07.03.1979
Sameinað þing: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3067 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)

207. mál, þingrof og nýjar kosningar

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls við þessa umr. Þess vegna gerir mér það ekki mikið til þó að margir séu fjarverandi þegar það er sagt sem ég ætla að segja, því sá er hér kominn sem gerði það að verkum að ég fór að biðja um orðið.

Það kom fram í ræðu hv. 1. þm. Vestf., að hann tók að vitna til fjármálastjórnar á árunum 1971–1974, og síðar hefur komið fram í ræðum hv. þm., hv. 7. þm. Reykv., sem kemur víða við, að vitna til ágætis þess tímabils sem kennt var við viðreisn, en því lauk með þeim dómi, að einn af samherjum ríkisstj. og þm. þáv., Ólafur Björnsson prófessor, líkti ástandinu fyrir kosningarnar 1971 með orðinu „hrollvekja.“ Það var hrollvekja af hans hálfu að horfa til þess ástands sem væri í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ég er ekki viss um að hv. 1. þm. Vestf. hafi haft þetta í huga í dag þegar hann talaði um gilda sjóði sem sú ríkisstj. hefði skilið eftir. Ég held líka að það muni ekki hafa verið í hans huga eða annarra hv. alþm., að sú ríkisstj. hafði því miður ekki skilað miklu, hvorki í flota til fiskveiða fyrir landsmenn né útfærslu landhelgi, svo sem kunnugt er. Ég skal svo ekki fleiri orðum að þeirri stjórn eyða.

Ég sagði við hv. 1. þm. Reykn., að hann mundi vera einn af þeim fáu mönnum sem settust í fjmrh.-stól og hefðu með sér í ríkisstj. fyrirrennara sinn og meira að segja tvo frekar en einn, og það væri ekki lítils virði þegar fjmrh. nyti þess ef horft er á gagnrýnina. Þau ár, sem ég fór með embætti fjmrh., þurfti ég ekki undan því að kvarta að gagnrýni væri ekki haldið uppi hér á hv. Alþ. Og satt að segja hef ég oft hugsað til þess á þessu hausti, hvað minna hefur verið að gert í þeim efnum nú en þá var gert. En það var Gunnar Thoroddsen, hv. þm., sem hafði líka verið fjmrh. og sat í síðustu ríkisstj.

Þá vil ég gefa skýringar á því, því að ég hef ekki eytt í það miklum tíma hér á hv. Alþ., síðan ég hætti fjmrh. starfinu, að verja gerðir fjmrh. vinstri stjórnarinnar sem sat frá 1971–1974, en að gefnu þessu tilefni í dag langar mig til að gefa yfirlit yfir stöðu þá sem var hjá ríkissjóði þegar vinstri stjórnin tók við í júlí og þegar hún fór frá völdum 31. ágúst 1974 og svo það sem nú var skilið við hinn 31. ágúst 1978.

Skuldir ríkissjóðs við Seðlabanka Íslands á þeim dögum, þegar viðskilnaður átti sér stað, var þannig, að skuld ríkissjóðs 1971 var 1 milljarður 204 millj. kr. Þess vegna er það á misskilningi byggt að við einhverjum sjóði hafi verið tekið. Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann hinn 31. 8. 1974, þegar ég fór úr stól fjmrh., var 2.4 milljarðar kr. Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann nú 31. 8. 1978 var 25.1 milljarður kr. Þessar staðreyndir eru til vitnis um það sem að var vikið hér í dag og knúði mig til þess að skýra frá þessu hér á hv. Alþ. Ég vil þessu til viðbótar geta þess, að í júlímánuði 1974, þegar hv. 4. þm. Reykv., Geir Hallgrímsson, gerði tilraun til stjórnarmyndunar, gerðu þeir úttekt á þjóðarbúinu fyrir hans tilstilli, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, Jón Sigurðsson, og bankastjóri Seðlabankans, Jóhannes Nordal. Í þeirri skýrslu, sem þeir afhentu þá og við þáv. ráðh. fengum í hendur, þ. á m. ég, taka þeir fram að það sé allt útlit fyrir að það megi halda þannig á fjármálum ríkissjóðs að það verði ekki halli á ríkissjóði í árslok 1974. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að það fer jafnan svo, að þegar nýr fjmrh. tekur við hefur það áhrif á uppgjör þess árs sem þá er að líða, svo var og 1974. En þetta er í skýrslunni sem ég fékk í mínar hendur og hef enn um þeirra spádóm, og þar töluðu þeir sem áttu að hafa vitið og þekkinguna.

