09.03.1979
Sameinað þing: 65. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)

165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Þetta mál hefur verið allengi þæft hér á hinu háa Alþingi. Mig minnir að þetta hafi verið fyrsta málið sem kom á dagskrá að loknu jólaleyfi og gerði ég þá þegar viðvart um löngun mína í orðið, þó það hafi ekki orðið fyrr en nú.

Ég vil leggja áherslu á það í örstuttum aths. mínum, að við Íslendingar verðum að leggja mikla áherslu á samninga við aðrar þjóðir, nágranna okkar, sérstaklega Norðmenn, Færeyinga og Grænlendinga. Hafa verið hér lagðar fyrir till., sem snerta þau mál og hv. 5. þm. Norðurl. v. hafði forustu um í upphafi þings, þannig að ég þarf ekki að víkja frekar að því nú. Þetta vil ég taka sérstaklega fram, svo að ég verði ekki misskilinn þegar ég segi aftur á móti að ég get með engu móti fallist á þá till. til þál. sem hér liggur fyrir. Ástæður fyrir því eru þær, að ég fæ með engu móti skilið, eins og staða okkar er nú, að við getum samið við aðrar þjóðir um eitt eða neitt varðandi fiskveiðar á fiskimiðum okkar. Ég var þeirrar skoðunar um hríð, að það hefði gjarnan mátt semja við Færeyinga um einhverja meiri veiði á loðnu, en ég hef nú horfið einnig frá því og ástæðurnar eru afar einfaldar. Þær eru að við erum að skerða mjög sókn okkar sjálfra, draga mjög úr þeirri sókn. Og hvernig í ósköpunum eigum við að fara að því að sýna slíkt örlæti við aðrar þjóðir þegar svo er komið? Mér býður í grun, þótt ég hafi ekki fyrir því vissu, að við eigum bráðlega eftir að fá að sjá harkalegar till. um stórkostlegan niðurskurð á sókn Íslendinga í þorskstofninn, jafnvel svo harkalegar till., að ef þær ná fram að ganga er augljóst að það mun setja mikilvægustu útgerðarþætti okkar á hliðina.

Ég er mikill vinur Færeyinga og þeir eru mestir vinir okkar af öðrum þjóðum og nánastir frændur, en við höfum ekkert leyfi til þess að gefa það sem við ekki eigum og höfum ekki ráð á. Þetta er að vísu ekki till. um nýjan samning um þorskveiðar Færeyinga, þótt í leiðinni, þegar samið var um minnkun á loðnuveiðinni, væri samið um 1000 tonna minnkun á þorskveiðum þeirra. En því er það, að ég hlýt að fylgja þeirri brtt. sem hefur verið flutt hér. Ég geri lítið með það formsatriði að hún sé flutt sem brtt., en ekki sem sjálfstæð till., þótt uppsögnin snerti að sjálfsögðu margar fleiri þjóðir en Færeyinga, sem þáltill. fjallar einvörðungu um. Það er algert formsatriði sem menn geta ekki sett fyrir sig ef þeir á annað borð eru þeirrar skoðunar að nú sé mál að linni. Það getur vel verið, að í allsherjarsamningum við þessa nágranna okkar komi málum svo, að við teljum okkur beinan hag að því að semja við aðrar þjóðir, og þessar þjóðir þá aðallega, um veiðar á Íslandsmiðum. Það getur vel verið. En þau viðhorf blasa auðvitað ekki við og koma ekki til að blasa við fyrr en við höfum sest að samningaborði með þeim. Ég veit ekki betur en hinn auðugu efnahagsbandalagsríki hafi þorskveiðiréttindi eða botnfiskveiðiréttindi við Færeyjar. Það væri nú athugandi og allt annað, a. m. k. í mínum augum, að semja við Færeyinga ef þeirri ásókn linnti.

Fiskifræðingar vara okkur alvarlega við, og við höfum gengið miklu lengra og sótt miklu fastara í þorskstofninn en ráðleggingar þeirra segja til um. Það kann vel að vera, að þeir hafi málað þetta of dökkum litum. En allt að einu höfum við gerst svo miklum mun stórtækari en ráðleggingar þeirra hljóða upp á, að ég held að við neyðumst til þess að spyrna við fótum, enda þótt ég telji hins vegar að of djúpt sé tekið í árinni með þeim till. sem ég hef heyrt á skotspónum, að nú sé byrjað að ræða um takmarkaða sókn togaraflotans t. a: m. og fiskveiðiflotans alls í þorskstofninn.

Þegar við þurfum að beinskera niður afla okkar í þorskveiðum, sem er okkar eini og sanni stóriðnaður og mun verða um fyrirsjáanlega framtíð, er alveg gersamlega útilokað, án þess að nýjar forsendur skapist, að veita öðrum heimild til þessara veiða. Fyrir því er það, að ég hlýt að snúast gegn þessari till. og óhjákvæmilega að fylgja till. um að samningunum verði öllum sagt upp. Eins og ég sagði kunna að skapast forsendur í samningaviðræðum við þessa nágranna okkar sem sýna okkur beinlínis fram á að hagkvæmt sé að semja um einhverjar veiðiheimildir til handa öðrum þjóðum, en þær eru ekki fyrir hendi enn og skapast ekki fyrr en þá í þeirri samningsgerð.