08.03.1979
Neðri deild: 60. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3128 í B-deild Alþingistíðinda. (2425)
213. mál, matvælarannsóknir ríkisins
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Frv. þau, sem ég hér mæli fyrir, — ég hef fengið leyfi hæstv. forseta til að taka 4., 5. og 6. dagskrárlið saman, þ. e. a. s. frv. til l. um breyt. á l. nr. 74 frá 1977, um matvælarannsóknir ríkisins, frv. til l. um breyt. á l. nr. 24 frá 1. febr. 1936, um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, og frv. til l. um breyt. á l. nr. 12 frá 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, — eru samin í heilbr.- og trmrn. og er til þess ætlast, að með lögfestingu þeirra verði rekstur, Matvælarannsókna ríkisins samkv. lögum nr. 74 frá 1977 tryggður. Þessi frv. stefna í sömu átt, og hef ég því kosið að flytja hér framsögu fyrir þeim öllum í einu, enda fjalla þau í reynd um einn og sama hlutinn.
Með lögum nr. 74 frá 1977 var ætlunin að tryggja starfsemi Matvælarannsókna ríkisins til frambúðar. Stofnunin hafði áðurstarfað í um þriggja missira skeið án þess að um hana giltu nokkur lagaákvæði. Stofnuninni var komið á fót til að annast gerlafræðilegt eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum í kjölfar þess að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hætti þeim störfum um áramót 1975–1976. Erfiðlega hefur gengið að tryggja eðlilegan rekstur Matvælarannsókna ríkisins vegna fjárskorts. Miðað við fjárlög yfirstandandi árs er greinilegt að draga verður stórlega úr þjónustu stofnunarinnar við heilbrigðiseftirlitið í landinu komi ekki annað til. Þarf ekki að lýsa því hvaða afleiðingar slíkt kynni að hafa þar sem þetta eru einu gerlarannsóknirnar sem framkvæmdar eru á matvælum hér á landi. Fáist ekki aukið fé til starfsemi stofnunarinnar er einsýnt að segja verður upp um helmingi starfsfólks, en slíkt yrði nánast dauðadómur yfir stofnuninni.
Það er skoðun mín, að það beri að reyna til þrautar að tryggja starfsemi Matvælarannsókna ríkisins þannig að starfsemin dragist ekki saman miðað við liðið ár. Í rauninni þyrfti frekar að auka við þjónustuna heldur en hitt, enda er gert ráð fyrir því í lögum um stofnunina, að hún annist enn fremur efnafræðilegar rannsóknir á matvælum. En vegna fjárskorts hefur ekki orðið af því enn.
Með frv. til l. um breyting á lögum um matvælarannsóknir ríkisins vil ég leitast við að tryggja það, að starfsemi stofnunarinnar verði a. m. k. óbreytt, þ. e. a. s. þær gerlarannsóknir, sem stofnunin annast sem þjónusturannsóknir fyrir heilbrigðiseftirlitið í landinu, haldi áfram. Með frv. er lagt til að stofnuninni verði tryggðar vissar árlegar tekjur á þann hátt, að heimilt verði að taka gjald fyrir rannsóknir á vegum heilbrigðiseftirlitsins í landinu. Margar af þeim rannsóknarstofnunum, sem starfa á vegum hins opinbera, hafa heimild til gjaldtöku. Má sem dæmi nefna Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Samkv. gjaldskrá þeirrar stofnunar fyrir árið 1979 og fjölda sýna, sem bárust Matvælarannsóknum ríkisins á árinu 1978, ættu Matvælarannsóknir ríkisins að geta fengið rúmar 20 millj. kr. í tekjur á þessu ári. Þetta yrði kostnaður sem sveitarfélögin yrðu þá að greiða vegna rannsókna í þágu heilbrigðiseftirlits í héraði. Ætla má að tekjur, er nema 20–30 millj. kr. til viðbótar við þau fjárframlög sem stofnuninni eru ætluð í fjárl., eigi að geta tryggt a. m. k. óbreyttan rekstur stofnunarinnar um næstu framtíð.
Til þess að búa sem best um hnútana álitur rn. nauðsynlegt að breyta einnig greinum tvennra annarra laga sem nefnd eru hér að framan.