Ég vil líka benda á það, að fjárlagagerð ársins 1974 var mjög erfið vegna þess að þáv. ríkisstj. hafði ekki meiri hl. hér á Alþ. Bjarni Guðnason hafði þá yfirgefið þá ríkisstj., svo að hún hafði ekki meiri hl. Eitt af þeim verkum, sem þurfti að leysa af hendi við þá fjárlagagerð, var að lækka tekjur af tollum vegna samninganna við EFTA og EBE. Þá var það fellt hér í hv. Alþ. eða það fékkst ekki fyrir því samstaða að koma í gegn tekjuöflun á móti þessu. Þess vegna átti þáv. fjmrh. ekki nema um tvo kosti að velja. Annar var sá fyrir hann og ríkisstj. í heild að brjóta þessa samninga, — það var auðvitað mjög andstætt bæði forsrh. og utanrrh., — eða þá að taka áhættuna af tekjuöflun vegna tollalækkunar, sem ég held að ég muni rétt að var um 400 millj. kr. Þá tókst mér að gera samkomulag við Alþfl. óformlega, formann hans og varaformann, að ef ég næði samkomutagi við ASÍ, sem þá átti eftir að gera kjarasamninga og var verið að reyna að semja við, m. a. um að fella niður úr vísitölunni áfengi og tóbak og bensín og þungaskatt af bifreiðum, þá lofuðu þessir forustumenn Alþfl. mér því, að ef ég næði samkomulagi við ASÍ um að hækka söluskattinn um 5% eða 5 stig, sem stefnt var að, þá skyldu þeir fylgja þessari ákvörðun. Svo fór um þetta fyrirheit, að 4 stig fengust samþykkt síðar á þinginu þrátt fyrir að ég stæði við það samkomulag sem ég hafði gert við þá ASÍ-menn, en fékk þó ekki út úr því annað en taka áfengi og tóbak út úr vísitölu, sem hefur verið svo síðan. Þessi áhætta var því veruleg og þetta var ekki leiðrétt fyrr en eftirmaður minn var kominn í sæti fjmrh. Þá var þetta samþ, hér á hv. Alþ., og stóð ég fast með honum í þeirri nauðsyn að afla þeirra tekna og fleiri tekna sem þá var aflað, eins og þeir hv. þm., sem þá sátu hér á Alþ., muna eftir. Og þegar var verið að reyna þá að mynda ríkisstj. með Alþfl. og Alþb., þá var m. a. um það deilt, hvort þörf væri á þessari tekjuöflun. En í stjórn Geirs Hallgrímssonar var þetta viðurkennt og þá varð þetta að raunveruleika.

Ég vil líka minna á það í sambandi við árið 1974, að það var langt frá því, eins og kom fram í umr. í gærkvöld, að það væri neitt gæðaár. Þá varð verðfall á aðalútflutningsafurðum okkar og meira en það, það var sölutregða á árinu 1974, og það var ekki fyrr en á árinu 1976 sem raunverulega rættist úr þeim erfiðleikum í sambandi við sölu á íslenskum fiski til annarra landa sem komu upp árið 1974.

Ég vil líka minna á það, að á árinu 1973 skall á olíukreppa ekki minni en sú sem nú er mikið rædd, en þá ræddu menn ekki eins um hana, því að þá gerðu þeir sér ekki eins grein fyrir afleiðingum hennar og nú virðist vera orðið. Hún kom fyrst til áhrifa á árinu 1974. Hún hafði geysileg áhrif á verðbólgu og afkomu ríkissjóðs. Sama er að segja um Vestmannaeyjagosið sem kom upp á því kjörtímabili sem vinstri stjórnin sat. Það hafði meiri áhrif en menn hafa almennt gert sér grein fyrir, bæði á tekjuöflun ríkissjóðs og stöðu hans, enn fremur á verðbólguna. Allt þetta hafði geysileg áhrif á þessa tvo höfuðþætti í efnahagsmálum. Auk þess varð það svo, að í baráttunni um landhelgina var ekkert í það horft eða til sparað sem út þurfti að greiða vegna þess máls. Það var látið hafa svo algeran forgang að ekki þótti ástæða til annars en virða það á hvaða veg sem var. Það var lagt kapp á að ná því máli fram, sem og tókst, og það var aðalatriðið. Hins vegar varð ríkissjóður oft að gjalda þar meira en hugsað hafði verið.

Þessar upplýsingar vil ég nú gefa vegna þess sem fram hefur komið hér í dag og kom mér á vissan hátt á óvart. En út af fyrir sig er ég því þakklátur, því að hið rétta hefur nú komið fram. Ég vil líka segja það, að það hefur komið fram í þessum umr. og kom fram í umr. í gærkvöld, að verk þeirrar ríkisstj., sem frá verki fer, verða oft lítils metin af þeim, sem við taka. Auðvitað er það rétt, að mörg voru þau atriði hjá síðustu ríkisstj. þar sem hún náði ekki þeim árangri sem hún ætlaði sér að ná. Um það ætla ég ekki að fara að deila. En ég vil minna á það, að s. l. ár var meiri atvinna hér á landi og stöðugri og öruggari en sennilega nokkru sinni fyrr. Þjóðarframleiðslan jókst á því ári um 3.5%. Þjóðartekjur jukust um 3%, því að viðskiptakjörin versnuðu seint á árinu vegna þess að dollarinn lækkaði. Vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 6–7 milljarða eða um 1% af þjóðarframleiðslu. Greiðslujöfnuður var hagstæður um 10 milljarða, svo að gjaldeyrisstaðan batnaði á árinu um ca. 11 milljarða. Erlendar lántökur til langs tíma voru helmingi minni á árinu 1978 en á næsta ári á undan. Ég vil líka minna á það, að á þessum árum var gert margt til þess að bæta stöðu þjóðarinnar gagnvart þeim erfiðleikum sem nú er að fást við á nýjan leik, þar sem er olíukreppan. Í hitaveitumálum var unnið hér geysilega mikið, og að virkjunarmálum var á s. l. 5 árum unnið hér á landi meira en á nokkrum 5 árum öðrum. Ég vil líka minna á það, að einkaneysla á mann var meiri á s. l. ári en nokkru sinni fyrr. Það þýðir að afkoma fólksins í landinu varðandi tekjur var betri en áður hefur verið. Þetta mega þeir gjarnan heyra og vita sem hafa talað um þá stjórn sem einhverja vandræðastjórn, þó að henni hafi ekki allt vel tekist.

Áður en ég lýk máli mínu vil ég aðeins í lokin, vegna þeirra umr. sem hafa farið fram hér á hv. Alþ. í vetur og eins víðar í þjóðfélaginu um afkomu landbúnaðarins, segja það, að á s. l. ári var framleiðsla landbúnaðarins á Íslandi meiri en hún hefur nokkurn tíma verið áður. Tekjur bænda á árunum 1977 og 1978 eru líka meiri en nokkru sinni fyrr. Á þessum síðustu árum hafa orðið glæsilegar framkvæmdir, bæði í sveitum landsins og í þeim vinnslustöðvum er landbúnaði tilheyra. Allt þetta gerir það að verkum, að þjóðin og bændastéttin í þessu tilfelli er betur undir það búin að fást við þau átök sem vandamálin, sem nú er við að fást, skapa henni. Einhvern tíma hefði það verið talin saga til næsta bæjar hér á landi, að landbúnaðarframleiðsla í okkar landi væri orðin of mikil og við hefðum af því miklar áhyggjur, og hitt, að við hefðum fóður svo að við gætum selt öðrum þjóðum. Þannig hafa verk okkar, þeirra kynslóða sem að þessu hafa unnið um langt skeið, skilað árangri, og ég efast ekkert um að í veröld sem sveltir munu matvæli verða þess virði að verð fyrir þau fáist með eðlilegum hætti, svo að ekki verði vandræði við að búa. En hitt vil ég líka taka undir, að ef við byggjum ekki við jafnmikla verðbólgu og við gerum, þá væru þessi vandamál að sjálfsögðu minni sem og önnur vandamál okkar í viðskiptum við aðrar þjóðir. Þess vegna tek ég undir það, að þjóðin í heild þarf að gera sér grein fyrir því að leysa þennan vanda, en hann verður ekki leystur að mínu mati á nokkrum vikum og ekki með hávaðagjálfri hér í þingsölum, heldur með samstilltu átaki þeirra sem þar eru að verki og forustuna hafa. Það er ég sannfærður um að er sú eina farsæla leið til að leysa þessi vandamál sem við er að fást.