvort þeir á liðnu hausti hefðu ekki haft rýmri möguleika til þess að ákvarða tekjur ríkissjóðs fyrir árið 1979 ef þetta ákvæði hefði verið lögfest og komið til framkvæmda 1. jan. s. l. Ég vil varpa því fram, hvort það hefði ekki einfaldað þann dans sem stiginn er ekki aðeins af þessari ríkisstj., heldur af öllum ríkisstjórnum, — þann dans, sem stiginn er í kringum vísitölukerfið. Alþfl. hafði lýst yfir að hann vildi jafnvel afnám tekjuskatts. Ætli það sé ekki liður í því, að hann hefur horfið frá því, að það var þröngt um vik að marka tekjur ríkissjóðs fyrir árið 1979 vegna þess að þessi ákvæði voru ekki lögfest?
Það væri út af fyrir sig langt mál að tala um vísitöluleikinn. Ég vil leyfa mér í því sambandi að vekja athygli á því hér á Alþ., að eitt af þeim atriðum, sem nauðsynlegt er að endurskoða í forsendum útreiknings um vísitöluna, er að taka inn fleiri þætti en nákvæmlega það sem gerist hér í Reykjavík. Mér hrýs t. d. hugur við því, að á sama tíma og setið er á hækkunum hitaveitugjalda í Reykjavík vegna vísitölu, þá kemur ekki svo mikið sem brot af prósentuhækkun vísitölunnar til hagsbóta launþegum úti um landið vegna hækkunar hjá þeim sem kynda með olíu. Ég nefni aðeins eitt atriði í þessu dæmi.
Ég vil leyfa mér í framhaldi af þessu að benda hv. Alþb.-mönnum á það, þar sem kemur mjög fram að þeir vilja taka fullt tillit til afstöðu launþegasamtakanna, að eitt af því, sem kemur fram af hálfu Alþýðusambands Íslands, er að halda við það að óbeinir skattar verði ekki teknir út úr vísitölunni, en vilja gjarnan að beinir skattar verði teknir inn í hana. Ég hygg að þeir geri sér ljósa grein fyrir því, að ekki er stætt á því að hafa hluta af skatttekjum ríkisins bundinn vísitölu, en annan hluta utan við. Það kemur líka í veg fyrir að stjórnvöld hverju sinni geti markað ákveðna stefnu í skattamálum.
Ég vil benda á hvaða áhrif það hefur ef beinu skattarnir verða nú líka teknir inn í vísitöluna, ef við einföldum dæmið fyrir okkur. Það þýðir bókstaflega það, að ef samdráttur verður í ríkisumsvifum, ef við drögum saman félagslegar framkvæmdir og aðgerðir verður lækkun á kaupi. Í hvert einasta skipti sem samþykkt er fjárveiting fyrir sjúkrahús, skóla eða dagheimili, eða hvaða nöfnum sem við nefnum það, erum við að samþykkja hækkun á almennu kaupi í landinu. Þetta tel ég vera algerlega ófært.
Ég vildi leyfa mér, herra forseti, að benda á þessi atriði. Að síðustu vil ég segja það, að mér finnst að samstarfsflokkar okkar í ríkisstj. þurfi að framkvæma nokkra sjálfsskoðun. Þar á ég ekki við neina naflaskoðun, en ég á við að þeir þurfi að kanna, a. m. k. sumir aðilar þar, hvort þeir kunni að hafa kok og maga til þess að kyngja ýmsum þeim stóryrðum sem fallið hafa á milli þessara samstarfsflokka okkar framsóknarmanna í ríkisstj. á undanförnum dögum og á undanförnum vikum. Ég vona sannarlega að þeir komist að þeirri niðurstöðu, að þeim verði það kleift. Ég vona að þessir þrír flokkar, sem hafa það sameiginlegt að vera félagshyggjuflokkar og vilja koma fram mörgum félagshyggjusjónarmiðum og aðgerðum, setjist við eitt borð og stuðli að því í framtíðinni að ýmis þau stefnumál nái fram að ganga sem stjórnin hefur einsett sér að vinna að.
Varðandi þá till., sem hér liggur fyrir, treysti ég því, að á næstu dögum fáist úr þessu skorið og þess vegna skuli ekki settur með þáltill. einhver eindagi á Alþ., sbr. brtt. hv. 3. þm. Norðurl. e., Braga Sigurjónssonar, né heldur er ég samþykkur því, að Alþ. samþykki að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Ég lít svo á að þættir í þeim frv.-drögum, sem hafa legið fyrir ríkisstj.,— þá á ég fyrst og fremst við verðtryggingu á sparifé og útlánum og eins að hægt verði að breyta vísitölugrundvellinum til réttara forms, — séu þann veg vaxnir að ég vil freista þess að þessir þrír flokkar nái aftur saman.