Samkv. núgildandi lögum um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, nr. 24 frá 1936, hvílir sú skylda á ríkissjóði að standa undir kostnaði vegna eftirlits samkv. þeim lögum. Segja má að þetta sé óraunhæft ef lítið er á matvælaeftirlit sem heitbrigðiseftirlit, eins og óneitanlega ber að gera, þar sem allt heilbrigðiseftirlit samkv. lögum nr. 12 frá 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, er á kostnað viðkomandi sveitarfélaga. Hins vegar hefur Heilbrigðiseftirlit ríkisins yfirumsjón með matvælaeftirliti í landinu og er slíkt að sjálfsögðu algerlega á kostnað ríkissjóðs.
Litið hefur verið svo á, að skylda ríkissjóðs til þess að greiða kostnað við eftirlitið nái einnig til matvælarannsókna. Þótt deila megi um lagaskyldu ríkissjóðs til þess að standa undir þessum rannsóknakostnaði verður að ætla slíka skyldu helgaða fyrir langa venju. Miðað við þau fjárframlög, sem ætluð eru til þessara rannsókna utan Reykjavíkur, þ. e. a. s. á Akureyri, í Vestmannaeyjum og á Ísafirði, getur ríkið ekki staðið undir kostnaðinum nema að óverulegu leyti, en aðeins 2 millj. kr. er varið til þessa. Það er því skoðun rn., að breyta þurfi nefndum lögum, m. a. til þess að kveða skýrt á um skyldu sveitarfélaganna til að greiða hér eins og gildir um annað heilbrigðiseftirlit og eins vegna þess að ríkissjóður hefur ekki peninga til að greiða þetta samkv. þeim fjárl. sem nú eru í gildi.
Með breytingum á lögum nr. 24 frá 1936 er lagt til að sveitarfélög standi straum af kostnaði við eftirlit samkv. þeim hvert á sínu svæði. Enn fremur er gert ráð fyrir að ráðh. geti sett sérstaka gjaldskrá þar sem kveðið er á um gjald á þær vörur sem háðar eru eftirliti. Sveitarstjórnir munu innheimta þessi gjöld og njóta þeirra og kemur það á móti þeim kostnaði sem sú breyting hefði í för með sér sem ég áður ræddi um.
Þriðju lögin, sem lagt er til að breytt verði, eru lög nr. 12 frá 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Í þeim lögum er í 16. gr. kveðið á um það að rannsóknastofnanir ríkisins skuli annast nauðsynlegar rannsóknir á sýnishornum vegna heilbrigiðiseftirlitsins samkv. lögum. Engin ákvæði eru um það, hver skuti standa straum af kostnaði við þessar rannsóknir, en sum sveitarfélög hafa lítið svo á að ríkinu beri samkv. þessari grein að standa undir slíkum kostnaði. Eins og fjárframlögum er háttað í dag getur ríkissjóður á engan hátt staðið undir slíku, enda má segja að slíkt samrýmist ekki aðalreglunni um það, að heilbrigðiseftirlit sé í höndum sveitarfélaga og á kostnað þeirra. Hér er lagt til að sveitarfélög standi undir kostnaði við rannsóknir þessar í samræmi við gildandi lög um einstakar stofnanir, þ. e. a. s. greiði samkv. gjaldskrám viðkomandi stofnana. Með vísan til þess, sem ég hef áður sagt, tel ég brýna ástæðu til að nefndum lögum verði breytt í þá átt sem ég hef lagt til hér, til þess að rannsóknir á matvælum dragist ekki stórlega saman, sem hefði í för með sér ómælda erfiðleika fyrir heilbrigðiseftirlitið í landinu.
Ég sé að svo stöddu ekki ástæðu til þess að fjalla frekar um efnisatriði þessara frv., en vísa til aths. um þau. Ég vil að lokum geta þess, að sem stendur er unnið að heildarendurskoðun á lögum nr. 12 frá 1969, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, og er stefnt að því að frv. verði tilbúið n. k. haust. Mun í því frv. verða tekin afstaða til þess af hálfu heilbrigðisyfirvalda, hvernig þessum málum verði skipað til frambúðar, auk þess sem stefnt verði að sem mestri sameiningu og samnýtingu þeirra stofnana er starfa á vegum hins opinbera að þessum málum, bæði á eftirlitssviðinu og rannsóknasviðinu.
Herra forseti. Ég legg til að þessum þremur frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv, heilbr.- og trn. þessarar d. með ósk um að þau hljóti skjóta afgreiðslu, enda eru frv. í sjálfu sér einföld og kveða skýrt á um hluti sem slá þarf botn í. Auk þess legg ég til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr.