07.03.1979
Sameinað þing: 63. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3088 í B-deild Alþingistíðinda. (2393)

207. mál, þingrof og nýjar kosningar

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Við Háskóla Íslands eru kennd þjóðfélagsvísindi og ein greinin, sem kennd er í þeirri deild, fjallar um stjórnmálafræði. Við heyrðum nú síðasta klukkutímann eða svo sýnishorn af fyrirlestrum sem sjálfsagt eru haldnir í þessari deild Háskólans. Hér var um að ræða fyrirlestur og fræðilegar vangaveltur um það, af hvaða hvötum einstakir þm. flyttu till. sínar eða héldu uppi ákveðnum mátflutningi. Hér voru miklar vangaveltur um það, af hvaða hvötum og af hvaða toga ákveðnar stefnur og sjónarmið væru sett fram af ákveðnum flokkum í þessu landi, og ég held að ef þetta sýnishorn er dæmigert um það, hvernig stjórnmálafræði er kennd við Háskólann, þá sé ekki von á góðu úr þeirri átt.

Ég get sagt hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni það, að við ungir sjálfstæðismenn, sem m. a. eigum sæti hér á þingi, erum eindregið fylgjandi því að opna skuli umr. í íslenskum stjórnmálum, en við vildum ekki opna þá umr. með því að heyra svona gamalkunnar „klisjur“, svona vangaveltur, eins og fram komu í þessari ræðu, heldur viljum við að umr. sé raunverulega opin, hún sé hreinskilin og heiðarleg og að stjórnmálamenn séu í raunverulegu jarðsambandi við fólkið og það sem er að ske í kringum þá. Ég held að þessi ræða, sem var flutt áðan, sé besta staðfestingin á því, hvers vegna þessi hv. þm. hefur komið við í a. m. k. þremur stjórnmálaflokkum.

Hv. þm. Ólafur Ragnar hefur tamið sér ákaflega sérstæðan ræðustíl. Hann gefur sér fyrst forsendur, yfirleitt rangar forsendur, og eyðir síðan löngu máli í að draga af þeim ályktanir, auðvitað líka rangar ályktanir. Hann vék lítillega að þeirri skoðanakönnun, sem Dagblaðið birti í dag, þar sem fram kemur að Alþfl. hefur tapað umtalsverðu fylgi, en Alþb. stendur nokkurn veginn í stað. Hann vekur athygli þeirra Alþfl.-manna réttilega á því, að þetta tap Alþfl. stafi fyrst og fremst af því að þeir hafi haldið uppi vitlausum málflutningi og röngum tillögubúningi. Og ég held að það sé rétt niðurstaða hjá Dagblaðinu, að Alþfl. sé búinn að dæma sig sjálfur í þá stöðu sem þessi skoðanakönnun sýnir. Fólkið er búið að sjá að Alþfl.-menn og fulltrúar þess á þingi eru spjátrungar, lýðskrumarar sem ekki er hægt að taka mark á.

En Alþb. stendur í stað samkv. þessari skoðanakönnun. Ég vil aðeins segja að ég held að skýringin sé á því sú, að þm. Alþfl. hafa haft of hátt hér í þinginu. Þeir hafa haldið svo margar ræður að aðrir hafa ekki komist að, og m. a. hefur hv. þm. Ólafur Ragnar því miður ekki komist að sem skyldi. Nú ætla ég að beina þeirri velviljuðu ábendingu til þeirra Alþfl.-manna, að þeir hægi nú aðeins á sér, minnki nú aðeins ræðuflutninginn svo að hv. þm. Ólafur Ragnar komist sem oftast að, vegna þess að ég held að eftir því sem hann heldur fleiri ræður af því tagi sem hann flutti áðan muni fylgi Alþb. hrynja niður og verða nokkurn veginn það sama og fylgi Alþfl. er nú samkv. þessari skoðanakönnun.

Hv. þm. Ólafur Ragnar ruglar saman mjög einföldum hugtökum. Hann t. d. ruglar saman orðum eins og „tilgangi“ og „tilefni“. Hann sneri út úr orðum hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur með þeim hætti áðan. Hún var að tala um það, hvert væri tilefni þess að sjálfstæðismenn flyttu þessa till. sem er nú á dagskrá. Tilefni þessarar till. er einmitt sá málflutningur og sundrung og þau ummæli sem stuðningsmenn þessarar stjórnar hafa viðhaft undanfarna daga og vikur, og tilefnið er m. a. sú till. sem hv. þm. Vilmundur Gylfason flutti fyrir nokkrum dögum um þjóðaratkvgr. Þetta er tilefnið. En tilgangurinn er allt annar og tilgangur er ekki sama og tilefni. Og nú skal ég svara spurningu hv. þm., þegar hann spyr hver sé tilgangurinn með þessum tillöguflutningi. Það liggur ljóst fyrir. Tilgangur okkar sjálfstæðismanna er að upplýsa þjóðina um það ástand sem ríkir núna innan ríkisstj. og þeirra flokka sem styðja hana, upplýsa þjóðina um þá sundrungu sem ríkir um þau veigamestu mál, efnahagsmálin, sem nú eru efst á baugi, og það er tilgangur okkar að gefa þessum flokkum, sem nú standa að ríkisstj., tækifæri til þess að leggja stefnu sína eða stefnuleysi í dóm þjóðarinnar, þannig að hún geti sjálf tekið ákvörðun um það, hvort hún vilji að þessir menn stjórni áfram eða ekki. Og ef ástandið er svo gott sem t. d. hæstv. iðnrh. gaf í skyn í gær og reyndar fleiri hæstv. ráðh. gerðu, hvers vegna eru þeir þá hræddir við að leggja stefnu sína undir dóm þjóðarinnar? (Gripið fram í.) Ekki eru þeir mjög áhugasamir um að samþ. þessa till., enda þótt öllum sé ljóst hvernig ástandið er innan ríkisstj., og kem ég betur að því á eftir.

Kosningaúrslitin frá því í sumar eru flestum, ef ekki öllum í mjög fersku minni. Þáv. stjórnarflokkar, Sjálfstfl. og Framsfl., urðu fyrir verulegu áfalli. Þetta áfall eða þessi úrslit hafa verið túlkuð á þann veg, að fólk hafi verið að hafna þeim till. og þeim tilraunum, sem þessir flokkar gerðu varðandi efnahagsmál, og það má vissulega taka undir þau rök. Það má vel vera að það sé rétt ályktun af þessum úrslitum, að fólk hafi verið að lýsa yfir óánægju sinni með vanmátt fráfarandi ríkisstj. til þess að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Fólk var líka sjálfsagt að mótmæla þeim lögum sem sett voru á síðasta ári, sem kölluð eru febrúarlög og að einhverju leyti a. m. k. skertu kjarasamninga. Við sjálfstæðismenn höfum aldrei mótmælt því, að þessi lög hafi m. a. falið þetta í sér, en við reyndum án árangurs að útskýra að þessi skerðing kæmi til góða þegar til lengdar léti og hún hefði umtalsverð áhrif í baráttunni gegn verðbólgunni. Við sjálfstæðismenn getum vel fallist á að þessi lög hafi ekki verið nægilega víðtæk, þau hefðu kannske átt að ná til fleiri atriða, og við getum líka viðurkennt að okkur hafi ekki tekist nægilega að útskýra tilgang þessara laga. Þetta rifja ég upp til þess að benda á að á sama tíma sem þetta var áfellisdómur yfir fráfarandi ríkisstj., og þetta var ein höfuðástæðan fyrir því að núv. stjórnarflokkar, m. a. Alþfl. og Alþb., unnu umtalsverðan sigur, þá stendur um það aðaltogstreitan innan þessarar ríkisstj., hvort eigi að ganga nokkurn veginn sömu leið efnislega og fyrri ríkisstj. fór með febrúarlögunum frá 1978.

Þegar núv. ríkisstj. var mynduð bundu margir nokkrar vonir við hana. Þær vonir byggðust fyrst og fremst á því, að af hálfu Alþfl. höfðu valist margir ungir menn sem höfðu haft uppi nýjan tón í íslenskum stjórnmálum, höfðu haft uppi djarflegar hugmyndir um það, hvernig ætti að takast á við vandamálin. Og þeir töluðu vissulega af nokkurri einurð sem skal virt og metið. Enn fremur byggðu menn nokkrar vonir á því, að Alþb. gekk til stjórnarsamstarfs við aðra flokka, en Alþb. á vissulega nokkur ítök í verkalýðshreyfingunni. Það var því ekki að ófyrirsynju að menn gerðu ráð fyrir því, að þessi ríkisstj. gæti staðið við fyrirheit og loforð um að grípa til langtímaráðstafana í efnahagsmálum sem raunverulega hefðu áhrif í baráttunni gegn verðbólgunni. Og ég vil taka það fram, að enda þótt ég hafi núna sest á þing sem stjórnarandstæðingur, þá gerði ég mér vonir um að þessari ríkisstj. yrði ágengt í baráttu sinni og hún fengi nokkru áorkað, ekki vegna þess að ég vildi þessari ríkisstj. sérstaklega vel, heldur vegna þess að ég vil þessari þjóð vel og ég vil gjarnan að við náum verðbólgunni niður og þá skiptir minna máli kannske hver á í hlut. Með hliðsjón af þessum vonum og með hliðsjón af þeim staðreyndum, sem ég hef nú verið að tala um, og möguleikum þessarar stjórnar, sem vissulega voru allmiklu meiri en t. d. fráfarandi stjórnar af ástæðum sem ég skal ekki rekja núna, þá hefur það valdið gífurlegum vonbrigðum meðal alls almennings að þessi ríkisstj. hefur hvað eftir annað gripið til margvíslegra bráðabirgðaráðstafana, og við skulum ekkert vera að orðlengja það eða snúa út úr því, að allt, sem skeð hefur í efnahagsmálum og efnahagsaðgerðum fram að þessu, eru bráðabirgðaaðgerðir. Það er aftur og aftur gripið til þeirra. Ég ætla ekki að fara að telja upp allar þær dagsetningar, allar þær ráðstafanir sem upp hafa komið frá því að þessi ríkisstj. var mynduð, það hefur margoft verið gert í þessari umr.

En nú spyrja menn til hvers sjálfstæðismenn séu að leggja fram till. núna um þingrof og nýjar kosningar, hvort eitthvert tilefni sé til þess. M. a. sagði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson áðan: Það er bókstaflega ekkert upp á þessa ríkisstj. að klaga. Það er allt saman í stakasta lagi. — Þá er kannske ástæða fyrir mig til þess að draga fram frv. til l. um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. Menn minnast þess, að um þessar ráðstafanir stóðu miklar deilur innan ríkisstj., en að lokum var þetta frv. lagt fram og þó sérstaklega var grg. með þessu frv. lögð fram. Það þóttu einna merkust tíðindi í stjórnarherbúðunum hvað stóð í grg., og m. a. gat hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir um það fyrr í umr., að þessi grg. væri það merkilegasta sem fram hefði komið frá þessari ríkisstj. fram að þessu. Og hvað stendur þá í þessari grg.? Ég ætla ekki að fara að lesa hana alla upp, en aðeins nefna örfá veigamestu atriðin. Hér segir í 1. lið:

„Stefnt verði að því í samráði við aðila vinnumarkaðarins að verðlags- og peningalaunahækkanir 1. mars 1979 verði ekki meiri en 5%.“

Hefur verið staðið við þetta? (Gripið fram i: Nei.) Nei, segir hv. þm. Það er rétt, það hefur ekki verið staðið við það.

Í öðru lagi: „Leitast verði við að ná svipuðum markmiðum fyrir önnur kaupgjaldsbreytingatímabil á árinu 1979, þannig að verðbólgan náist niður fyrir 30% í lok ársins.“

Má búast við að við þetta verði staðið? Verður þetta efnt? Hv. þm. svarar ekki, en ég skal svara fyrir hann. Nei, það liggur auðvitað ljóst fyrir, að það er útilokað að ná þessum markmiðum og ná verðbólgunni niður fyrir 30%, einmitt með hliðsjón af því að það tókst ekki að grípa til réttra aðgerða fyrir 1. mars. Þetta hvort tveggja helst í hendur.

Í þriðja lagi: „Vísitöluviðmiðun launa verði breytt fyrir 1. mars 1979 að höfðu samráði við fjölmennustu heildarsamtök launafólks. Gert er ráð fyrir því, að vísitölunefnd skili till. fyrir 15. febr., sem unnt verði að byggja á í þessu sambandi. M. a. verði athuguð viðmiðun við viðskiptakjör og fleira.“

Samkv. þessu átti að breyta vísitöluviðmiðun fyrir 1. mars 1979. Allir vita að þetta hefur ekki verið gert. Það var gert ráð fyrir að vísitölunefndin skilaði till. fyrir 15. febr. Það var auðvitað aldrei gert. Nú er svo komið að forsrh. bókstaflega rak þessa nefnd frá störfum.

Í fjórða lagi segir í upptalningu í grg. með frv. ríkisstj. varðandi efnahagsaðgerðir 1. des.: „Skattalög verði jafnframt endurskoðuð til þess að tryggja aukið réttlæti í skattlagningu. Beinir skattar af almennum launatekjum og þá sérstaklega tekjuskattur og sjúkratryggingagjald verði lækkaðir á næsta ári.“

Hefur þetta verið gert? Nei, það hefur svo sannarlega ekki verið gert. Og svo kemur hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hingað upp í stólinn og segir að allt sem við sjálfstæðismenn séum að tala um, sé markleysa. (Gripið fram í: Rétt.) En ef það er nú rétt, hv. prófessor Ólafur Ragnar Grímsson, þá er spurningin þessi: Hafa skattalög verið endurskoðuð til þess að tryggja aukið réttlæti í skattlagningu? Hafa tekjuskattar verið lækkaðir? Ef þm. eru það ósvífnir að fara bæði með ósannindi uppi í ræðustólnum og eins úti í sal, þá hætti ég að beina til þeirra spurningum og þá hætti ég að hlusta á þá þegar þeir tala, því að sannleikurinn er auðvitað sá, að í stað þess að efna þetta loforð, sem þarna er tekið fram, hafa skattar verið hertir og tekjuskattar verið hækkaðir á almennar launatekjur. Aðrir skattar hafa verið hækkaðir líka, t. d. vörugjald, svo að eitthvað sé nefnt. Ég gæti, eins og hv. þm. Ólafur Ragnar, fjallað hér um skattamálin í alla nótt og ég er tilbúinn í þá umr. Á þessu stigi málsins skal ég ekki orðlengja þetta frekar vegna þess að það er margstaðfest, m. a. af hæstv. forsrh. hér í ræðustól fyrir nokkrum dögum og liggur fyrir í Alþingistíðindum, að almennir tekjuskattar hafa hækkað, að skattlagning hefur aukist. T. d. snertir ein ósvífnin varðandi þessa skattlagningu m. a. fyrirtæki, en í frv. þessarar ríkisstj. til fjárlaga, sem lagt var fram í haust, var sérstaklega tekið fram, að ekki væri unnt að leggja frekari skatta á fyrirtækin vegna þess að þau hefðu ekki bolmagn til þess að rísa undir þeirri skattálagningu. Nokkrum vikum eða mánuðum seinna eru skattar vísvitandi stórkostlega hækkaðir á allan atvinnurekstur í landinu. Svo kemur hv. þm. Ólafur Ragnar og hælist um af öllu saman!

Allt það, sem ég er búinn að nefna núna og lesa upp úr grg. með 1. des. frv., er staðfesting á því, að ríkisstj. hefur ekki staðið við þau aðalloforð sem hún hefur gefið, og þetta eitt, sem talið er þó eitt merkilegasta framlag þessarar ríkisstj., þ. e. þessi grg., — þetta eitt, sem ég hef núna sýnt fram á að hefur verið vanefnt, undirstrikar og réttlætir að sjálfsögðu fullkomlega framlagningu þeirrar till. sem við sjálfstæðismenn höfum lagt fram um þingrof og nýjar kosningar.

Ég vil leyfa mér að koma með aðra tilvísun til upprifjunar. 21. des. fóru fram umr. utan dagskrár hér í þinginu. Þá höfðu átt sér stað hatrömm átök eins og fyrri daginn innan ríkisstj. og spurningin var þá sú, hvort Alþfl. mundi greiða atkv. með fjárl. eða hvort ríkisstj. mundi springa vegna þess að ekki næðist samstaða um þau. Þá fann Alþfl. útgönguleið sem m. a. byggðist á þeirri grg. sem ég var að vitna til áðan, og formaður flokksins, hæstv. utanrrh. Benedikt Gröndal, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og las upp ályktun, yfirlýsingu sem samþykkt hafði verið af flokksstjórn Alþfl., eftir því sem mér skilst, og þingflokkurinn að sjálfsögðu tók við og hugðist fylgja fast eftir. M. a. sagði í þessari yfirlýsingu formanns Alþfl.:

„Áframhaldandi stjórnarsamstarf Alþfl. er bundið því, að eigi síðar en 1. febr. hafi ríkisstj. lokið gerð lagafrv. um samræmdar aðgerðir gegn verðbólgu til a. m. k. tveggja ára. Það frv. verði lagt fyrir flokksstjórn Alþfl., er þá tekur ákvörðun um framhald stjórnarsamstarfsins. Flokksstjórnin telur að efnahagsástandið fram undan sé svo viðsjárvert að framkvæmd samræmdrar langtímastefnu þoli ekki lengri bið.“ — Svo stór voru þau orð.

21. des. lýsir sem sagt formaður Alþfl. yfir skýrt og skilmerkilega, að áframhaldandi stjórnarsamstarf Alþfl. sé bundið því, að eigi síðar en 1. febr. hafi ríkisstj. lokið gerð lagafrv. um samræmdar aðgerðir gegn verðbólgu. Nú er kominn 8. mars og enn er verið að tala um að gefa þessari ríkisstj. frekari fresti. Enn eru Alþfl.-menn að leggja fram nýjar dagsetningar sem miðast við 17. mars og 20. apríl. Og svo eru menn hissa á því, að stjórnarandstaðan hér á Alþ. leyfi sér að leggja fram till. um þingrof og nýjar kosningar! Ætlast þessir menn alls ekki til að það sé tekið mark á þeim? Sú spurning er auðvitað orðin harla áleitin bæði fyrir þing og þjóð. Það er bókstaflega ekkert upp á þessa ríkisstj. að klaga, segir hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson. Það er nákvæmlega ekkert að. Þetta er allt saman í stakasta lagi. — En þá spyr ég: Til hvers eru ráðh., ríkisstj. og flokkarnir, sem standa að þessari ríkisstj., að eyða tímanum, nótt sem degi, viku eftir viku í að semja alls kyns lagafrv.? Til hvers var Alþfl. að leggja fram í Alþýðublaðinu fyrr í vetur frv. um jafnvægisaðgerðir í efnahagsmálum og krefjast þess, að það yrði samþykkt á undan eða jafnhliða fjárlagafrv.? Var það vegna þess að allt væri í stakasta lagi? Til hvers var hæstv. forsrh. að standa upp í þinginu og lýsa því yfir, lofa því, að samið yrði nýtt frv. sem lagt yrði fram fyrir 1. febr., ef allt var í góðu lagi? Til hvers þurfti að leggja fram slíkt frv.? Til hvers var Alþb. að semja álitsgerð um efnahagsmál í tugum liða nú einhvern tíma um jólaleytið, ef ekkert var að? (Gripið fram í.) Einmitt. En engu að síður sá þessi flokkur ástæðu til þess að leggja nokkra vinnu í að búa út slíkar till. Framsfl. pússaði rykið af stefnuskrá sinni. Allt var þetta lagt inn til ríkisstj. sem skipaði síðan þriggja manna ráðherranefnd. Hvað gerir sú ráðherranefnd? Hún lagði nótt við nýtan dag til þess að semja sérstakt samkomulag og sérstakar till. til þess að leggja fyrir ríkisstj. fyrir 1. febr. Það voru svo mikil tíðindi, að sjónvarpið dreif sig niður í rn. til þess að taka mynd af mönnum og láta þá lýsa því yfir, að þessar till. mörkuðu tímamót í efnahagsmálum á Íslandi. Það var hvorki meira né minna, alger tímamót! Og til hvers var það gert, ef allt var í stakasta lagi, bókstaflega ekkert upp á þessa ríkisstj. að klaga?

Þarna eru nú komin, að ég hygg, fjögur eða fimm frv. Sjötta frv. var frv. Ólafs Jóhannessonar sem þeir Alþfl. menn hafa sérstakt dálæti á um þessar mundir. Og enn berast tíðindi um að Alþb. hafi lagt fram nýtt frv. til l. innan ríkisstj.

Og þá kem ég að því sem hv. þm. Ólafur Ragnar talaði um áðan, að það ætti að hafa umr. opna og djarfa. Hann bar sérstakt lof á samherja sína í ríkisstj. fyrir einurð, djörfung og hreinskilni, þeir létu allt flakka og segðu frá bókstaflega öllu, sem þeir hefðu skoðanir á, og yfirleitt létu þeir ekkert færi sér út greipum ganga til þess að bítast í þinginu um hin smávægilegustu mál. Það hefur verið svo í þingsölum í vetur, að ekkert mál hefur komið inn í þingið öðruvísi en stjórnarsinnar hafi staðið upp og rifist um þau mál. En hv. þm. Ólafur Ragnar taldi það lofsverðast við þennan nýja tón, þessa nýju menn hér á þingi, hvað þeir væru hreinskilnir og opnir og þeir hefðu svipt hulunni — þessari leyndardómshulu — af öllum málum. Ég las þó ekki betur í blöðunum um daginn — og ég bið hæstv. iðnrh., sem ég sé að er eini Alþb.-maðurinn hér inni í augnablikinu, um að vitna með mér um það — en að þingflokkur Alþb. mundi samkv. áreiðanlegum blaðafrásögnum í Þjóðviljanum hafa samþykkt að þetta nýjasta frv. þeirra væri trúnaðarmál. Ég tek þögn hæstv. ráðh. sem samþykki við þessum ummælum mínum, enda fer hann varla að mótmæla því sem í Þjóðviljanum segir. Algert trúnaðarmál! Það mátti ekki spyrjast út hvað stæði í þessu frv. Þetta frv. var nr. 7. Það hefur haft þau áhrif, að manni skilst, að forsrh. er búinn að leggja fram nýja till. í ríkisstj. sem m. a. felur í sér sérstaka framkvæmdanefnd, sem þeir kalla „Rauðku“, og ýmislegt fleira, sem er væntanlega þá frv. nr. 8. Og nú hefur hann gefið yfirlýsingar um það í fjölmiðlum, að í næstu viku verði lagt fram frv. á Alþ. Það teljast nú sérstök tíðindi að frv. skuli komast inn á Alþ. Þessu fagna þeir Alþfl.-menn alveg sérstaklega, og nú segja þeir að það skuli þrautreyna hvort þetta frv. nái fram að ganga eða ekki. Þeim er alveg hjartanlega sama hvað stendur í þessu frv., enda hefur þessi frv.-leikur allur verið þannig, að það skiptir nánast engu máli hvað stendur í þessum frv. Þetta er bara orðaleikur og einhverjar skylmingar innan ríkisstj. um það, hvort þetta ákvæði eigi að vera svona eða hinsegin. Við höfum fengið ítarlegar lýsingar á þessum skylmingum, m. a. frá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni í fróðlegri ræðu fyrir 2–3 dögum.

Ég vil taka undir þau ummæli sem hv. þm. Einar Ágústsson viðhafði fyrr við þessa umr., að þetta er endalaus grautargerð, þetta er lífshættuleg fæða, svo að ég noti hans orð. Þessi moðsuða, sem þarna á sér stað, er slík að þjóðinni blöskrar. Það er skylda stjórnarandstöðunnar að vekja athygli á þessu ráð- og dáðleysi ríkisstj., og það er skylda stjórnarandstöðunnar að krefjast þess, að þjóðin fái að kveða upp sinn dóm um þessi vinnubrögð.

Verðbólgan hefur verið og er langsamlega stærsta vandamál stjórnmálanna á Íslandi. En það er margt fleira sem við stjórnmálamenn erum að kljást um. Hér er verið að fjalla um landbúnaðarmál, vaxtamál, orkumál o. s. frv., o. s. frv. Um þessi mál öll er meiri og minni ágreiningur, djúpstæður ágreiningur innan stjórnarflokkanna, og maður veltir fyrir sér á hverjum degi hvernig raunverulega standi á því, að þessir flokkar hafi yfirleitt myndað stjórn og hvers vegna þeir séu að hanga saman þegar löngu er orðið ljóst, þeim er orðið mjög ljóst öllum saman, að það er ekki samstaða um nokkurt mál, nema með einhverjum úrslitakostum og þvingunum á báða bóga. Niðurstaðan er auðvitað sú, að það eina, sem heldur þessari ríkisstj. saman, eru völdin. Það eru möguleikarnir til þess að fá að ráða. Það eru sem sagt verðbólgukarlarnir, kerfiskarlarnir og þrýstihóparnir sem öllu ráða um þessar mundir, en ráðh. sitja aðeins vegna þess að þeir geta hrært í pottinum. Þeir sitja við kjötkatlana og njóta góðs af því um stundarsakir.

Ég tók fram áðan að Sjálfstfl. vildi fyrir sitt leyti stuðla að því, að okkur Íslendingum tækist að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Ég held að Sjálfstfl. sé tilbúinn að gera það, hvort sem hann situr í stjórn eða er utan stjórnar. Við sjálfstæðismenn hikum ekki við að segja, að í því frv., sem er kennt við Ólaf Jóhannesson og hann hefur lagt fram í fjölmiðlum, er margt gott og margt af því getum við með góðu móti stutt. En við getum að sjálfsögðu ekki stutt frv. eða till. sem ekki eru lagðar fram í þinginu. Við efumst líka um að það sé rétt af lögþingi þjóðarinnar, af þeim mönnum sem eru kosnir til þess að stjórna og ráða, að þeir séu bundnir í báða skó, þeir séu háðir því að fá samþykki fyrir úrræðum einhvers staðar úti í bæ. Þessi ríkisstj. hefur haft stór orð um að nauðsynlegt sé að hafa samráð við verkalýðshreyfinguna. Alþfl.-menn hafa talað um kjarasáttmála. Ef ríkisstj. eða einhverjir flokkanna, sem standa að henni, manna sig upp í það að leggja fram frv. sem á að taka á verðbólgunni og á að vera langtímaráðstafanir í efnahagsmálum, þá verður auðvitað að standa eitthvað í því frv. sem bitastætt er, eitthvað sem skiptir einhverju máli. Ef frv. er lagt fram í þeim búningi sem hæstv. forsrh. hefur kynnt það í og miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur mótmælt, þá er það frv. lagt hér fram og það væntanlega samþykkt eða því synjað án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Það er Alþfl. auðvitað að biðja um núna, að þetta frv. sé lagt fram, þó að hann viti að Alþýðusambandsstjórnin, eða a. m. k. meiri hl. ASÍ-stjórnarinnar, sé andvígur þessu frv. og þá spyr maður náttúrlega sjálfan sig: Hvað er orðið af kjarasáttmálanum? Hvað er orðið að samráðunum? Hvað er orðið af samningunum í gildi? Og eru þeir þá ekki að gera það sama og fráfarandi ríkisstj. gerði tilraun til, að leggja fram till. sínar og úrræði um lausn á vandanum í samræmi við samvisku sina og eftir því sem þeir telja sannast og réttast? Ef þetta frv. verður hins vegar lagt fram þannig að allar tennur verði dregnar úr því og farið að vilja þeirra Alþb.-manna og meiri hl. verkalýðsforustu innan ASÍ, breytir það nákvæmlega engu í baráttu okkar gegn verðbólgunni. Þá verður það bara eitthvað um ekki neitt.

Herra forseti. Nú velta menn því mjög fyrir sér, hvað muni ske á næstu dögum. Verður haldið áfram í þeim hringleikhúsasýningarleik, eins og hv. þm. Einar Ágústsson orðaði það, þar sem þeir stjórnarandstæðingar eyða mestum tíma í innantómt karp og fræðilegar vangaveltur um af hvaða ástæðum þeir skrifi hinar og þessar greinar eða greiði atkv. í einu eða öðru málinu, eða verður á næstu dögum raunverulega tekist á við þann vanda sem blasir við? Þessari spurningu get ég ekki svarað frekar en aðrir, en ég held að allar líkur séu á því, að Alþfl. renni á rassinn einu sinni enn, hann verði að viðundri einu sinni enn, hann kokgleypi allar sínar fyrri yfirlýsingar, hann láti undan þrýstihópunum, kerfiskörlunum, verðbólgubröskurunum og samþykki að hér sé eitthvert frv. keyrt í gegnum þingið til málamynda — frv. sem tekur raunverulega ekki á neinum vanda.

Hv. þm. Vilmundur Gylfason tók það fram mjög hróðugur í ræðu sinni fyrr í dag, að hann hefði ekki tekið eftir því í Morgunblaðinu að vitnað væri til ummæla krata fyrir og eftir kosningar í sambandi við samningana í gildi. Ég held að það eigi við um ummæli kratanna hvað önnur mál varðar, því að sannleikurinn er sá, að andrúmsloftið er orðið þannig, viðhorf almennings er orðið þannig, að hann tekur ekkert mark á því sem Alþfl. segir, hvorki því, sem hann sagði fyrir kosningar, né heldur því, sem hann segir eftir kosningar.